Leita í fréttum mbl.is

Þessi 1500 fyrirtæki veita mögulega 15.000 manns vinnu - Ósveigjanleiki fjármálafyrirtækjanna þeim til vansa

Í september 2009  birtist grein eftir mig í Morgunblaðinu og birti ég hana einnig á hér á þessari síðu undir heitinu Aðeins tvær leiðir færar: Leiðrétting núna eða afskrift síðar.  Ekki var hlustað á rökstuðning minn þá að best væri að fara í leiðréttingu strax.  Leiðréttingu sem hefði getað gert heimilin og fyrirtækin í landinu greiðsluhæf.

Greinin fjallaði vissulega mest um heimilin, en einnig var minnst á fyrirtækin.  Hugmyndafræðin var sú sama fyrir báða hópa, þ.e. að betra væri að leiðrétta strax en bíða með að afskrifa síðar.  Tekið skal fram að nokkrum dögum eftir birtingu greinarinnar hélt Seðlabankinn málstofu, þar sem tekið var nánast orðrétt undir innihald hennar.  Þar var niðurstaðan að þær þjóðir, sem unnið hefðu hratt að endurskipulagningu skulda, hefðu stigið hraðast upp úr fjármálakreppum.  Að sjálfsögðu fóru fjármálafyrirtækin ekki eftir þessum ábendingum og af þeim sökum erum við ennþá á bólakafi ofan í skítnum.

Ég hef aldrei getað skilið þessa aðferðafræði fjármálafyrirtækjanna, að ganga eins hart að fólki og fyrirtækjum og kostur er.  Jafnvel núna 11 mánuðum eftir að Hæstiréttur staðfesti ólögmæti gengistryggingarinnar, þá eru fjármálafyrirtæki ennþá að freista þess að rukka lánin eins og þessir dómar hafi ekki fallið.  Í hverri viku (liggur við) falla dómar í héraði eða Hæstarétti þar sem slegið er á fingur fjármálafyrirtækjanna, ef ekki rass, og bent á að gengistrygging er ólögleg.  Annað hvort eru þessir aðilar masókistar eða þeir eru að vona til þess að dómstólar gefist upp á þrákellni þeirra og dæmi þeim í vil.

Samkvæmt svari Árna Páls Árnasonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, sem fjallað er um í fréttinni, þá er talið að 1500 fyrirtæki fari í þrot.  Hvað ætli fjármálafyrirtækin tapi miklu á þroti þessara fyrirtækja?  Hvað ætli margir einstaklingar verði keyrðir í þrot vegna persónulegra ábyrgða fari fyrirtækin í gjaldþrot?  Hvað ætli fjármálafyrirtækin tapi miklu á gjaldþroti þessara einstaklinga?  Hvað ætli margir missi vinnuna við það að þessi fyrirtæki fari í þrot?  Hvað ætli margir þeirra þurfi að nýta sér sértæk úrræði fjármálafyrirtækjanna vegna tekjumissisins sem atvinnuleysið hefur í för með sér?

Ég veit um marga aðila sem eru búnir í yfir 2 ár að fá fjármálafyrirtækin til að semja um uppgjör skulda, einhverja leiðréttingu og þó ekki væri nema að frysta skuldir þar til betur árar eða búið er að fá á hreint hverjar skuldirnar eru í raun og veru.  Því miður er vilji fjármálafyrirtækjanna til að koma til móts við viðskiptavini sína nánast enginn.  Séu þau ekki gjörsamlega neydd til þess, þá virðist ekkert vera gert.  Og þegar einstaklingar og fyrirtæki reyna að nýta sér úrræði fjármálafyrirtækjanna, þá veltur túlkun fjármálafyrirtækjanna alveg á því hvoru megin borðsins þau sitja.

Um daginn fékk ég vitneskju um mál einstaklings sem ætlaði að nýta sér 110% leiðina.  Viðkomandi er með 50 fm íbúð á góðum stað, en hann átti aldrei von á því verðmati sem lagt var fyrir hann af bankanum.  Fermetraverð var sagt tæplega 313 þúsund kr. og hafði eigandinn að orði, að jafnvel á toppi verðbólunnar hafi hann ekki fengið slíkt verðmat.  En fjármálafyrirtækin ráða.  Skelli þau fram svona biluðu verðmati, þá getur fasteignaeigandinn lítið gert.  Síðan eru taldar til allar eignir, þannig að ofan á þetta verðmat er bætt eignarhluti í bifreið (eins og hægt er að treysta slíku) og allt það annar sem hægt er að finna.  Þannig verður 110% leiðin ekki 110% af verðmati fasteignar heldur 130% eða 150%.  Í öðru tilfelli frétti ég af einstaklingi sem ætlaði að semja við banka um uppgjör með því að setja fasteign upp í skuldir. Í því tilfelli kom mat bankans á eigninni sem var undir fasteignamati.

Fjármálafyrirtækin virðast halda allt of oft að þau beri enga ábyrgð á því sem gerðist á árunum fyrir hrun.  Mér er alveg sama þó þau heiti nýjum nöfnum og beri nýjar kennitölurnar.  Kröfurnar sem þau eru að halda á lofti, eru frá gömlu kennitölunum og því oft ekki sú innstæða bak við þær og fjármálafyrirtækin vilja vera láta.  Mér finnst að fjármálafyrirtæki eigi að sjá sóma sinn í því að halda ekki á lofti hærri kröfum, en óyggjandi séu og samþykktar eru af báðum aðilum.  Annað verði sett á ís þar til leyst hefur verið úr ágreiningi.  Þetta er ekki ósvipuð tillaga og ég setti fram í lok september og byrjun október 2008 og held ég ennþá að sé besta lausnin.  Mér finnst það a.m.k. ósiðlegt að fjármálafyrirtækin séu að gegna hlutverki handrukkarar fyrir erlenda kröfuhafa.  Þessara sömu kröfuhafa og okkur hefur verið talin trú um að hafi veitt afslátt af lánasöfnum við flutning þeirra frá gömlu kennitölunni til þeirrar nýju.  Eins og ég benti í fyrir ári eða svo var þessi afsláttur að hluta til blekking vegna samninga um hlutdeild kröfuhafanna í betri heimtum.

Rétt er að taka fram, að fjármálafyrirtækin eru misjöfn og þannig berast fæstar kvartanir vegna Íslandsbanka.  Flest dómsmálin virðast vera með NBI/Landsbankann sem annan málsaðila og Landsbankinn og Arion banki eru að fá verstu skellina hjá dómstólum.  Mest er kvartað undan þeim tíma sem Drómi/Frjálsi taka sér að svara erindum og hafa sumir viðmælenda minna líkt þessu við svarthol - sama er hvað fer inn, ekkert kemur til baka.  Byr er nefndur oftar núna í seinni tíð.  Af þessum lýsingum sem mér hafa borist, þá virðist sem mörg fjármálafyrirtæki gleymi því að þau og gömlu kennitölur þeirra voru í viðskiptasambandi við lántaka, en ekki að viðskiptavinurinn hafi átt/eigi að koma einu sinni eða oftar í mánuði til að láta tæma vasa sína.  Við viðskiptavinirnir erum ekki mjólkurkýr fjármálafyrirtækjanna, þó þau virðist helst halda það.

Velta má því fyrir sér hvers vegna viðskiptavinir eigi að viðhalda viðskiptasambandi sínu við fjármálafyrirtæki, sem telja sig eitt hafa rétt fyrir sér, þegar ágreiningur kemur upp.  Ég hef oft sagt að fjármálafyrirtækin þurfi að átta sig á því hvað þurfi að vera til staðar svo viðskiptavinurinn kjósi ekki einfaldlega að fara eitthvað annað.  Vandinn er að ekkert þokkalega stórt fjármálafyrirtæki er að komast óskaddað út úr hruninu.  Menn benda á MP-banka, en hann hefur líka sinn djöful að draga. 

Ég eins og fleiri bíð spenntur eftir því að hér á höfuðborgarsvæðinu opni nýr banki eða sparisjóður.  Ástæðan er einfaldlega sú, að ég get ekki hugsað mér að vera í viðskiptum við fyrirtæki sem hafa rétt minn að engu.  Fyrirtæki sem héldu áfram að krefjast greiðslu eins af áður gengistryggðum lánum, eins og dómar Hæstaréttar 16. júní 2010 hafi ekki fallið allt þar til í apríl á þessu ári.  Fyrirtæki sem fengu háa afslætti af lánunum mínum við flutning þeirra frá gömlu kennitölunni, en telja mig ekki eiga neinn rétt á að fá þennan afslátt til mín.  Fyrirtæki sem halda að þau geti rukkað mig um vexti allt að 7 ár aftur í tímann, þó ég hafi staðið í skilum allt þar til að í september 2009, en þá neitaði ég að viðurkenna rétt þeirra til að krefjast gengistryggingar á lánin.  Fyrirtæki sem svara bréfum eftir dúk og disk, vegna þess að þau vita að meðan þau svara ekki þá geta þau samt krafið mig um vexti.  Fyrirtæki sem hunsað hafa andmælarétt minn, þó í ljós hafi komið að ég hafi almennt haft rétt fyrir.  Fyrirtæki sem hafa mátt þola niðurlægjandi dóma Hæstaréttar skipti eftir skipti, þar sem Hæstiréttur bendir þeim á að þegar séu komnir fordæmisgefandi dómar.  Breyti þessi fyrirtæki sér, þá er ég tilbúinn að hugsa málið upp á nýtt.  Sýni þessi fyrirtæki af sér auðmýkt og lítillæti í samskiptum við viðskiptavini sína, þá er ég tilbúinn að hugsa málið upp á nýtt.  Hlusti þessi fyrirtæki á raddir viðskiptavina sinna og taki gagnrýni þeirra til sín, þá er ég tilbúinn að hugsa málið upp á nýtt.  Annars mun ég nota fyrsta tækifæri til að færa öll mín viðskipti til fjármálafyrirtækis sem er traustsins vert.


mbl.is 1500 fyrirtæki stefna í þrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ferðaþjónustuaðili ræður erlenda leiðsögumenn í stað innlendra

Mér var bent á það í gær að stórir íslenskir ferðaþjónustuaðilar ráða í stórum stíl erlenda leiðsögumenn til starfa hér á landi.  Flestir eru þeir án nokkurrar reynslu af leiðsögn hér á landi og jafnvel án nokkurrar reynslu yfirhöfuð af leiðsögn.  Sá sem sagði mér af þessu nær ekki upp í nef sér af hneykslan.

Nú ganga á annan tug þúsunda Íslendinga atvinnulausir.  Í þeim hópi er eru m.a. leiðsögumenntað fólk.  Mér finnst dapurlegt að loksins, þegar stefnir í að illa launaðir íslenskir leiðsögumenn (já, laun leiðsögumanna eru líelegur brandari) geti haft þokkalegt að gera, þá er hrúgað inn í landið erlendum leiðsögumönnum.  Vissulega er vandamálið að ekki allir íslenskir leiðsögumenn sætta sig ekki við þá aumu taxta, sem eru í boði.  Munurinn á þeim og útlendingunum, er þó að þeir þekkja landið.  Því er mikilvægt að þeir séu við hljóðnemann.  Mikilvægt er að ferðamaðurinn fái á tilfinninguna að fagfólk skipuleggi og annist það í ferðum um landið, en ekki fúskarar. 

Á Spáni gildir sú regla, að innfæddur leiðsögumaður verður að vera í öllum ferðum.  Fyrir nokkrum árum fórum við hjónin til Barcelona og jafnvel í rútunni frá flugvellinum inn að hótelunum sat innfæddur leiðsögumaður með.  Þannig eru reglurnar á Spáni.  (Án þess að hafa það á hreinu, þá býst ég við að leiðsögumaðurinn mætti vera hvaðan sem er af EES-svæðinu, svo fremi sem hann hafi sérmenntað sig í leiðsögn á Spáni.)

Sá sem menntar sig í leiðsögn hér á landi lærir ótrúlega margt um land og þjóð.  Mæli ég með leiðsögunámi, þó ekki væri nema til þess að öðlast þessa þekkingu.  Sjálfur er ég menntaður frá Leiðsöguskólanum í Ferðamálaskólanum í Kópavogi.  (Hann er hluti af Menntaskólanum í Kópavogi.)  Á þessu eina námsári, sem námið tekur er farið í sögu lands og þjóðar frá landnámi til þessa dags, bókmenntir og listir, byggingarlist, handverk, flóru Íslands (plöntur og gróður), fánu Íslands (dýralíf), þróun atvinnulífs, þróun efnahagslífs, þróun stjórnskipunar, jarðfræði, veðurfar, norðurljósin, þjóðmenningar m.a. þjóðminjar og þjóðsögur, þróun byggðar, sérstaklega fjallað um einstaka staði út frá framansögðu, fjallað um heilu landsvæðin í samhengi og svona mætti lengi telja.  Hafi erlendir leiðsögumenn þekkingu á þessum atriðum, þá er besta mál að láta þá leiðsegja útlendingum hér á landi, en hafi þeir það ekki, þá eru þetta hrein og klár vörusvik.  Hvað veit þýskur krakki, blautur bak við eyrun úr námi í Þýskalandi, um þjóðsögur á Íslandi, hætturnar sem leynast undir fótunum, túngarðinn á tæplega 3m dýpi í Þingvallavatni, flutning fólks úr Heimaey að morgni 23. janúar 1973, laugar á Vestfjörðum, afrek og bernskubrek Grettis, söguslóðir Njálssögu og svona mætti lengi telja?  Eða að þó hann sé franskur, svissneskur, austurrískur, pólskur, tékkneskur, ítalskur eða spánskur.

Afleiðingin af því að "leiðsögumaðurinn" er reynslulaus eða lítill, er sú að álagið á bílstjórana eykst gríðarlega.  "Leiðsögumaðurinn" er oftast "mállaus", þ.e. getur hvorki bjargað sér á íslensku né ensku.  Hann getur því ekki séð um samskiptin við hótel og matsölustaði, skilur ekki hvað stendur á skiltum, getur ekki einu sinni lesið landakort með góðu móti, veit varla hvar staðir eru sem ætlunin er að heimsækja.  Afleiðingin fyrir bílstjórann er að hann fær ekki sinn hvíldartíma lögum samkvæmt.  Þá eru dæmi um að slíkir "leiðsögumenn" hengi sig á íslenska leiðsögumenn sem aumkuna sig yfir þá.  Loks má ekki gleyma því, að ekki kemur tekjuskattur eða útsvar til ríkis og sveitarfélaga vegna þessara aðila.


Varamaður í bankaráði Landsbankans hf. sendir launþegum tóninn

Andri Geir Arinbjarnarson heitir maður.  Hann er ágætlega menntaður og í góðu starfi.  Hann er líka mikilsmetinn bloggari, álitsgjafi og síðast en ekki síst varamaður í bankaráði Landsbanks hf. (áður NBI hf.).  Í nýlegri færslu sendir hann launþegum þessa lands heldur kalda kveðju.  Réttlátar launahækkanir þeirra munu draga kreppuna á langinn!  Launþegar landsins eiga að sætta sig við skert kjör svo hægt sé að nota gjaldeyrinn, sem þessir sömu launþegar taka þátt í að skapa, í að greiða m.a. erlendum kröfuhöfum hlutdeild í hagnaði Landsbankans hf. af óvægnum innheimtum bankans af stökkbreyttum lánum viðskiptavina bankans.

Ég setti athugasemd inn á bloggið hans, þar sem ég mótmæli þessari framsetningu hans og vil ég birta hana hér:

Ég veit um eina leið sem gerir fyrirtækjum kleift að standa undir þessum hækkunum án þess að veita þeim út í verðlagið. Hún er ákaflega einföld og varamaðurinn í bankaráði Landsbankans hf (áður NBI hf.), Andri Geir Arinbjarnarson, gæti kannski talað fyrir henni í bankaráðinu. Fjármálafyrirtæki hraði úrvinnslu beinu brautarinnar, þau leiðrétti strax og afturvirkt ólöglega teknar afborganir áður gengistryggðra lána og bjóði fyrirtækjum betri kjör í viðskiptum sínum við bankann. Með þessu myndi sparast verulega í rekstrarkostnaði fyrirtækjanna, sem gæfi þeim svigrúm til að gera betur við starfsfólk sitt. Síðan gæti varamaðurinn líka talað fyrir því í bankaráðinu, en mér skilst að hann sitji alla fundi bankaráðsins, að bankinn virði dóma Hæstaréttar, neytendaréttarákvæði laga og Evrópuréttar, stjórnarskrárvarinn rétt fólks og fyrirtækja og að ég tali nú ekki um siðareglur bankans sjálfs.

Mér finnst þú, Andri Geir, gleyma því að vandi íslensks hagkerfis er fjármálafyrirtækjum að kenna, ekki almenningi og framleiðslufyrirtækjum, ríkisstofnunum, sveitarfélögunum eða aðilum í ferðaþjónustu. Nei, vandi þjóðarbúsins er því að kenna, að Landsbanki Íslands hf., Kaupþing banki hf., Glitnir banki hf. og fleiri illa rekin fjármálafyrirtæku settu hér upp einhverja svæsnustu svikamyllu sem um getur á heimsvísu. Meðan þessi svik hafa ekki verið leiðrétt, þá verður enginn rekstrargrundvöllur hvorki fyrir heimili né atvinnurekstur.

Mér finnst það ósvífið af varamanni bankaráðs kennitöluflakkara að kenna eðlilegum kjarabótum um að endurreisnin verði ekki eins auðveld, þegar Landsbankinn hf. (áður NBI hf.), Arion banki hf. og Íslandsbanki hf. hafa það í hendi sér að laga ástandið. Þú gefur í skyn, Andri Geir, að fólk eigi að sætta sig við skert kjör (sem eru bein afleiðing af svikum, lögbrotum, prettum og blekkingum fjármálafyrirtækjanna) vegna þess að annars gæti það ruggað bátnum. Mér finnst að þú ættir að sýna ögn meiri auðmýkt. Fattar þú ekki að fólk býr hér við fátækt? Kaupmáttur launa hefur lækkað um hátt í 30% á frá því í ársbyrjun 2008, m.a. vegna hátterni fjármálafyrirtækjanna. Og nýju fjármálafyrirtækin, sem eru ekkert annað en kennitöluflakkarar, eiga að vera stikkfrí, vegna þess að þau eru komin með nýja kennitölu. Sveiattan!

Eins og ég segi í inngangsorðum mínum, þá fá kröfuhafar Landsbanka Íslands hf. hlutdeild í hagnaði af betri innheimtum bankans af stökkbreyttum lánum.  Líklegast rennur öll sú hlutdeild upp í Icesave, en þó er það ekki víst.  Samningurinn milli fjármálaráðuneytisins og Fjármálaeftirlitsins annars vegar og erlendra kröfuhafa hins vegar er ekki opinber og við vitum því ekki hvaða leynileg ákvæði eru þar.  Samkvæmt upplýsingum sem komu frá Arion banka um daginn, þá renna 80% af betri heimtum lána til erlendra kröfuhafa en 20% til bankans sjálfs.  Bankinn þiggur sem sagt 20% innheimtuþóknun frá erlendum kröfuhöfum.  Halda menn virkilega að bankinn muni leggja sig í líma við að semja við fólk og fyrirtæki, þegar hann getur makað krókinn á þennan hátt.  Í fjölmiðlum hafa birst fréttir um að starfsmenn Landsbankans hf. fái kaupauka tengda betri heimtum.  Satt best að segja finnst mér það viðbjóðslegt, að fjármálafyrirtæki sem reist eru á rústum fyrirtækja sem lögðu þjóðfélagið bókstaflega í rúst, séu svo ósvífin að vinna frekar með hagsmuni erlendra kröfuhafa að leiðarljósi, en hagsmuni viðskiptavina sinna.  Og allt vegna þess, að þannig leggist þeim til auka hagnaður.  Sveiattan, þið ættuð að skammast ykkar!


Olíuverð lækkar um 8,6 - 8,8% á heimsmarkaði - Ætli íslensku olíufélögin viti af þessu?

Heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði í dag um 8,6% í New York og um 8,9% í London. Á sama tíma hækkaði dollarinn um 1,14% gagnvart krónunni. Skili þetta sér í verði við dæluna hér á landi, þá má búast við 20 kr. lækkun á bensínverði. En það er víst til of...

Blekkingar á blekkingar ofan

Í janúar birti ég hér færslu undir heitinu Almenningur hafður að ginningarfíflum - Bankarnir lifa en almenningur tapar öllu . Þar hélt ég því fram að stofnfjáraukningar tveggja sparisjóða, Sparisjóðs Keflavíkur og Sparisjóðs Svarfdælinga, hafi verið...

Metnaðarfullt skjal en útfærsluna vantar víða

Óhætt er að segja að yfirlýsing ríkisstjórnarinnar sé nokkuð metnaðarfullt. Vissulega er ansi margt sem á að koma til framkvæmdar síðar, en virða verður viljann fyrir verkið. Í stórum dráttum sýnist mér yfirlýsingin nefna eftirfarandi: 1. Hækkun bóta...

Sony uppvíst að brotum á PCI DSS öryggisreglum - Notendur vakti kortafærslur og netsöluaðilar hafi varann á sér

Miklar fréttir berast frá Sony raftækjaframleiðandanum. Yfir 100 milljónum notendaupplýsingum var stolið við innbrot inn á Sony Playstation Network. Það sem verra er, að tugir milljóna kreditkortupplýsinga var stolið og þegar er orðið vart við að kort...

Stórhættuleg hugsanaskekkja varðandi erlendar skuldir - Ekki er hægt að treysta á erlendar eignir til að greiða erlendar skuldir

Ég hef tekið eftir því að eftir að grein Haraldar Líndals Haraldssonar birtist í Morgunblaðinu í dag og viðtalið við hann bæði í útvarpi og sjónvarpi, þá hafa menn komið fram sem segja Harald fara með rangt mál, þar sem hann gleymi erlendum eignum. Skoða...

Hárrétt hjá Lilju - Lífeyrissjóðirnir eru of stórir miðað við fjárfestingar í boði

Við hrun bankakerfisins í október 2008 hvarf um þeið stór hluti af fjárfestingakostum hér á landi. Um leið lokaðist á möguleika innlendra fjárfesta til að flytja fé úr landi til fjárfestinga erlendis. Þetta bitnar ekki síst á lífeyrissjóðum landsins, þar...

Framfærslulífeyrir öryrkja og ellilífeyrisþega er hneisa

Ég fjallaði um þetta mál í síðustu færslu minni Þróun sem átt hefur sér langan aðdraganda og á eftir að versna . Því miður hefur þetta ástand ekki fengið nægan hljómgrunn í samfélaginu. Líklegasta ástæðan er að þjóðfélagið hefur ekki efni á því að gera...

Þróun sem átt hefur sér langan aðdraganda og á eftir að versna

Hún er ekki björt lýsingin sem Berglind Nanna Ólínudóttir gefur af stöðu sinni. Því miður er hún ekki ein um þetta og þeim fer fjölgandi sem lenda í fátæktagildru íslenska "velferðarkerfisins". Ætli það séu ekki um 15 ár síðan að ég skrifaði mína fyrstu...

Fáránleiki endurútreikninga: Skuldar háar fjárhæðir þó lánið hafi verið greitt upp 2007

Í síðari símatíma Reykjavíkur síðdegis á Bylgjunni í gær (27.4.2011) hringdi inn kona sem sagði farir sínar ekki alveg sléttar. Mig langar að birta grófa endurritun samtalsins hér (þ.e. samfellt mál og öllum endurtekningum og mistökum sleppt)....

Vaxtahlé Icesave samninga var blekking - Icesave samninganefndin þarf að útskýra þetta

Dómar héraðsdóms um forgang Icesave innstæðna í þrotabú Landsbanka Íslands eru mikil lesning. Áhugavert er hvernig umfjöllun um einstök atriði sveiflast á milli löggjafar landanna og hafa dómarar lagt sig fram við að greina hvar hvert atriði á heima....

Er þetta nú alveg rétt, Árni Páll?

Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, fór með heillanga tölu í fréttum Stöðvar 2 í gær og hún er endurtekin í frétt mbl.is, sem þessi færsla er hengd við. Mig langar að fara yfir atriði sem nefnd eru í fréttinni og skoða þau út frá minni...

Kvörtunin til ESA farin

Föstudaginn 15. apríl fóru 15 kg af pappír í þremur bögglum til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA). Þessi kvörtun er búin að vera lengi í vinnslu eða frá því í ágúst á síðasta ári. Sendi ég þá fyrirspurn til starfsmanns ESA um hvort slík kvörtun gæti verið...

Héraðsdómur leitar í smiðju Hæstaréttar - Misskilningur varðandi erlend lán og fjórfrelsið

Ég get nú ekki sagt að niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur í dag hafi komið mér á óvart. Í dómi Hæstaréttar í máli nr. 92/2010 frá 16. júní 2010 komst rétturinn að því að leigusamningur var lánasamningur, lánsamningurinn hafi verið í íslenskum krónum með...

Upplýsingaleynd og almannahagsmunir

Forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, hefur lagt fram nýtt frumvarp til upplýsingalaga . Markmið laganna er eins og segir í 1. gr. þeirra: að tryggja gegnsæi í stjórnsýslu og við meðferð opinberra hagsmuna m.a. í þeim tilgangi að styrkja:...

Sjálfsuppfyllandi spádómar eða réttlát viðvörun matsfyrirtækja með lítið traust

Stóru matsfyrirtækin þrjú eru í sérkennilegri klemmu. Á árunum fyrir fjármálakreppuna voru lykill í markaðssetningu fjármálafyrirtækja á skuldabréfavafningum sem síðar hleyptu fjármálakerppunni af stað. Núna eru þau líklegast að reyna að bæta fyrir fyrri...

Tímamótadómur í Héraðsdómi Reykjavíkur: Afturvirk vaxtabreyting ekki viðurkennd

Eins og ég fjalla um í síðustu færslu (sjá Kynnir Arion banki sér ekki dóma Hæstaréttar? - Eru mörg gjaldþrot byggð á svona vitleysu? ) þá fór Arion banki sneypuför í Hérðasdóm Reykjavíkur í dag. Var bankinn gerður afturreka með kröfu um...

Kynnir Arion banki sér ekki dóma Hæstaréttar? - Eru mörg gjaldþrot byggð á svona vitleysu?

Í annað sinn á stuttum tíma lendir banki í því að vera sendur frá Héraðsdómi Reykjavíkur með skottið milli fótanna. Síðast var það NBI hf., en núna er það Arion banki. Málsástæðan er í bæði skiptin sú sama - "lögin eiga ekki við mig". Í dómum Hæstaréttar...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.1.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 1681262

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband