Leita í fréttum mbl.is

Lántakar eiga að fá raunverulegar lausnir, ekki sjónhverfingar

Hagsmunasamtök heimilanna hafa lagt umtalsverða vinnu við að skoða þær lausnir sem bankarnir bjóða upp á.  Byrjað var að skoða tölur í kjölfar útspils Íslandsbanka í lok september og útbúið reiknilíkan til að finna út áhrif greiðslujöfnunar á lánin í samanburði við fyrra fyrirkomulag.  Annað líkan var útbúið til að reikna út mismunandi lausnir bankanna.  Hér hefur því verið vandað vel til verka.  Við höfum meira að segja fengið tækifæri til að bera okkar útreikninga saman við upphaflega útreikninga Íslandsbanka og Arion banka.

Það skal tekið fram, að HH gerir sér grein fyrir, að lausnir Íslandsbanka, Arion banka og Frjálsa fjárfestingabankans gilda bara í 3 ár.  Hvað tekur við að þeim tíma liðnum er óþekkt hjá Íslandsbanka, Arion banki talar um bestu vexti á húsnæðislánum og Frjálsi í millibankavexti + 1,5%.  Út frá þessu má færa þau rök að lausnir þessara banka séu lakari en sýndar eru í greinargerðinni.  Á móti kemur eru LIBOR vöxtum og vaxtaálagi haldið föstu, en rök eru fyrir því að LIBOR vextirnir hækki á komandi árum. 

Í greinargerðinni er bara sýnd ein þróun fyrir hverja lausn.  Það er ekki þar með sagt að ekki hafi fleiri verið skoðaðar.  Gerð var næmnigreining á ýmsum breytum, svo sem gengi, vöxtum, afslætti, verðbólgu og greiðslujöfnunarvísitölu.  Það væri að æra óstöðugan að lista útkomu næmnigreiningarinnar og niðurstöðurnar myndu drukkna í talnaflóði.  Vafalaust ýmsum til gagns og fróðleiks, en þrátt fyrir það, var ákveðið að birta bara tölurnar í sinni einföldustu mynd.

Það sem skiptir mestu máli í þessari greiningu, er að fjármálafyrirtæki eru ekki að gera nóg.  Þessi fjögur hafa öll mun meira svigrúm, en þau eru að nýta.  Það er skýlaus krafa Hagsmunasamtaka heimilanna að þau nýti svigrúmið sitt betur.  Mark Flanagan, Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, hefur sagt það vera skoðun sjóðsins, að allt svigrúm eigi að nota.  Franek Rozwadozsky, fulltrúi AGS hér á landi, sendi mér póst um daginn, þar sem hann sagði að hluti af svigrúminu eigi að fara í að greiða fyrir óhagstæðari fjármögnun og er það gott og blessað.  Málið er að nýju bankarnir eru að mestu fjármagnaðir með innlánum og þessi innlán eru almennt á lágum vöxtum, þó ég hafi ekki greiningu á því.  Það er mat mitt, að hægt sé að lækka höfuðstól allra gengistryggðra lána um 50% og verðtryggðra um 20% hjá bönkunum þremur og bankarnir eiga samt nóg til að greiða 4,5% hærri vexti (þ.e. að vaxtaprósentan hækki t.d. úr 1,5% í 6% eða 2,5% í 7%).  Meira um það síðar.

Svo það farið ekkert á milli mál, þá beinist gagnrýni Hagsmunasamtaka heimilanna fyrst og fremst að því að ekki sé nógu langt gengið.  Til skamms tíma (þriggja ára) eru lausnir Arion banka, Íslandsbanka og Frjálsa mjög jákvæðar.  Það er ekkert sem mælir gegn því að fólk nýti sér þau, en muni að setja fyrirvara um lögmæti gengistryggðra lána og betri rétt neytenda.  Svo skulum við vona, að eftir þrjú ár verði komin betri tíð og blóm í haga.  Það kostar ekkert að láta sig dreyma Grin


mbl.is Viss blekking í úrræðum bankanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Nikulásson

Marinó, þér hlýtur að vera ljóst nú þegar að bankarnir eru bara að afskrifa til stórfyrirtækja og vildarviðskiptavina og þess vegna fá almenningur og smáfyrirtæki ekkert leiðrétt.

Það er í gangi bullandi spilling og mismunun sem ekki sér fyrir endann á og héðan af er bara spurning hvenær við springum á þessu og hættum að mjálma um réttlæti. Það fæst aldrei nema með einhverjum látum. Þetta vitum við af biturri reynslu.

Haukur Nikulásson, 22.12.2009 kl. 19:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband