Leita í fréttum mbl.is

Verklagsreglur fjármálafyrirtækja um sértæka skuldaaðlögun

Á heimasíðu Hagsmunasamtaka heimilanna er núna að finna samkomulag fjármálafyrirtækja um verklagsreglur um sértæka skuldaaðlögun.  Vonandi eru þetta bara drög, sem á eftir að leiðrétta viðskiptavinum fjármálafyrirtækjanna í hag.  Við lestur reglnanna, þá virðist mér fyrirtækin gleyma því að þau eru að tala um örlög viðskiptavina sinna, því fátt bendir til þess að þau hafi áhuga á því að halda viðkomandi aðilum áfram í viðskiptum eftir þá útreið sem fólk á að fá.

Ég varaði við því á fundi félags- og tryggingamálanefndar sl. þriðjudag, að reglurnar gætu orðið þannig að enginn mundi vilja gangast undir þær.  Hvatti ég nefndina til að bæta við ákvæðum um sanngirni, réttlæti og jafnræði.  Sanngirni og jafnræði rataði inn í lögin og þar sem reglurnar uppfylla ekki þessi atriði, þá reikna ég með að fyrirtækin verði gerð afturræk með þær.  Annars er umfjöllun hagsmunasamtakanna að finna hér og reglurnar sjálfar eru hér.

Ég býst við að margir þeirra þingmanna, sem samþykktu lög um aðgerðir í  þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins muni fá martröð eftir lestur reglnanna.  Í þeim er verið að leggja til þröngan kost og skuldafangelsi þrátt fyrir að sagt sé að "markmið sértækrar skuldaaðlögunar [sé] að einstaklingar í alvarlegum skuldavanda geti fengið skilvirka og varanlega lausn..", þá er vissulega hægt að viðurkenna að lausnin sé "skilvirk", en ekki er hún "varanleg".  Ég skil ekki hvernig það sem á að taka upp eftir þrjú ár getur verið "varanlegt".  En svona er ég bara tregur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Þór Saari vakti athygli fáránleika laganna, sem samþykkt voru á föstudaginn og reglum fjármálafyrirtækjanna, í viðtali við fréttastofu RÚV.  Hann benti þar á að einkavæða eigi hagnaðinn og þjóðnýta tapið.  Hagnaðurinn er oft fyrir löngu kominn úr landi eða geymdur undir dýnu eða í bankahólfum. Hann verður ekkert sóttur sama hvað menn reyna.  Tapið er aftur í lánum sem menn tóku hér innanlands og liggja í bönkunum.  Þetta á að fella niður.

Annars skil ég ekki varðandi lögin hvað félagsmálaráðherra er að leggja fram frumvarp varðandi fyrirtækin í landinu eða fagfjárfesta.

Marinó G. Njálsson, 25.10.2009 kl. 12:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 1678164

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband