Leita í fréttum mbl.is

Stefnuleysi stjórnvalda stærsti vandinn

Um þessar mundir eru 8 mánuðir frá því að Seðlabankinn tók þá ákvörðun fyrir hönd ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar að taka yfir 75% hlut í Glitni.  Afleiðingar þessarar ákvörðunar hafa verið geigvænlegar og er ekki séð fyrir endann á þeim enn.  Þegar þáverandi formaður bankastjórnar, Davíð Oddsson, tók þessa ákvörðun í lok september á síðasta ári, þá voru hér starfandi fimm bankar (Glitnir, Kaupþing, Landsbankinn, Sparisjóðabankinn og Straumur) og öflugt sparisjóðakerfi.  Nú 8 mánuðum síðar hafa allir bankarnir fimm verið teknir yfir af ríkinu, þar af verða tveir til þrír líklega settir í þrot, stærsti og öflugasti sparisjóður landsins er ekki lengur til og margir aðrir rétt tóra.  Sem afleiðing af þessu og efnahagsóstjórn í aðdraganda hruns fjármálakerfisins eru fjölmörg heimili og fyrirtæki ýmist komin í þrot eða við það að komast í þrot.  Hvernig skyldi nú standa á þessu öllu?

Þegar stórt er spurt, er oft fátt um svör, en mig langar að gera hér smá tilraun. Í mínum huga er ástæða númer eitt, tvö og þrjú algjör skortur á stefnumótun og markmiðssetningu.  Fyrst virtist vanta skýra stefnu varðandi uppbyggingu fjármálakerfisins.  Svo vantaði stefnu varðandi hvernig á átti að vinna sig út úr vandanum sem kom fyrst í ljós á vormánuðum 2006 og síðan aftur á haustmánuðum 2007.  Þá vantaði skýr úrræði til að kljást við þau vandamál sem komu upp síðari hluta febrúar 2008 og að ég tali nú ekki um í mars það ár.  Margar misgáfulegar ákvarðanir voru teknar í tilraun Seðlabankans til að bjarga Glitni, Kaupþingi og Landsbankanum, sem síðan felldu Straum, Sparisjóðabankann og SPRON og gerðu Seðlabankann í raun gjaldþrota.  Í september voru mikilvægar ákvarðanir teknar af formanni bankastjórnar Seðlabankans í staðinn fyrir að reynt væri að leysa málin með samvinnu margra aðila.  Datt engum í hug að spyrja sig hvað það þýddi að svipta eigendur hlutabréfa í Glitni 75% af eign sinni?  Datt engum í hug að skoða tengsl eignarhalds í þessum hlutabréfum við ábyrgðir og veð vegna annarra skuldbindinga?

En í lok september var ballið rétt að byrja og skaðinn var ennþá ekki orðinn mikill.  Skaðinn varð í sjálfu sér ekkert svo svakalegur við það að bankarnir féllu út frá starfsemi bankanna.  Tjónið fólst fyrst og fremst í því að eignir manna í hlutabréfum urðu að engu.  Það var bara eins og engum hafi dottið í hug að skoða afleiðingarnar af því.  En jafnvel þá var tjónið ekki orðið alvarlegt.  Það hefði mátt koma í veg fyrir margt af því sem síðar hefur átt sér stað með réttri stefnumótun og markmiðssetningu.  Það var bara ekki gert.  Við erum í dag að súpa seyðið af því slík vinna fór ekki í gang strax á fyrstu dögunum eftir að neyðarlögin voru sett (hún fór raunar í gang en lognaðist út af) og það sem meira er að allar aðgerðir stjórnvalda eru ennþá fálmkennd og stefnulaus.

Afleiðingin af þessu stefnuleysi er að setja þjóðfélagið á hausinn.  Fyrirtækin eru að fara í þrot hvert af öðru, heimilin eru að fara í þrot hvert af öðru, skilanefndir gömlu bankanna toga hver í sína áttina, þar sem þær fengu enga línu frá stjórnvöldum.  Krónan er sígur hægt og rólega til botns enda með allt of stutta akkerisfesti sem dregur hana í dýpið. Við getum beðið eftir því að þetta skrið niður á við hætti af sjálfu sér (sem er íslenska leiðin) eða við getum hafið markvissar aðgerðir til að stöðva það.

Í færslu hér 6. nóvember 2008 gerði ég eftirfarandi tillögu:

Nú þarf strax að grípa til aðgerða og fá færustu sérfræðinga landsins og þá erlendu aðila sem næst í til að mynda nokkur aðgerðaráð.  Ég sé fyrir mér að þessi ráð verði um eftirfarandi málefni:

  1. Fjármálaumhverfi: Verkefnið að fara yfir og endurskoða allt regluumhverfi fjármálamarkaðarins.
  2. Bankahrunið og afleiðingar þess:  Verkefnið að fara yfir aðdraganda bankahrunsins svo hægt sé að læra af reynslunni og draga menn til ábyrgða.
  3. Atvinnumál:  Verkefnið að tryggja eins hátt atvinnustig í landinu og hægt er á komandi mánuðum.
  4. Húsnæðismál:  Verkefnið að finna leiðir til að koma veltu á fasteignamarkaði aftur á stað.
  5. Skuldir heimilanna:  Verkefnið að finna leiðir til að koma í veg fyrir fjöldagjaldþrot heimilanna í landinu.
  6. Ímynd Íslands:  Verkefnið að endurreisa ímynd Íslands á alþjóðavettvangi.
  7. Félagslegir þættir:  Verkefnið að byggja upp félagslega innviði landsins.
  8. Ríkisfjármál: Verkefnið að móta hugmyndir um hvernig rétta má af stöðu ríkissjóðs.
  9. Peningamál: Verkefnið að fara ofan í peningamálastefnu Seðlabanka Íslands, endurskoða hana eftir þörfum og hrinda í framkvæmd breyttri stefnu með það að markmiði endurreisa traust umheimsins á Seðlabanka Íslands
  10. Gengismál:  Verkefnið að skoða möguleika í gengismálum og leggja fram tillögur um framtíðartilhögun.
  11. Verðbólga og verðbætur:  Verkefnið að fara yfir fyrirkomulag þessara mála og leggja til umbætur sem gætu stuðlað að auknum stöðugleika.
  12. Framtíð Íslands - Á hverju ætlum við að lifa: Verkefnið að móta framtíðarsýn fyrir Ísland varðandi nýja atvinnuvegi.
  13. Framtíð Íslands - Hvernig þjóðfélag viljum við:  Verkefnið að móta framtíðarsýn fyrir Ísland varðandi inniviði þjóðfélagsins.

Þessir hópar þurfa að vera fleiri, en ég læt þessa upptalningu duga.

Hóparnir þurfa að vera ópólitískir.  Fyrir hverjum hópi fari einstaklingar úr atvinnulífinu eða háskólasamfélaginu.  Stærð hópa velti á umfangi vinnu og hversu brýn viðfangsefnin eru.  Stærri hópar þurfa lengri tíma.  Mikilvægt sé að allir geti komið skoðunum sínum að.  Misjafnt er hve hratt hóparnir þurfa að vinna, en ljóst að "neyðarhóparnir" þurfa að vinna hratt og vel.

Nú sé ég fyrir mér að við þurfum fleiri hópa og hlutverk þeirra sé að móta stefnu og skilgreina markmið.  Starfsvið þeirra sé að gera tillögu að aðgerðaáætlun til að vinna okkur út úr þeim vanda sem þjóðin er sífellt að sökkva dýpra og dýpra ofan í.  Að stöðva hrunið sem ennþá er í gangi.  Við höldum að sumarið verði gott vegna fjölda ferðamanna, en ég hef fyrir því heimildir að sum ferðaþjónustufyrirtæki standi frammi fyrir 60% samdrætti í pöntunum.  Vona ég að það gangi ekki eftir.

Ég sagði um daginn, að ég væri tilbúinn að leiða svona vinnu og skila niðurstöðum í formi hvítbókar á innan við 8 vikum.  Stend ég við þá yfirlýsingu mína.  Ég er svo sem viss um að úti í þjóðfélaginu séu til hæfari einstaklingar til verksins, en hver það verður valinn til að stýra svona skiptir ekki máli. Það sem skiptir máli er að einhenda sér í verkið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikt Sigurðarson

Enn og aftur Marínó - fín færsla og tímabærar ábendingar og hugmyndir frá þér.

Þú og ég og fleiri sem höfum sýnt vilja til að leggja að mörkum erum á "svörtum lista" hjá pólitíkinni við stjórnartaumana.   Það er hið sígilda veikleikamerki stjórnvalda sem skortir kjark og framtíðarsýn - og leiðtogahæfileika.   

Nú reynir sem sagt á hvort stjórnvöld bera gæfu til að kalla erlenda sérfræðinga og innlenda einstaklinga með þekkingu og hugkvæmni - til verka og veita þeim umboð sem stjórnvöld síðan útfæra í lagabreytingum og stjórnvaldsfyrirmælum í framhaldinu og án frekari tafa.

Það voru ekki bara Mats Josefson go Göran Person sem voru tilbúnir að leggja að mörkum erlendis frá - eða Eva Joly - heldur margir fleiri.   Þeim hefur flestum verið vísað á bug - - og afhverju?

Ég þori ekki sjálfur að svara því; vegna "svarta listans"

Benedikt Sigurðarson, 27.5.2009 kl. 16:38

2 identicon

Svarti listinn hæfir vel fyrir glæpabankana þó.  Og þeirra svörtu lán, ránlán yfirvalda.

Almennur borgari (IP-tala skráð) 27.5.2009 kl. 16:58

3 Smámynd: Jakob Þór Haraldsson

Ótrúlegt að þú nefnir "svartan lista" en ég tel að því miður sé Össur & SteinRÍKUR búnir að setja mig á slíkan lista, þó svo að það ætti að vera AUGLJÓST að ég, Marinó, þú & aðrir vilja rétta hjálparhönd!  Okkur blöskrar "froðusnakk & aðgerðarleysi" og látum rödd okkar heyrast - við gagnrýnum AUMA forystu þessara flokka XS & XVG og þá erum við slæmir - "helvítis fukking fukk...."

Vil enda á þínum orðum sem eru ótrúleg en sönn: "Þú og ég og fleiri sem höfum sýnt vilja til að leggja að mörkum erum á "svörtum lista" hjá pólitíkinni við stjórnartaumana.   Það er hið sígilda veikleikamerki stjórnvalda sem skortir kjark og framtíðarsýn - og leiðtogahæfileika."

kv. Heilbrigð skynsemi

Jakob Þór Haraldsson, 27.5.2009 kl. 18:09

4 Smámynd: Hörður Valdimarsson

það er rétt hjá þér að aðdragandinn að falli Glitnis var með eindæmum. Ennþá furðulegra er það að alþjóða gjaldeyrissjóðurinn var í heimskókn á klakanum í júni 2008. Þeir gáfu þá bönkunum góða einkunn en bentu á að yfirvöld ættu að búa til aðgerðapakka ef vera kynni að einn af bönkunum færi í þrot

Enginn aðgerðapakki var búinn til og æðstu menn höfðu ekki samráð á neinum sviðum. Frægt er dæmið að bankamálaráðherra var bara kallaður til til að skrifa undir plaggið. Þetta er einfaldlega með einsdæmum. Þá má líka benda á að menn notuðu 3 daga til að athuga málið, en tæpar 3 vikur voru þangað til að lánið félli á glitnir.

Það er margt skrítið í kýrhausnum þarna á klakanum. Stærsti sparisjóðurinn finnst heldur ekki lengur sem er líka dálítið undarlegt sérstaklega í ljósi þess að erlendir kröfuhafar vildu umræður við stjórnvöld til að bjarga bankanum. Þeir voru ennfremur búnir að senda frá sér yfirlýsingu að þeir væru tilbúnir að afskrifa 21 prósent af skuldum félagsins og lengja í lánum. Þessum háu herrum þarna á íslandi datt ekki í hug að yrða á þessa aðila. Ég vil meina að gengið sé að síga núna vegna þess að þessir aðilar eru orðnir þreyttir og vilji af skútunni. þessir aðilar vildu meina að hægt hefði verið að bjarga Spron.

Hörður Valdimarsson, 27.5.2009 kl. 18:13

5 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Dæmi um markmiðssetningu sem ég mundi vilja sjá er t.d. eftirfarandi:

  • Draga markvisst út skuldsetningu heimilanna í landinu
  • Koma á skilvirkum markaði með íbúðarhúsnæði hvert sem búsetuformið er, þ.e. eignarhúsnæði, leiguhúsnæði eða búsetaform svo dæmi séu tekin
  • Tryggja að allir landsmenn 18 ára og eldri geti verið þátttakendur á þessum húsnæðismarkaði eftir efni og aðstæðum
  • Tryggja að núverandi íbúðareigendum verði gert kleift að halda húsnæði sínu hafi þeir á annað borð fjárhaglegar forsendur til slíks
  • Leitað verði leiða til að skapa eins mörgum og hægt er fjárhagslegar forsendur til að halda húsnæði sínu með því að laga til langs tíma greiðslubyrði að greiðslugetu
  • Skapa lánakerfi sem er réttlátt, sanngjarnt og að mestu laust við sveiflur eða öfgakenndar breytingar á höfuðstólum lánanna og greiðslubyrði
  • Tryggja betri neytendavernd
  • Skapa opnari og skilvirkari lánamarkað
  • Yfirfara og endurskoða útreikninga og forsendur verðtryggingar og verðbreytinga á núverandi lánasöfnum
  • Jafna ábyrgð lántakenda og lánveitenda við útlán, m.a. með því að takmarka veð við veðandlag 

Marinó G. Njálsson, 27.5.2009 kl. 19:18

6 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Enn og aftur, frábær grein Marinó. Eftir höfðinu dansa limirnir og svo virðist sem að bankarnir og skilanefndirnar séu þau öfl sem stjórna velferð íslendinga eins og er. Þeir gæta hagsmuna bankanna eru þeir sömu og sátu á bakvið tjöldin áður en þeir féllu. Þeir sem skipa skilanefndir og sitja fundi sem kröfuhafar eru oft "drengir" eins og einn reynslubolti sagði mér. Á fundi í dag var honum rétt Excel skjal og sagt að fylla út. Þetta sögðu þeir manni sem er prófessor í hagfræði og situr í stjórn fyrirtækja og kennir flókna hag- og viðskiptafræði. Prófessorinn sat gáttaður á framferði bankadrengjanna og missti alla trú á þeim sem stjórna.

Markmiðasetning, ákveðni og kraftur er það sem við þurfum. Ekki vælukjóa.

Haraldur Haraldsson, 27.5.2009 kl. 19:31

7 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Heyr, heyr Marinó ég kýs þig sem aðgerðastjóra endurreisnarinnar.  Ef það er ennþá möguleiki á endurreisn. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 28.5.2009 kl. 01:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 1680023

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband