Leita í fréttum mbl.is

Verðbólga yfir 20% í janúar - í samræmi við mína spá fyrir rúmum mánuði

Í færslu hér 1. október sl. (Skilar sér í vel yfir 20% verðbólgu og 25% stýrivöxtum á næstu mánuðum), þá spáði ég því að verðbólga gæti farið í 24,5% í byrjun næsta árs.  Nú heyrist mér að Seðlabankinn spái 23,9%.  Aðrir hafa ekki viljað spá þetta mikilli verðbólgu fyrr.  Nú er spurning hvort ég verði líka sannspár um stýrivextina, en ég á síður von á því, þar sem við lækkunina í 12% um daginn, þá kom fram vilji hjá Seðlabankanum að vera með raunstýrivexti neikvæða.  Ég held að það hljóti að verða raunin, meðan verðbólgan toppar á næstu mánuðum.
mbl.is Spá 10% atvinnuleysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú mátt ekki líta framhjá einu. Síðan í vor hefurðu spáð allavega tölum um verðbólgu. Hér er færsla síðan 6.maí s.l. þar sem þú spáir 18-20% verðbólgu. Hér er síðan færsla síðan 27.ágúst s.l. þar sem verðbólga mælist 14,5%. Þar segirðu að toppnum sé náð og verðbólga muni lækka á næstu mánuðum. Síðan kemur 1.okt þessi færsla, sem þú vísar til í þessari færslu, um að verðbólgan skili sér í vel yfir 20% á næstu mánuðum.

Ég er alls ekki að gera lítið úr þessum færslum þínum. Hef lesið þetta blogg í nokkurn tíma og haft gaman af, ásamt því að vera mjög oft sammála því sem þú segir. Pælingarnar varðandi verðbólguna eru mjög fínar og djúpar, miklu ítarlegri en hjá flestum bloggurum. 

Vildi bara benda á að þú ert að falla í sömu gildru og svo margir þessa dagana og vikurnar, þ.e. að hrósa eigin skrifum en lítur framhjá þínum eigin skrifum sem eru á öndverðu meiði og jafnvel nýlegri. 

Andri Valur (IP-tala skráð) 6.11.2008 kl. 15:48

2 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Andri Valur, þetta eru alveg réttmætar ábendingar, en skoðum betur það sem ég skrifaði:

..mun 12 mánaðaverðbólgan mjög líklega fara að lágmarki upp í 14% síðsumars og talsverðar líkur eru á 17-18% verðbólgu..

..Ef skoðuð er þróunin þegar verðbólgan var síðast eitthvað í líkingu við það sem hún er núna (þ.e. árið 1988-89), þá má jafnvel gera ráð fyrir allt að 20% verðbólgu í vetrarbyrjun..

Ég mat í vor hárrétt að verðbólgan miðað við gengislækkunina í mars myndi toppa síðsumars í yfir 14%.  Greiningardeildirnar töldu verðbólguna toppa í mun lægri tölu.  Ég sagði líka í vor að ef þróunin yrði með haustinu eins og gerst hefði áður í verðbólguhrynum, þá gæti verðbólga orðið 20% í vetrarbyrjun. Engin af greiningardeildunum taldi þetta það líklegt að þær birtu það.

Það leit út fyrir í ágúst að það versta væri yfirstaðið og ég vonaði það.  Enda kom í ljós að verðbólgumæling fyrir september var lægri en fyrir ágúst.  Í september féll íslenska krónan um 18% og það breytti öllu um að toppnum væri náð.  Nú varð að taka inn nýjar forsendur í "spálíkanið" og niðurstaðan var strax að verðbólgan gæti farið hátt í 25% í janúar, miðað við ákveðna hegðun.  Það skal tekið fram að sú hegðun gekk ekki eftir í október.  Ég yfirskaut verðbólguna verulega, þar sem ég áttaði mig ekki á því að innflutningur hreinlega lagðist af.  Það sem var flutt inn hækkaði ekki eins mikið og búast mátti við, sem getur þýtt tvennt a) að fyrirtæki munu ekki hleypa verðbólgunni út í verðlagið; b) eftir er að hleypa verðbólgunni út í verðlagið.  Innflutningur er ennþá í frosti og því má búast við að verðbólgutölur fyrir nóvember verði jákvæðari en efni standa til. En það veltur á því hve mikið krónan mun veikjast áður en styrkingarferlið hefst.

Ég vonast auðvitað til þess að verðbólgan fari ekki upp í þessar hæðir.  Ég viðurkenni alveg að ég átti ekki von á því að krónan sykki eins og steinn í september, þannig að ég tók slíkt ekki inn í útreikninga mína.  Ég gerði aftur ráð fyrir að það gæti komið bakslag og það gekk því miður eftir.  En til að vera nákvæmari í framtíðinni, þá skal ég setja spár mínar upp sem fall af gengisvísitölu og byrja hér og nú.  Ég tel að miðað við efitrfarandi gengisvísitölu verði verðbólga í janúar séu sem hér segir:

  • Gengisvísitala toppar fljótlega í 230, verðbólga verður 16 - 19% í janúar
  • Gengisvísitala toppar í 240 seinni hluta mánaðar, verðbólga verður 20 - 22% í janúar
  • Gengisvísitala toppar í 250 í nóvember, verðbólga verður 22 - 25% í janúar
  • Gengisvísitala toppar í 280 í fyrri hluta desember, verðbólga verður 25 - 27% í janúar
  • Gengisvísitala toppar í 300 eða meira í desember verðbólga verður yfir 27% í febrúar

Marinó G. Njálsson, 6.11.2008 kl. 17:03

3 identicon

Er ekki svona bjartsýnn eins og þú, spái 40% lækkun á krónunni frá fyrstu dögunum þannig að ég held að GVT falli strax niður í 300-320 á innan við viku, síðan verði hún á því róli og gæti jafnvel hækkað háð traustri efnahagsstjórn en ef ekki tekst að koma böndum á ríkisútgjöldum. Við verðum metin á "hard facts" ekki einhverjum "mjúkum aðgerðum". Ef mjúku aðgerðirnar verða á kostnað ríkisins mun það gjörsamlega grafa undan krónunni.

Það koma til með að flæða fleirri hundruð miljarðar út úr hagkerfinu á stuttum tíma.

Gunn (IP-tala skráð) 6.11.2008 kl. 18:15

4 identicon

Hárrétt. Forsendur eru búnar að breytast margoft og spáin þar af leiðandi líka. Það er líka rétt sem ég sagði að það er misræmi í spánum, eins og þú hefur útskýrt, og þú hampar frekar réttu spánum en þeim röngu. Sama og svo margir eru að lenda í.

Engu að síður þá vil ég hvetja þig til að halda áfram á þessari braut. Þessar vangaveltur varðandi verðbólguna eru mjög skemmtilegar og áhugaverðar og ekki síst mjög vel rökstuddar og þar af leiðandi mjög raunhæfar, hver á sínum tíma.

Hvað varðar gengisvísitöluna þá er ég ansi hræddur um að það sé nokkuð til í því sem Gunn segir, að gengisvísitalan taki MJÖG snarpa dýfu um leið og það opnast fyrir gjaldeyrisviðskipti til og frá landinu (hvenær sem það svo verður - allavega ekki á mánudaginn fyrir löngu eins og Geir sagði eftirminnilega).

Annars tek ég undir með Gylfa Zoega og Jóni Dan. um að ráðamenn þjóðarinnar eigi að gleyma verðbólgu og almennri hagstjórn um stundu og einbeita sér að neyðarlögum til að halda efnahagslífinu gangandi og koma í veg fyrir fjöldagjaldþrot. Hverjum er ekki sama hver verðbólgan er ef sá hinn sami hefur misst ALLT?

Andri Valur (IP-tala skráð) 6.11.2008 kl. 19:20

5 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Gunn, ég hefði alveg getað verið fleiri senario en vildi ekki hafa þetta of langt.

Marinó G. Njálsson, 6.11.2008 kl. 19:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.12.): 1
  • Sl. sólarhring: 82
  • Sl. viku: 276
  • Frá upphafi: 1680564

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband