Leita í fréttum mbl.is

BBC breytir frétt sinni um "árásina" á íslenska hagkerfið

Það er fróðlegt að sjá, að BBC hefur breytt frétt sinni um "Icelandic economy 'under attack'".  Fyrr í dag var í þeim hluta fréttarinnar þar sem fjallað er um áhyggjur, sagt að íslensku bankarnir hefðu engan aðgang að lánsfé, en nú er búið að breyta textanum og segir í staðinn:

The three banks have funded expansion overseas by selling debt but the rise in the cost of credit worldwide has raised concern that their strategy could falter.

But Fitch said that Iceland's banks had sufficient liquidity and were able to operate without recourse to global capital markets for "some months to come".

Það er talsvert mikill munur á þessu, en ljóst er að BBC fellur eins og fleiri í þá gildru að bera ekki umfjöllun sína um íslenska hagskerfið undir aðila sem hafa rétta vitneskju um stöðu mála.  Spurning er bara hvort hin ranga frétt hafi náð að fara víða. 

Eftir stendur samt í fréttinni hin sérkennilega fullyrðing matsfyrirtækjanna að íslensku bankarnir séu í einhverri krísu og þurfi hjálp ríkisvaldsins.  Ég veit ekki til þess að bankarnir hafi óskað eftir slíkri hjálp og veit ekki betur en að búið sé að fjármagna starfsemi þeirra langt fram á næsta ár. Þessi fullyrðing er svo að auki í andstöðu við tilvitnunina hér að ofan.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Heiðdal

Þú ert bara plokkfiskur eins og ég.

Björn Heiðdal, 2.4.2008 kl. 19:02

2 Smámynd: Loopman

Bankarnir hér eru með allt niðrum sig PR wise.  En það er þess virði að taka mark á miðlum eins og BBC, Financial Times og Observer til að nefna nokkra. Það sem mér finnst undarlegast er þessi afneitun Íslendinga um að það geti hugsanlega verið eitthvað til í þessu hjá þessum erlendu miðlum.

Menn eru alltaf að halda að allt sé best hér, og líkja sér sjálfa við hetjur ef einhver helvítis banki græðir pening á okkur aumingjunum. Þegar ég bjó í Bretlandi var mikið talað um Ísland og kaup á fyrirækjum þar. Oft vel en oft illa. Björgólfur sagði nota mafíupeninga og þannig, en enginn svaraði fyrir sig.

Where there is smoke, there is fire.

Loopman, 2.4.2008 kl. 23:14

3 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Loopman, það er rétt að þar sem er reykur er almennt eldur, en spurningin er hver kveikti eldinn?  Hugsanlega hafa bankarnir gert það með opinni útlánastefnu eða djafri útrás.  En það má ekki gleyma því að fyrir 14 mánuðum þá setti matsfyrirtækið Fitch þessa banka í efsta flokk með fínustu og öflugustu bönkum heims.  Ekki kvartaði fólk þá.  Þeir hafa verið að greiða háar upphæðir í skatta af hagnaði sínum og starfsfólk þeirra af launum sínum.  Ekki hefur verið kvartað undan því.  Á síðasta ári fjölgaði starfsmönnum bankanna um 10 á dag.  Ekki var kvartað undan því.  En um leið og eitthvað gefur á bátinn, þá kemur í ljós að ekki eru allir viðhlæjendur vinir.

Marinó G. Njálsson, 3.4.2008 kl. 10:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 1680019

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband