25.1.2012 | 07:52
Hagfræðistofnun ályktar vitlaust út frá tölum
Eins og ég sýni fram á í færslu í gær, þá dregur Hagfræðistofnun ranga ályktun út frá þeim upplýsingum sem hún vinnur með. Er alveg með ólíkindum hvað niðurstaða stofnunarinnar er gjörsamlega á skjön við fyrirliggjandi upplýsingar. Langar mig að birta niðurstöðu kafla færslunnar, en hvet fólk til að kynna sér efni hennar:
Er svigrúmið fullnýtt?
Jæja, þá er komið að því að bera saman tölur. Stóri dómur Hagfræðistofnunar er að svigrúmið sé fullnýtt þar sem Samtök fjármálafyrirtækja segja að svo sé eða því sem næst. Skýring Hagfræðistofnunar er sem hér segir:
- Eftirgjöf á íbúðalánum samkvæmt 110% leiðinni er 31,3 ma.kr. hjá fjármálafyrirtækjum! Ath. að inni í þeirri tölu eru líka sparisjóðirnir og lífeyrissjóðir, þannig að talan hjá bönkunum er lægri. Síðan bætir stofnunin við að 4,6 ma.kr. hafi verið færðir niður hjá Íbúðalánasjóði.
- Niðurfærsla vegna sértækrar skuldaaðlögunar er 6 ma.kr. - Hér er hvorki greint á milli hvort skuldirnar eru íbúðalán eða aðrar skuldir né hvað heyrir undir bankana og hvað undir önnur fyrirtækin innan SFF.
- Umreikningur á gengislánum vegnahæstaréttardóma nam að sögn SFF 101 ma.kr. Þessi tala er hvergi sannreynd og aftur er ekkert sagt til um hvernig skiptingin er milli fjármálafyrirtækja.
- Samtals gerir þetta 144 ma.kr. sem búið er að færa niður íbúðalán hjá fjármálafyrirtækjum, íbúðalánasjóði og lífeyrissjóðum.
Við lok þessarar upptalningar hjá Hagfræðistofnun segir í lok 2. kafla á bls. 11:
Samanlagðar niðurfærslur bankanna eru því nokkuð umfram þann mun sem fram kemur á virði íbúðalána í september og október 2008. Af því má ráða að það svigrúm sem verið hafi til að færa niður íbúðalán hjá bönkunum hafi þegar verið nýtt og ríflega það. Sérstaklega á þetta við um gengisbundin lán, enda var við stofnun nýju bankanna ekki gert ráð fyrir öðru en að þau lán væru lögleg.
Skoðum þetta nánar:
- Bankarnir þrír fengu afslátt upp á 95 ma.kr. vegna íbúðalána, þar af 71 ma.kr. vegna verðtryggðra lána og 24 ma.kr. vegna gengistryggðra lána.
- Bókfært virði gengistryggðra íbúðalána bankanna þriggja var 103,1 ma.kr. í lok september 2008, af þeim urðu 14 ma.kr. lán eftir í gömlu bönkunum, þannig að lán að bókfærðu virði 89 ma.kr. voru færð yfir í tveimur færslum.
- Öll fjármálafyrirtæki, Íbúðalánasjóður og lífeyrissjóðir hafa fært niður lán (önnur en bílalán) um 144 ma.kr. og þess vegna er svigrúmið búið.
Ef þetta er fagmennskan sem viðgengst hjá Hagfræðistofnun, þá legg ég til að skipt verði um starfslið.
- Niðurfærsla sem átt hefur sér stað á verðtryggðum íbúðalánum bankanna er í allra hæsta lagi 37 ma.kr., en líklega umtalsvert lægri. Ég ætla leyfa mér að giska á innan við 30 ma.kr. Eftir eru því ríflega 40 ma.kr.
- Af þessum á hámarki 30 ma.kr. var líklega hluti vegna lána voru í eigu KMIIF og önnur sem fluttust til Íbúðalánasjóðs. Sá hluti niðurfærslunnar verður því ekki tekinn af svigrúmi bankanna, heldur lendir hann á eigendur lánanna, þ.e. ÍLS og KMIIF. Sé þetta í réttum hlutföllum, þá skrifast 12 ma.kr. á aðra eigendur en bankanna og bankarnir hafa því aðeins nýtt 18 ma.kr. af svigrúminu í að lækka verðtryggð lán í sinni eigu.
- Gengisbundin lán sem færð voru yfir voru að bókfærðu virði 89 ma.kr. Ekki er nokkur möguleiki að þau standi fyrir 101 ma.kr. niðurfærslu. Bankarnir fengu, að sögn Hagfræðistofnunar, 24 ma.kr. í afslátt, en samkvæmt skýrslu fjármálaráðherra fengu þeir að minnsta kosti 44,5 ma.kr. í afslátt. Hagfræðistofnun gerir heldur enga tilraun til að reikna vaxtahagnað bankanna vegna áhrifa Árna Páls laganna, en í mörgum tilfellum þá fengu lántakar nánast enga lækkun á lánum sínum. Hvort sem bankarnir notuðu alla þessa 24 ma.kr. eða ekki þá er allt umfram 24 ma.kr. utan svigrúmsins. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði höfuð áherslu á að ekki mætti færa afslætti á milli lánaflokka og því má ekki færa afgang af afslætti vegna verðtryggðra lána yfir á gengisbundin lán.
Mín niðurstaða er því að svigrúmið hefur ekki verið fullnýtt. Raunar er langur vegur í að það hafi verið fullnýtt. Miðað við það sem að ofan segir, þá eru bankarnir líklegat búnir að nýta annars vegar 24 ma.kr. (mér finnst talan vera of há) af svigrúmi vegna gengisbundinna lána og 18-19 ma.kr. vegna verðtryggðra lána. Alls hafa bankarnir því nýtt 42-43 milljarða af svigrúminu og eftir eru 52-53 milljarðar króna.
Eftir er að nýta 52-53 milljarða af svigrúminu eða um 55% af því!
Búnir að nota svigrúmið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Skuldamál heimilanna | Breytt 6.12.2013 kl. 00:43 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 1680019
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 34
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Tenglar
Upplýsingaöryggi og persónuvernd
- Betri ákvörðun ráðgjafarþjónusta Marinós G. Njálssonar
- CISA, CISM, COBIT, Val IT
- Staðlaráð Íslands
- Heimasíða Persónuverndar
Hagsmunabarátta
- Hagsmunasamtök heimilanna
- Hugmyndir að úrræðum fyrir almenning
- Færa þarf höfuðstól lánanna niður
- Fólk þarf leið út úr fjárhagsvandanum
- Innlegg í naflaskoðun og endurreisn
- Er raunhæft að afnema verðtrygginguna eða setja henni skorður?
- Aðgerðaráætlun fyrir Ísland
- Hinn almenni borgari á að blæða
- Leið ríkisstjórnarinnar er röng
- Innantómar aðgerðir til stuðnings heimilunum
- Tillögur talsmanns neytenda
- Á hverju munu Íslendingar lifa?
- Verðbólga sem hefði geta orðið
- Aðgerða þörf strax - Tillaga að aðgerðahópum
- Mikilvægast að varðveita störfin
- Hvar setjum við varnarlínuna?
- 385 milljarða til bankanna og reikningurinn til heimilanna
- 2009 gengið í garð, ár endurreisnar, en hvernig endurreisn viljum við?
- Jöklabréf, erlend lán og vaxtaskiptasamningar
Færsluflokkar
- Áhættustjórnun
- Bloggar
- Dægurmál
- Efnahagsmál
- Endurreisn
- Ferðalög
- Ferðaþjónusta
- Heimspeki
- HRUNIÐ
- Icesave
- Íbúðalánasjóður
- Íþróttir
- Lánamál
- Leiðsögn
- Lífeyrissjóðir
- Lífspeki
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Neytendavernd
- Persónuvernd
- Skuldamál heimilanna
- Snjóhengjur
- Stjórnmál og samfélag
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Upplýsingaöryggi
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Það virðist vera sem allt sé gert til að blekkja augu almennings í þessu og er það ljótt, ljótt vegna þess að í eðli hvers og eins vilja allir standa sig...
Ég get ekki séð að þetta eigi eftir að enda nema á einn veg og það er uppstokkun á öllu þessi kerfi okkar og því fyrr sem farið verður í það því fyrr kemst festa og stöðugleiki hér á.
Stokka verður þannig upp að það verður að núllstilla allt og byja upp á nýtt fjármálalega séð hér á Landi og það gerum við ekki með evru eða dollar eða annarri mynt heldur okkar eigin krónu sem við erum með tengda við vinnustundir...
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 25.1.2012 kl. 09:00
Tek undir með Ingibjörgu, en ef við ætlum að nota krónuna áfram verður að tryggja það að allir geti notast við sömu krónuna. Vinnuveitendur geta ekki notast við óverðtryggða krónu til að greiða laun á með fjármálastofnanir fá að notast við verðtryggða krónu til að innheimta neytendalán. Með þannig fyrirkomulagi eru í raun tveir gjaldmiðlar í landinu, alveg eins og á Kúbu, sem notast við "þjóðarpesó" (national peso) fyrir innlenda og sérstakan peso (convertible peso) fyrir ferðamenn og ríkisstarfsmenn að hluta. Convertible pesoinn er 25 sinnum verðmeiri en national peso.
Verðtryggingarbáturinn er sokkinn en ríkisstjórnin ætlar ekki að hleypa neinum í björgunarbátana heldur lemur á fingurna með árunum.
Erlingur Alfreð Jónsson, 25.1.2012 kl. 10:27
En að færa vísitöluna aftur að áramótum 2007 - 2008???
Hvernig kæmi það út?
Margrét (IP-tala skráð) 25.1.2012 kl. 12:27
Rétt er að geta þess að tillögur HH ná til allra lántakenda, líka hjá ÍLS - en eins og við höfum margbent á, þá viljum við að afslátturinn gangi áfram til heimilana, líka þeirra sem eru með lán hjá ÍLS og það er til þess gert að draga bankana til ábyrgðar fyrir hrunið auk þess sem nauðsynlegt er að færa til baka þá eignatilfærslu sem nú þegar hefur átt sér stað frá lántakendum til banka, innistæðueigenda, lífeyrissjóða.
Lífeyrissjóðirnir eru beinir eða óbeinir eigendur skuldanna, og við höfum líka bent á að eignaupptakan í formi verðbóta sem færst hafa til lífeyrissjóðanna er óeðlileg og ekki réttlætanleg og hana ber að leiðrétta - færa oftökuna til baka.
Hér er tengill á HHÍ skýrslu
http://ruv.is/files/skjol/skyrsla_hagfraedistofnunar_hi.pdf
og hér er tengill á athugasemdir HH
Andrea J.Ólafs. (IP-tala skráð) 25.1.2012 kl. 15:05
Tek undir með ykkur öllum. Og takk Marínó fyrir að standa vaktina með okkur þjóðinni.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.1.2012 kl. 15:13
Algjörlega sammála þessu Marinó. Það er alveg ljóst að hagfræðistofnunin mun aldrei koma með álit sem er lántakendum í hag. Þeir eru að vinna fyrir fjármálafyrirtæki og hina svokölluðu kröfuhafa.
Eyþór Einarsson (IP-tala skráð) 25.1.2012 kl. 18:00
Æðstu stjórnendur Háskóla Íslands hafa að mínu mati aðeins um tvennt að velja eftir þennan illa og ljóta afleik. Segja af sér eða hreinsa gersamlega út. Þarna er enginn meðalvegur fyrir æðstu menntastofnun landsins, engin þjóð finnst sem hefur efni á einni slíkri. Enn einu spillingar- og flokksbælinu reknu fyrir skattpeninga almennings undir flokkinum opinber stofnun. Virðing almennings á Alþingi er nánast orðin að minna en engu og mér sýnist Háskólinn vera á hraðferð í sömu ruslafötu sögunnar. Inniheldur orðið lítið annað en fala fræðinga sem að auki eru á launum skattgreiðenda. Hugsanlega er þá lausnin að taka þessa stofnun af fjárlögum, allir starfsmenn hennar geta þá selt sig óhikað hverjum sem er undir þekktum formerkjum.
sr (IP-tala skráð) 25.1.2012 kl. 20:00
Það er gaman að sjá þessar tvær greinar eftir Sigurvin B. Sigurjónsson. -Það er að koma ungt fólk sem getur hjálpað til við að leiða okkur
út úr fjármálaöngþveitinu.
http://www.herad.is/y04/1/2012-01-fjarmalakerfid.htm-Jónas Gunnlaugsson (IP-tala skráð) 26.1.2012 kl. 01:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.