30.5.2010 | 14:28
En VG tapaði 39,4% af fylgi sínu á fjórum stærstu stöðunum
Það er ótrúlegt að menn skuli sífellt vera að finna rökræna afsökun á þeim rassskell sem flokkarnir fengu. Tölurnar tala sínu máli. Í tilfelli VG, þá fékk flokkurinn 39,4% færri atkvæði í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði og Akureyri en flokkurinn fékk í síðustu kosningum. Já, tæplega 40% færri kusu flokkinn núna í þessum sveitarfélögum, en gerðu síðast. Þá kusu 13.206 flokkinn, en núna aðeins 8.002. Það stórmerkilega er að þetta kostaði flokkinn bara tvo menn og hann hélt fjórum.
Fyrir aðra flokka eru þessar tölur:
Framsókn fer niður um 40,8% eða úr 7.628 í 4.519, tapar 1 manni, en heldur tveimur
Sjálfstæðisflokknum tapar 28,4%, fer úr 40.579 í 29.050, tapar 4 mönnum, en heldur 15
Samfylkingin missir 35%, fer úr 31.004 í 20.151, tapar 6 mönnum, en heldur 12.
Steingrímur: VG bætti víða við sig | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 0
- Sl. sólarhring: 87
- Sl. viku: 275
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 34
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Tenglar
Upplýsingaöryggi og persónuvernd
- Betri ákvörðun ráðgjafarþjónusta Marinós G. Njálssonar
- CISA, CISM, COBIT, Val IT
- Staðlaráð Íslands
- Heimasíða Persónuverndar
Hagsmunabarátta
- Hagsmunasamtök heimilanna
- Hugmyndir að úrræðum fyrir almenning
- Færa þarf höfuðstól lánanna niður
- Fólk þarf leið út úr fjárhagsvandanum
- Innlegg í naflaskoðun og endurreisn
- Er raunhæft að afnema verðtrygginguna eða setja henni skorður?
- Aðgerðaráætlun fyrir Ísland
- Hinn almenni borgari á að blæða
- Leið ríkisstjórnarinnar er röng
- Innantómar aðgerðir til stuðnings heimilunum
- Tillögur talsmanns neytenda
- Á hverju munu Íslendingar lifa?
- Verðbólga sem hefði geta orðið
- Aðgerða þörf strax - Tillaga að aðgerðahópum
- Mikilvægast að varðveita störfin
- Hvar setjum við varnarlínuna?
- 385 milljarða til bankanna og reikningurinn til heimilanna
- 2009 gengið í garð, ár endurreisnar, en hvernig endurreisn viljum við?
- Jöklabréf, erlend lán og vaxtaskiptasamningar
Færsluflokkar
- Áhættustjórnun
- Bloggar
- Dægurmál
- Efnahagsmál
- Endurreisn
- Ferðalög
- Ferðaþjónusta
- Heimspeki
- HRUNIÐ
- Icesave
- Íbúðalánasjóður
- Íþróttir
- Lánamál
- Leiðsögn
- Lífeyrissjóðir
- Lífspeki
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Neytendavernd
- Persónuvernd
- Skuldamál heimilanna
- Snjóhengjur
- Stjórnmál og samfélag
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Upplýsingaöryggi
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Sæll Marínó og takk fyrir oftast skýra sýn og gott blogg. Tölurnar sem nefnir eru vafalaust réttar, en lýsa fáu. Vinstra fólk er t.d. mikið gagnrýnna á sitt samfélag en það hægra sem hugsar meira um sýna eigin takmörkuðu hagsmuni. Yngra fólk sem kaus vinstri til alþingis vippar sér hiklaust á Besta og næst besta núna heldur en Sjallar sem er ekki pólitískur flokkur heldur hagsmunasamtök sem stunda mafísk vinnubrögð.
Gunnar Gunnarsson (IP-tala skráð) 30.5.2010 kl. 14:39
Við getum munað líka að fjöldi fólks er hvorki hægri né vinstri og kaus kannski VG eins og ég gerði fyrir væntanlegan heiðarleik og fyrir sjálfstæði okkar gegn AGS, EU, Icesave. VG laug og sveik og þeir studdu stórhættulega Samfylkinguna.
Elle_, 30.5.2010 kl. 17:27
Ég á bágt með að sjá glóru í þessum samanburði eins og hann er settur fram hér að ofan.
Að bera saman hráan atkvæðafjölda á milli kosninga er samanburður á eplum og appelsínum. Í millitíðinni hefur fjöldi fólks á kjörskrá í þessum sveitarfélögum breyst auk þess sem kjörsókn er önnur nú en þá.
Getur þú skýr það Marinó hvort að þú tekur tillit til þessara breytinga?
Pétur Maack (IP-tala skráð) 30.5.2010 kl. 22:37
Er hægt að nota akvæðamagn sem raunhæfan samanburð. Því t.d. í Kópavogi fjölgar kjósendum um einhver þúsund. Meira að marka hlutfall (%) af greiddum atkvæðum.
Annars finnst manni það furðulegt þegar talað er um hrun flokka t.d. Samfylkingu í Kópavogi sem missir innan við 3% og þar með mann. Sjálfstæðisflokkur missir rúm 14% en missir þó ekki nema 1 mann. En í Kópavogi minnstakosti eru það 2 framboð sem eru held ég félaghyggju framboð bæði sem taka til sín fylgi sem annars hefði flætt frá Sjálfstæðisflokknum til Samfylkingar og Vg. En það skipti kannski ekki máli því þau koma til með að mynda meirihluta með þeim flokkum..
Magnús Helgi Björgvinsson, 30.5.2010 kl. 22:41
PS
Það er heldur ekki rétt út frá þessum tölum að VG tapi 39 prósentum - hann tapar 60,6% þ.e. mismuninum á 13.206 og 5.204
tek annars undir að slík útreið hefur furðu lítil áhrif á fulltrúafjöldann. Það helgast þó af því að þeir voru ekki margir fyrir. Þessir fulltrúar sem detta út á Akureyri og Reykavík eru jú 50% fækkun fulltrúa
Pétur Maack (IP-tala skráð) 30.5.2010 kl. 22:42
VG er ekki búinn að standa sig á Alþingi.
Kemur í veg fyrir atvinnu uppbyggingu og hann er klofinn í tvennt.
Ekki beint traustvekjandi.
Sleggjan og Hvellurinn, 30.5.2010 kl. 22:50
Pétur, ég sló óvart inn mismuninn í staðinn fyrir atkvæðamagnið núna. Er búinn að leiðrétta það.
Marinó G. Njálsson, 31.5.2010 kl. 00:01
olrætií
Pétur Maack (IP-tala skráð) 31.5.2010 kl. 07:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.