Leita í fréttum mbl.is

Gísla Tryggvason í 1. sćti

Ţegar Gísli Tryggvason hringdi í mig fyrir nokkrum vikum og bar undir mig ţá hugmynd sína ađ bjóđa sig fram til 1. sćtis í prófkjör Framsóknarflokksins í Kópavogi, ţá ákvađ ég ađ hvetja hann til verksins.  Ekki ađ ég vćri flokksbundinn framsóknarmađur, en sem Kópavogsbúi til rúmlega 10 ára er ég búinn ađ fá leiđ á ţví stjórnarfari sem ríkt hefur í bćnum undanfarin ár.  Taldi ég og tel enn ađ vissa siđbót vanti í bćjarmálapólitíkina.  Hvađ eftir annađ hafa á síđustu fjórum árum, og raunar líka á árunum ţar á undan, komiđ upp atvik sem hafa valdiđ ţví ađ mađur efast um heilindi ţeirra sem hafa veriđ viđ stjórnvölin.

Ţađ var í októberbyrjun 2008, ađ ég fékk símtal.  Sá sem hringdi kynnti sig sem Gísli Tryggvason, talsmađur neytenda.  Hann hafđi lesiđ bloggfćrslu eftir mig međ tillögu um úrbćtur fyrir lántaka og óskađi eftir ađ fá ađ nota hana í tillögupakka sem hann vildi senda félagsmálaráđherra.  Ég veitti honum leyfi til ţess og fóru tillögurnar inn 7. október eđa daginn eftir "Guđ blessi Ísland" ávarp forsćtisráđherra.  Eftir ţetta voru viđ Gísli í talsverđum samskiptum og hófst ţá fyrst óformlegt og sem ţróađist yfir í formlegt samstarf okkar og síđar fleiri ađila um úrbćtur í lánamálum heimilanna og réttarbćtur.  M.a. hittust á fundi hjá talsmanni neytenda á fullveldisdaginn 1. desember 2008 viđ tveir, Ţórđur Björn Sigurđsson (síđar formađur Hagsmunasamtaka heimilanna), Friđrik Ó Friđriksson (núverandi formađur HH) og Arney Einarsdóttir (gjaldkeri HH) ásamt fleiri ađilum.  Hvort ţađ er ţessum fundi ađ ţakka eđa af annarri ástćđu, ţá urđu Hagsmunasamtök heimilanna til um miđjan janúar 2009.  Ég hef oft hugsađ til ţeirrar tilviljunar, ađ Gísli skyldi hafa bođiđ okkur, hvert úr sinni áttinni, á ţennan fund.

Ţessi fundur varđ líka upphaf af samstarfi talsmanns neytenda viđ HH og hefur ekki boriđ skugga á ţađ samstarf.  Hefur veriđ alveg ómetanlegt ađ geta leitađ til Gísla (og annarra líka) um ýmis álitaefni.  Hann hefur komiđ á félagsfundi og alltaf veriđ tilbúinn.  Saman mynduđum viđ síđan međ Neytendasamtökunum, Húseigendafélaginu, Félagi fasteignasala, Búseta á Norđurlandi og Birni Ţorra Viktorssyni svo kallađan Ákallshóp, sem stóđ fyrir ákalli til stjórnvalda um úrbćtur fyrir heimilin.  Ţó ekki hafi tekist ađ ná öllum málum hópsins í gegn, ţá erum viđ langt komin niđur listann og dropinn holar steininn.

Ţađ er sem sagt í gegn um ţetta samstarf, sem ég ţekki Gísla.  Hefur hann á ţessum tćpum 18 mánuđum sýnt mér og sannađ, ađ hann tekur á málum af festu og mikilli skipulagningu.  Stundum finnst mér hann fara hćgar yfir en ég hefđi kosiđ, en líklegast lýsir ţađ betur mér en honum.

Sem áhorfandi ađ bćjarmálapólitíkinni hér í Kópavogi undanfarin 10 ár eđa svo, ţá hef ég tekiđ eftir ţessum leiđigjörnum flokkadráttum sem myndast hafa um íţróttafélögin í bćnum.  Sérstaklega innan Framsóknarflokksins.  Nú sćkjast ţrír ađilar um 1. sćti hjá Framsókn, Ómar Stefánsson yfirlýstur HK-ingur sem hefur ekkert fariđ leynt međ ţađ, forstöđumađur íţróttamannvirkja og hatađur af ákveđnum hópi Blika, Einar Kristján Jónsson, formađur knattspyrnudeildar Breiđabliks sem virđist vera svo illa liđinn af ákveđnum hópi HK-inga ađ talađ er um klofning í flokknum nái hann fyrsta sćti, og loks Gísli Tryggvason sem hefur haldiđ sig gjörsamlega fyrir utan ţennan ríg á milli félaganna.  Ţegar Gísli hringdi í mig á sínum tíma, ţá bađ ég hann ađ gćta ţess vel, ađ fara ekki í skotgrafir íţróttafélaganna.  Fólk vćri búiđ ađ fá leiđ á ţví.  Undanfarna daga hafa menn greinilega dregiđ fram stórskotaliđiđ, ţví sprengjurnar hafa flogiđ á milli herbúđa Einars og Ómars.  Hefur ţađ sannfćrt mig enn frekar ađ Gísli er rétti mađurinn til ađ leiđa lista Framsóknarflokksins í vor. 

Ég vona ađ Gísli hljóti 1. sćtiđ, ekki vegna pólitískrar stöđu Framsóknar í Kópavogi, heldur fyrir bćjarbúa.  Kópavogur ţarf fólk í bćjarmálin sem getur tekiđ á málum bćjarfélagsins af hlutleysi, réttsýni og festu.  Einkavinavćđing undanfarinna ára er á enda.  Pot og prettir til ađ koma höggi á embćttismenn bćjarins í vitlausum flokki eru á enda.  Ţađ á ekki ađ skipta máli hvort skólastjórinn er sjálfstćđismađur eđa krati, allir skólar eiga ađ fá ţađ sem ţeim ber.  Allir verktakar eiga ađ sitja viđ sama borđ um framkvćmdir, hvort sem ţćr snúast um malbik, eftirlit, auglýsingar eđa eitthvađ allt annađ.  Ákvörđunartaka á ađ byggja á gegnsći, réttsýni og ađ besti kosturinn sé valinn međ hagsmuni bćjarins í huga.  Ég treysti Gísla til ađ standa vörđ um ţađ.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríđur Bjarnadóttir

Ef ég byggi í Kópavogi ţá hefđi ég ekki hikađ viđ ađ ganga úr mín flokki og í Framsóknar flokkinn til ađ styđja Gísla í 1. sćtiđ. Ţađ hefđi ég gert fyrir Kópavogsbúa í heild sinni. Ég er almennt séđ á móti slíku en ţarna stendur bara svo sérstaklega á.

Hólmfríđur Bjarnadóttir, 27.2.2010 kl. 01:26

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 1678165

Annađ

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband