Leita í fréttum mbl.is

Þingræðið á bak við múr lögreglumanna

Á eyjunni er athugasemd þar sem segir að lýðræði sé bak við múr lögreglumanna.  Þetta er náttúrulega ekki rétt. 

Þingræðið er bak við múrinn, en lýðræðið fyrir framan hann.  Fólk er að nýta lýðræðislegan rétt sinn til að mótmæla því ástandi sem hefur skapast.  Inni í þinghúsinu er þingræðið að verki.  Þeir sem voru kosnir í alþingiskosningum fyrir tæpum tveimur árum hanga á sætum sínum út í rauðan dauðann.  Skilur þingheimur ekki, að hann er búið að missa traust almennings.  Skilja þingmenn Sjálfstæðisflokk og Samfylkingar ekki, að fólk vill breytingar.  Fólk vill fá að nýta lýðræðislegan rétt sinn og kjósa upp á nýtt.  Fólk er orðið langeygt að bíða eftir tillögum og aðgerðum að hálfu ríkisstjórnarinnar sem kemur heimilunum og fyrirtækjunum til hjálpar.  Fólk er orðið þreytt á gjaldþrotastefnu ríkisstjórnarinnar.  Það er orðið þreytt á endanlausum frásögnum af getuleysu þeirra, sem hanga á sætunum sínum, í undanfara og eftirmála falls bankanna.  Það furðar sig á því að ráðamenn og embættismenn sem sváfu á vaktinni og sigldu þjóðarskútunni í strand telji sig vera hæfasta til að sigla skútunni af strandstað.  Það furðar sig á upplýsingaskorti og því leynimakki sem virðist vera í gangi.
mbl.is Piparúði og handtökur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ævar Rafn Kjartansson

Það er gott að heyra þetta en framsóknarmenn þurfa samt sem áður meira en nýtt kjöt.

Ævar Rafn Kjartansson, 20.1.2009 kl. 23:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband