21.5.2008 | 16:59
Fjölgar brotum við hert eftirlit - ótrúleg rökvilla
Hún er kostuleg fullyrðingin sem sett er fram í þessari frétt um afbrotatölfræði lögreglunnar:
Hegningarlagabrotum fækkaði í apríl miðað við sama mánuð í fyrra en umferðalagabrotum fjölgaði. Rekja má fjölgunina að miklu leyti til hraðakstursmyndavéla.
Hvernig hafa menn hugmynd um það hvort hegningarlagabrotum hafi fjölgað eða fækkað? Eru einhverjir að skoða öll brot á hegningarlögum, hvort sem kært er vegna þeirra eða ekki? Hið rétta er að kærum/skýrslum/tilkynningum vegna meintra hegningarlagabrota fækkaði í apríl í ár miðað við apríl í fyrra. Það er í fyrsta lagi dómstóla að ákveða hvort um brot hafi verið að ræða og í öðru lagi þá nær afbrotatölfræðin bara yfir þau atvik sem hafi verið tilkynnt til lögreglu.
Síðan þetta með umferðarlagabrotin. Ég fjallaði um nokkurn veginn sams konar frétt á bloggi mínu 18. september í fyrra. Hvernig dettur mönnum í hug að umferðarlagabrotum fjölgi við hert eftirlit? Í fyrra voru eftirlitsmyndavélarnar í Hvalfjarðargöngunum og á höfuðborgarsvæðinu helsti sökudólgar fjölgunarinnar og nú halda þær áfram að fjölga brotum. Er ekki eitthvað öfugsnúið við þetta? Aftur snýst þetta um kærur/sektir vegna meintra umferðalagabrota, því ég er alveg sannfærður um að áður en myndavélarnar voru settar upp, þá keyrðu menn líka of hratt.
Ef fylgt er rökhugsun fréttarinnar, þá er best að hætta öllu umferðareftirliti, þar sem eftirlitið er (samkvæmt fréttinni) aðalástæða umferðarlagabrotanna. Ég hélt að þessu væri öfugt, þ.e. að hert eftirlit fækkaði brotunum.
Hér kemur svo fréttin í heild, ef Mbl.is myndi nú leiðrétta rökvilluna.
Hegningarlagabrotum fækkar milli ára
Hegningarlagabrotum fækkaði í apríl miðað við sama mánuð í fyrra en umferðalagabrotum fjölgaði. Rekja má fjölgunina að miklu leyti til hraðakstursmyndavéla. Fíkniefnabrot voru 22% færri en í apríl í fyrra. Þetta kemur fram í afbrotatölfræði ríkislögreglustjóra fyrir aprílmánuð.
Líkamsárásir að næturlagi en hraðakstur um miðjan dag
Samkvæmt málaskrá lögreglunnar voru flestar líkamsárásir framdar að næturlagi í apríl, eða tæp 60%. Flest hraðakstursbrot voru framin að degi til, milli hádegis og sex síðdegis en eignaspjöll dreifðust hins vegar frekar jafnt yfir sólarhringinn.
Þrjár líkamsmeiðingar á dag
Skráð voru 4363 hraðakstursbrot sem er talsverð fjölgun frá því í apríl síðustu tvö ár. Þjófnaðarbrot og eignaspjöll voru einnig fleiri en síðustu tvö ár. Þá voru 169 innbrot tilkynnt lögreglu sem jafngildir tæplega 6 innbrotum á dag og 97 líkamsmeiðingar sem jafngildir um þremur slíkum brotum á dag. Áfengislagabrot voru 44% færri í ár en í fyrra og það sama átti við um akstur gegn rauðu ljósi.
Hegningarlagabrotum fækkar milli ára | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 4
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 1680019
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 34
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Tenglar
Upplýsingaöryggi og persónuvernd
- Betri ákvörðun ráðgjafarþjónusta Marinós G. Njálssonar
- CISA, CISM, COBIT, Val IT
- Staðlaráð Íslands
- Heimasíða Persónuverndar
Hagsmunabarátta
- Hagsmunasamtök heimilanna
- Hugmyndir að úrræðum fyrir almenning
- Færa þarf höfuðstól lánanna niður
- Fólk þarf leið út úr fjárhagsvandanum
- Innlegg í naflaskoðun og endurreisn
- Er raunhæft að afnema verðtrygginguna eða setja henni skorður?
- Aðgerðaráætlun fyrir Ísland
- Hinn almenni borgari á að blæða
- Leið ríkisstjórnarinnar er röng
- Innantómar aðgerðir til stuðnings heimilunum
- Tillögur talsmanns neytenda
- Á hverju munu Íslendingar lifa?
- Verðbólga sem hefði geta orðið
- Aðgerða þörf strax - Tillaga að aðgerðahópum
- Mikilvægast að varðveita störfin
- Hvar setjum við varnarlínuna?
- 385 milljarða til bankanna og reikningurinn til heimilanna
- 2009 gengið í garð, ár endurreisnar, en hvernig endurreisn viljum við?
- Jöklabréf, erlend lán og vaxtaskiptasamningar
Færsluflokkar
- Áhættustjórnun
- Bloggar
- Dægurmál
- Efnahagsmál
- Endurreisn
- Ferðalög
- Ferðaþjónusta
- Heimspeki
- HRUNIÐ
- Icesave
- Íbúðalánasjóður
- Íþróttir
- Lánamál
- Leiðsögn
- Lífeyrissjóðir
- Lífspeki
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Neytendavernd
- Persónuvernd
- Skuldamál heimilanna
- Snjóhengjur
- Stjórnmál og samfélag
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Upplýsingaöryggi
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.