16.12.2007 | 19:09
Arsenal - Góðir, betri, bestir
Magnþrungnum leik lokið á þann eina hátt sem þetta gat endað. Chelsea fór varla af sínum vallarhelmingi í fyrri hálfleik og þó þeir hafi bitið aðeins frá sér í þeim seinni, þá var það sambland af heppni Chelsea og klaufaskap Arsenal sem gerði það að verkum að leikurinn endaði bara 1 - 0. 2 til 3 gegn engu hefði gefið betri mynd af gangi leiksins.
Það var gott að sjá Cesc, Hleb og van Persie aftur, en Flamini var án efa bestur í lið Arsenal. Einnar snertingar boltinn var kominn aftur og skil ég ekki hvað Diarra er að kvarta yfir að komast ekki í liðið. Hann getur kannski kvartað, þegar hann er búinn að læra að gefa boltann strax á næsta mann.
Þó að ManU hafið náð að hanga á þessu eina marki sem þeir skoruðu gegn gangi leiksins, þá var mikill munur á leik þeirra og Arsenal. Eftir að United skoraði voru settir 10 menn fyrir aftan boltann og langtímum saman var enginn leikmaður United á vallarhelmingi Liverpool. Ótrúlegt hjá liði sem telur sig vera bestir. Eftir að Arsenal komst yfir, þá var pressan bara aukin. Pressað var frá fremsta manni og skiptingar milli kanta hraðar og nákvæmar. Það getur vel verið að United muni standa uppi sem meistarar í vor, en Arsenal spilar "Total Football" að hætti Johan Cryuff og félaga. Þann besta og flottasta í dag. Það eina sem mætti bæta við eru bombur á við þær sem komu frá Arie Haan í denn.
Arsenal lagði Chelsea og er aftur efst | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 0
- Sl. sólarhring: 81
- Sl. viku: 275
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 34
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Tenglar
Upplýsingaöryggi og persónuvernd
- Betri ákvörðun ráðgjafarþjónusta Marinós G. Njálssonar
- CISA, CISM, COBIT, Val IT
- Staðlaráð Íslands
- Heimasíða Persónuverndar
Hagsmunabarátta
- Hagsmunasamtök heimilanna
- Hugmyndir að úrræðum fyrir almenning
- Færa þarf höfuðstól lánanna niður
- Fólk þarf leið út úr fjárhagsvandanum
- Innlegg í naflaskoðun og endurreisn
- Er raunhæft að afnema verðtrygginguna eða setja henni skorður?
- Aðgerðaráætlun fyrir Ísland
- Hinn almenni borgari á að blæða
- Leið ríkisstjórnarinnar er röng
- Innantómar aðgerðir til stuðnings heimilunum
- Tillögur talsmanns neytenda
- Á hverju munu Íslendingar lifa?
- Verðbólga sem hefði geta orðið
- Aðgerða þörf strax - Tillaga að aðgerðahópum
- Mikilvægast að varðveita störfin
- Hvar setjum við varnarlínuna?
- 385 milljarða til bankanna og reikningurinn til heimilanna
- 2009 gengið í garð, ár endurreisnar, en hvernig endurreisn viljum við?
- Jöklabréf, erlend lán og vaxtaskiptasamningar
Færsluflokkar
- Áhættustjórnun
- Bloggar
- Dægurmál
- Efnahagsmál
- Endurreisn
- Ferðalög
- Ferðaþjónusta
- Heimspeki
- HRUNIÐ
- Icesave
- Íbúðalánasjóður
- Íþróttir
- Lánamál
- Leiðsögn
- Lífeyrissjóðir
- Lífspeki
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Neytendavernd
- Persónuvernd
- Skuldamál heimilanna
- Snjóhengjur
- Stjórnmál og samfélag
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Upplýsingaöryggi
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Það verður að athuga að Manchester var á útivelli en Arsenal á heimavelli.
Maggi (IP-tala skráð) 16.12.2007 kl. 19:33
ARSENAL ERU LANGBESTIR
Steinn Hafliðason, 16.12.2007 kl. 19:45
Já djöfull eru þið segir að vinna B-lið Chelsea........
Og það bara með einari.......er það ekki það sem þú ert að segja Marri minn??
Og ef Stuðningdmenn Arse-and-all halda að titillinn sé í höfn, þá þeir um það.
Þráinn (IP-tala skráð) 16.12.2007 kl. 19:47
Hvaða máli skiptir hvort leikurinn er á heimavelli eða útivelli. Arsenal-liðið hefur aldrei í vetur spilað heilan hálfleik hvað þá heilan leik, þar sem skipt hefur meira máli að halda hreinu en að sækja. Það sáum við hjá United í dag. Sorglegt, þegar haft er í huga hvaða leikmenn spiluðu leikinn.
Marinó G. Njálsson, 16.12.2007 kl. 20:11
Þráinn, ég er ekki Marri, en ég veit hver hann er
Marinó G. Njálsson, 16.12.2007 kl. 20:13
hæ pabbi minn! við sjáumst bráðum! - elska þig þín dóttir!:D:P
Sæunn Ýr (IP-tala skráð) 16.12.2007 kl. 20:23
Kjaftur í Þránni. Sennilega tapsár. En hvaða tal er þetta um b-lið CHelsea þó þrjá menn vanti?
Snorri Bergz, 17.12.2007 kl. 08:51
Snorri, ég var einmitt að fara yfir liðið stöðu fyrir stöðu og mér sýndist Þráinn gera lítið úr mönnum eins Lampard, "Cashley", Makalele, Joe Cole, Peter Cech og fleiri að telja þá B-liðsmenn. Mér þætti gaman að sjá A-lið Chelsea spila og spyr hvar hafa það verið?
Marinó G. Njálsson, 17.12.2007 kl. 09:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.