6.10.2015 | 18:22
Erla Stefánsdóttir 1935-2015
Horfin er til annars heims Erla Stefánsdóttir. Fáir sjá heiminn með hennar augum eða hafa boðað kærleikann eins hreinan og tæran og hún hefur gert.
Ég er einn af nemendum Erlu. Kynntist henni fyrir um aldarfjórðungi, þegar ég sótti námskeið hjá henni. Yndislegri manneskja er vandfundin. Þessi óskilyrti skilningur og vinátta sem hún sýndi okkur, nemendum sínum, var eitthvað sem ég hafði aldrei kynnst áður. Ekki bara það, heldur að vera nálægt henni, var eins og vera hleypt inn í heilagt rými, slík var orka hennar og orkuhjúpur.
Erla er vissulega þekkt meðal almennings, sem mikill sjáandi, "álfadrottningin" var hún stundum kölluð, vegna þess að hún sá meira en fólk flest. Þeir hæfileika voru henni bæði blessun og byrði. Samt vildi hún aldrei gera mikið úr þessum hæfileikum sínum. Hún stærði sig aldrei af þeim í mín eyru eða taldi sig á nokkurn hátt betri en aðrir vegna þess. Eitt sinn vorum við að ræða saman og ég segi svona, að ég verði bara að láta mér nægja í bili að sjá ljósið skína í gegn um skráargatið á hurðinni, en hún sé örugglega þar fyrir innan. Svaraði hún mér hlæjandi: "Nei, ég er bara nær skráargatinu!" Var þetta lýsandi fyrir þá hógværð og virðingu sem hún bar fyrir hæfileikum sínum. Hún bar þessa byrði og deildi reynslu sinni og upplifun með okkur, eins og hún þorði, því hún taldi ekki allt, sem hún sá, eiga erindi við okkur.
Fyrir okkur sem kynntumst Erlu og tókum þátt í starfi Lífssýnar, þá var margt meira og mikilvægara í fari hennar, en að geta séð meira en við hin. Það var fyrst og fremst sá hæfileiki hennar að geta miðlað þekkingu sinni áfram til okkar. Að geta kveikt ljós kærleika í huga okkar og hjörtum. Að geta fengið okkur til að leita inn á við og upp á við að ljósinu í lífi okkar. Að finna stoð og stuðning í æðri verum þessa heims óháð trúarbrögðum.
Kæra Erla, það voru mikil forréttindi að kynnast þér og mun ég alltaf búa að þeim kynnum. Engin manneskja (utan minna nánustu) hefur haft jafn mikil áhrif á mig eða á jafn stóran hlut í mótun minni sem einstaklings. Þú ert og verður um ókomna tíð merkasti kennarinn minn vegna þess að þú kenndi mér skilyrðislausa ást, að lifa án fordóma, að láta af dómhörku, að heimurinn er fullur af endalausri orku og ást og það væri mitt (og allra annarra) að nýta þetta til góðs fyrir alla. Þú hvattir mig (sem og aðra nemendur þína) til að leggja alúð við störf okkar, að hlúa að blómi sálar okkar, að vera heilstæð persóna í eigin rými, því þá liði okkur vel og útgeislun okkar ykist. Kannski verðum við einhvern tímann að því leiðarljósi fyrir aðra, sem þú varst fyrir okkur!
Ég þakka þér fyrir einstaklega áhugavert ferðalag.
Marinó
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 45
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 39
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Tenglar
Upplýsingaöryggi og persónuvernd
- Betri ákvörðun ráðgjafarþjónusta Marinós G. Njálssonar
- CISA, CISM, COBIT, Val IT
- Staðlaráð Íslands
- Heimasíða Persónuverndar
Hagsmunabarátta
- Hagsmunasamtök heimilanna
- Hugmyndir að úrræðum fyrir almenning
- Færa þarf höfuðstól lánanna niður
- Fólk þarf leið út úr fjárhagsvandanum
- Innlegg í naflaskoðun og endurreisn
- Er raunhæft að afnema verðtrygginguna eða setja henni skorður?
- Aðgerðaráætlun fyrir Ísland
- Hinn almenni borgari á að blæða
- Leið ríkisstjórnarinnar er röng
- Innantómar aðgerðir til stuðnings heimilunum
- Tillögur talsmanns neytenda
- Á hverju munu Íslendingar lifa?
- Verðbólga sem hefði geta orðið
- Aðgerða þörf strax - Tillaga að aðgerðahópum
- Mikilvægast að varðveita störfin
- Hvar setjum við varnarlínuna?
- 385 milljarða til bankanna og reikningurinn til heimilanna
- 2009 gengið í garð, ár endurreisnar, en hvernig endurreisn viljum við?
- Jöklabréf, erlend lán og vaxtaskiptasamningar
Færsluflokkar
- Áhættustjórnun
- Bloggar
- Dægurmál
- Efnahagsmál
- Endurreisn
- Ferðalög
- Ferðaþjónusta
- Heimspeki
- HRUNIÐ
- Icesave
- Íbúðalánasjóður
- Íþróttir
- Lánamál
- Leiðsögn
- Lífeyrissjóðir
- Lífspeki
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Neytendavernd
- Persónuvernd
- Skuldamál heimilanna
- Snjóhengjur
- Stjórnmál og samfélag
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Upplýsingaöryggi
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Tek undir þetta, hún bjó hjá mér um tíma meðan við unnum Ísafjarðarálfakortið.
Hún átti samt sínar dökku hliðar þessi elska, það var erfitt að sætta sig við skilnaðinn, en alltaf stóð hún sem hetja. Blessuð sé minning hennar, það hefur ekki verið neitt sérlega stórt skref fyrir að hana að fara héðan, rétt eins og hjá afa mínum, sem átti sér vinkonu í álfheimum, þau voru bæði nærri hinu þunna tjaldi sem aðskilur þessa tvo heima. Ég hef stundum fengið að kíkja þangað inn og er þakklát fyrir það.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.10.2015 kl. 19:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.