25.11.2010 | 23:10
Leitað að skít með stækkunargleri
Ónefndur fjölmiðill heldur að hann finni einhvern skít um Hagsmunasamtök heimilanna. Blaðamaður hans forvitnaðist í dag um ársreikning samtakanna, sem er öllum opinn á heimasíðu samtakanna, og spurði svo í leiðinni hvort fólk væri ekki á kaupi eða fengi einhverja bitlinga fyrir störf sín. Nú á sem sagt að reyna að níða skóinn af líklegast grandvörustu samtökum landsins. Ekki bara að stjórnarmenn hafi borið verulegan kostnað af störfum sínum fyrir samtökin, heldur á nú að væna menn um að þiggja skattfrjálsar greiðslur og fleira í þeim dúr.
Mikið hljóta þessi samtök að vera vondur þyrnir í augum sumra. Að senda blaðamann út af örkinni til að reyna að finna eitthvað misjafnt er stórmerkilegt og líklegast mesta viðurkenning sem samtökin geta fengið.
Bara svo það sé á hreinu, þá hafa samtökin einu sinni borgað eina pítu fyrir mig. Það var í apríl á þessu ári kvöldið fyrir aðalfund samtakanna, þegar undirbúningur hans stóð sem hæst. Kostnaður minn af vinnu fyrir samtökin er hleypur aftur á tugum þúsunda, ef ekki meira. Felst sá kostnaður í bensíni, símanotkun, pappír og prentbleki. Loks nemur vinnutap mitt líklegast ekki undir 500 tímum.
Ég vil enda þetta með tilvitnun í ljóð Einars Benediktssonar Einræður Starkaðar:
Ég mat ekki ljóðglapans lága hnjóð,
sem laklega hermdi, hvað aðrir kváðu,
- né þrælafylgið við fjöldans slóð
í forgönguspor, sem þeir níðandi tráðu.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 8
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 1680023
Annað
- Innlit í dag: 8
- Innlit sl. viku: 38
- Gestir í dag: 8
- IP-tölur í dag: 8
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Tenglar
Upplýsingaöryggi og persónuvernd
- Betri ákvörðun ráðgjafarþjónusta Marinós G. Njálssonar
- CISA, CISM, COBIT, Val IT
- Staðlaráð Íslands
- Heimasíða Persónuverndar
Hagsmunabarátta
- Hagsmunasamtök heimilanna
- Hugmyndir að úrræðum fyrir almenning
- Færa þarf höfuðstól lánanna niður
- Fólk þarf leið út úr fjárhagsvandanum
- Innlegg í naflaskoðun og endurreisn
- Er raunhæft að afnema verðtrygginguna eða setja henni skorður?
- Aðgerðaráætlun fyrir Ísland
- Hinn almenni borgari á að blæða
- Leið ríkisstjórnarinnar er röng
- Innantómar aðgerðir til stuðnings heimilunum
- Tillögur talsmanns neytenda
- Á hverju munu Íslendingar lifa?
- Verðbólga sem hefði geta orðið
- Aðgerða þörf strax - Tillaga að aðgerðahópum
- Mikilvægast að varðveita störfin
- Hvar setjum við varnarlínuna?
- 385 milljarða til bankanna og reikningurinn til heimilanna
- 2009 gengið í garð, ár endurreisnar, en hvernig endurreisn viljum við?
- Jöklabréf, erlend lán og vaxtaskiptasamningar
Færsluflokkar
- Áhættustjórnun
- Bloggar
- Dægurmál
- Efnahagsmál
- Endurreisn
- Ferðalög
- Ferðaþjónusta
- Heimspeki
- HRUNIÐ
- Icesave
- Íbúðalánasjóður
- Íþróttir
- Lánamál
- Leiðsögn
- Lífeyrissjóðir
- Lífspeki
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Neytendavernd
- Persónuvernd
- Skuldamál heimilanna
- Snjóhengjur
- Stjórnmál og samfélag
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Upplýsingaöryggi
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Þú ert betri í bardaga en gráti.
Áfram með orustuna.
Björn Jónasson (IP-tala skráð) 26.11.2010 kl. 00:07
Marinó.
Hlustaðir þú ekki á fréttir í dag ?
,,Lekin" frá riskisstjórninni er sá, að engin sátt sé um lausn í sjónmáli á ,,skuldavanda heimilana" !!!
Hver hefur hag á því að sverta þig og þína vinnu ???
Eigum við ekki bara að fara í þá vinnu ??????????
JR (IP-tala skráð) 26.11.2010 kl. 00:33
Það var flott að hlusta á frétta menn á bylgjunni í morgun ( eða þannig) Alltaf þegar kemur að þeim þá er það í lagi, misti allt álit á Sigurjóni M. Hann kallaði Steingrím J siðlausan en var samt sáttur við siðleysi fréttamanna, að hnýast í persónuleg mál annara í stað þess að fjalla um málefnið.. Allar fylkingar verndar sig og sína í þessu siðspilta landi :)
Benedikt. (IP-tala skráð) 26.11.2010 kl. 14:10
Mannfjöldinn stöðugt á vellinum vex og vex eins og arfi á heyi. Teygist hann kannski upp að Túngötu 6 og tekur þar hús á Baugi?
Gunnar Waage, 26.11.2010 kl. 16:39
Vegna þeirrar afsökunar fjölmiðla að ég sé opinber persóna og þeir eigi því skotleyfi á mig, þá langar mig að benda á reglur Alþingis um hagsmunaskráningu. Þar er gerð krafa um að gefa upp:
Síðan segir:
Úps, en DV hélt því einmitt fram að eðlilegt væri að greina frá skuldastöðu minni eins og um opinbera persónu væri að ræða.
Marinó G. Njálsson, 26.11.2010 kl. 16:52
Árás á Hagsmunasamtökin er hrein og klár árás á ALLA meðlimi HH og þau gildi sem við stöndum fyrir.
Verða þessir blaðasnápar ekki bara að banka upp á hjá öllum félagsmönnum HH og heimta að fá að sjá skuldastöðu þeirra??
Anna Kristín Pétursdóttir (IP-tala skráð) 26.11.2010 kl. 18:52
Það er eiginlega alveg merkilegt að blaðamennska sé háskólafag. Útkoman er þessi.
Gunnar Waage, 26.11.2010 kl. 18:58
Æj, hættu Marínó. Það er bara eðlileg bladamennska að leita að hugsanleg hagsmunatengl/eða hagsmunir hjá samtökum og/eða einstaklingum sem eru í forsvari þeirra.
Þú ert að grafa þinu egin gröf. Sem mér finnst miður. Þú varst öflugur talsmaður og allra gjalda verð þó ég var þér ekki sammála.
Jakob Andersen (IP-tala skráð) 26.11.2010 kl. 20:01
@ Jakob Andersen!
Góður punktur hjá þér - enda fundust tengslin hans Marinós við Hagsmunasamtökin... - hann veit á eigin skinni hvernig það er að standa frammi fyrir skrímslinu sem Íslenskt samfélag er í dag.
Ég geri ráð fyrir að þú skuldir ekki krónu í vísitölu- eða gengistryggðum lánum - vonandi ert þú einn af þeim lánsömu að skulda bara ekki krónu. Því mér sýnist á skrifum þínum að þú vitir ansi takmarkað um út á hvað Hagsmunasamtök Heimilanna ganga...
Anna Kristín Pétursdóttir (IP-tala skráð) 26.11.2010 kl. 20:45
Jakob, spurningar blaðamanns voru ekki um hagsmunatengsl heldur hvort stjórnarmenn HH fengu greitt undir borðið fyrir störf sín. Enn og aftur segi ég: Margur heldur mig sig.
Aftur vil ég benda á að í reglum Alþingis um upplýsingagjöf vegna hagsmuna þingmanna, þá segir:
Þér að segja, þá bað ég ekki um neitt annað en alþingismönnum er tryggt, þ.e. að upphæðum væri haldið utan við umræðuna. Ég set ekki út á annað í "frétt" DV. Upplýsingalög taka líka til þess, að þó fólk (og þar með fjölmiðlar) hafi aðgang að upplýsingum, þá teljist fjárhagsupplýsingar til einkamálefnalegra upplýsinga.
Marinó G. Njálsson, 26.11.2010 kl. 22:22
Það á aldrei að gefast upp fyrir svona dónum. Vonandi gefst þú ekki upp.
Eyfjörð (IP-tala skráð) 26.11.2010 kl. 22:43
Síðan eigum við alveg eftir að ræða eignarhaldið á þessum miðlum sem fara með þennan fréttaflutning, pressan og DV geta nú ekki talist gjóða hlutlægt mat í þessu.
Ef að meiningin er að fara í menn svona tvist og bast þá má bara sækja á þetta lið til baka. Minnsta mál í heimi.
Þeir ættu ekki að kasta grjóti sem búa í glerhúsum.
Gunnar Waage, 26.11.2010 kl. 23:32
Með þessum pistli er einungis meiningin að benda mönnum á að allir geta þurft að útskýra tengsl sín við hina og þessa, eignir sínar og hagsmuni. Ef að meiningin er að sá efasemdum um einstaklinga og eyðileggja þeirra málflutning, þá má ná sér í veðbókarvottorð viðkomandi og gera grín að honum í sínum eigin fjölmiðli.
Í þetta skiptið ætla ég að drulla aðeins yfir pressuna og vona ég að þeir þoli það bara.
Það verður að segjast að á þessum tímum persónuofsókna þá er erfitt að horfa fram hjá eignarhaldi fjölmiðla. Þegar um stóra miðla er að ræða, þá er erfiðara að henda reiður á hagsmuna-samhengi milli fréttar og viðfangsefnis.
Að menn séu nánast að reyna að rekja slóð fréttarinnar innanhúss á stórum fréttastofum til að átta sig á hvernig og af hverju þær voru gangsettar, er ekki alveg nauðsynlegt þegar að um er að ræða vefmiðla á við eyjan.is, pressan.is, enda kosta þessir vefir ekkert og má hreint gera ráð fyrir því að fyrir framan labtop sitji einn gaur á nærbuxunum og sjái um málið frá A til Ö.
Þá er fyrir það fyrsta ómögulegt að skilja hvað vefur eins og pressan.is er að gera með 100 milljón króna hlutafjáraukningu? Skiptir þó litlu ef menn vilja skíta peningum.
Ég er ánægður með svipan.is sem ég setti upp með félögum og kostaði ekkert.
Nú er þess skemmst að minnast að pressan.is, eða réttara sagt bloggarar hennar Sigurður G. Guðjónsson og Ólafur Arnarsson, veittust illilega að Evu Joly með skrifum, þar sem að gert var grín að Joly og beinlínis farið fram á að Stjórnvöld losuðu sig við hana.
Þá er það nýafstaðin atlaga, pressan.is, að stjórnarmanni í Hagsmunasamtökum Heimilanna og var þar á ferðinni minniháttar bloggari af pressunni, þeir fylgdust þó grannt með atlögunni að HH og tóku virkan þátt í henni með sínum rómaða fréttaflutningi en jú, þeir eru byrjaðir að skrifa fréttir.
Nú, þegar að svona miðill eins og pressan sem er með tiltölulega fáa bloggara (en þeir eru jú eiginlega allur vefurinn), þá er þegar grannt er skoðað ákaflega mikið af góðkunningjum eigenda í þeim hópi en vefurinn er í eigu Exista gegn um Vátryggingarfélag Íslands, Ólafur Arnarsson frændi fyrrv. forstjóra Exista, Sigurður hostile takeover G. Guðjónsson, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir eiginkona Kristjáns Arasonar fyrrverandi framkvæmdastjóra Kaupþings sem átti Exista, Bubbi Morthens er meðal bloggara og tengist Vátryggingarfélagi Íslands.
Á einum stað vitnar Bubbi í RUV og verð ég reyndar að hæla Bubba fyrir þessa árvekni. staðreyndir sem þessar eru þess verðar að þeim sé haldið á lofti;
"Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins fyrir skemmstu:
Þegar Exista var skráð á markað árið 2006 bauðst stjórnendum dótturfélaganna VÍS, Lýsingu, Skiptum og dótturfyrirtæki þess, Símanum, að kaupa hlutbréf í Exista og veðið var eins og svo oft í þessum viðskiptum – hlutabréfin sjálf. Heimildir fréttastofunnar herma að alls 8 yfirmenn í Skiptum og Símanum hafi fengið lán upp að tuttugu og tveimur og hálfri milljón króna og að talsmaður Skipta vildi ekki staðfesta hverjir nákvæmlega hefðu fengið lánin niðurfelld, en almennum starfsmönnum bauðst ekki að fá sambærileg lán. Hinsvegar fengu 80 starfsmenn VÍS lán niðurfelld, alls 220 milljónir. Þar fékk forstjórinn Guðmundur Örn Gunnarsson mest eins og kollegar hans hjá Skiptum og Símanum eða 22,5 milljónir. Hjá VÍS var gerð krafa um að starfsmenn legðu fram 10 prósent af kaupverði. Það fé tapaðist þegar bréfin urðu verðlaus, en starfsmönnum var óheimilt að selja bréfin í 3 ár eftir kaupin. Heimildir Rúv herma að toppar dótturfyrirtækja Exista hafi flestir notið sömu kjara og því hafi Halldór Jörgensson forstjóri Lýsingar fengið jafnhátt lán niðurfellt.
Einn lánþeganna sem fékk mest niðurfellt er Katrín Olga Jóhannesdóttir hjá Skiptum, hún er í stjórn Seðlabanka Íslands.""
Gunnar Waage, 27.11.2010 kl. 04:19
ítarefni úr viðskiptablaðinu 12 april 2010;
Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Pressunar og einn eigenda Vefpressunnar ehf. (sem er félagið utan um rekstur Pressunar) hefur ákveðið að taka sér tímabundið leyfi sem ritstjóri Pressunnar.
Eins og fram kom í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis í morgun nemur skuld félags í eigu Björns Inga, Caramba, við Kaupþing um 560 milljónum króna. Stofnað var til lánanna á meðan Björn Ingi var borgarfulltrúi Framsóknarflokksins í Reykjavík.
Þá kemur fram í skýrslu rannsóknarnefndar að félag Björns Inga hefði í september gert framvirkan samning um kaup á bréfum í Exista fyrir um 230 milljónir króna. Við það hefðu skuldir félagsins nær tvöfaldast.
Gunnar Waage, 27.11.2010 kl. 05:26
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
http://litlaisland.net/corruption/draw/359/29/
Björn Ingi Hrafnsson
http://litlaisland.net/corruption/draw/41/29/
Sigurður G. Guðjónsson
http://litlaisland.net/corruption/draw/47/29/
Endilega smíðið nú samsæriskenningar. Það ber að taka þessum teikningum með fyrirvara þar sem að þær sýna of mikið.
En þú segir bara til Marinó, eða réttara sagt þá segir pressan til um hvað þeir vilja að ég gangi langt, þeir geta haldið áfram að kasta grjóti úr glerhúsi og ónáðað gott fólk, eða sýnt af sér almenna kurteisi og virðingu.
kær kveðja
g
Gunnar Waage, 27.11.2010 kl. 05:45
P.S.
Ólafur Arnarsson
http://litlaisland.net/corruption/454/olafur-arnarson/
Gunnar Waage, 27.11.2010 kl. 05:49
Sæll Marinó,
Í reglunum sem þú vitnar í er eingöngu talað um að gefa upp eignir, ekki skuldir! Því fellur sú röksemd um sjálfa sig að þú þurfir að gefa upp skuldastöðu vegna starfa á opinberum vetvangi!
Bara halda þínu striki!:)
Kveðja,
Arnór Baldvinsson, 27.11.2010 kl. 21:24
Þú vonandi manst eftir að gefa pítuna upp á næsta skattframtali því þú átt eftir að borga skatt af henni. Annars vil ég þakka þér fyrir þín störf í þágu skuldugra heimila.
Einhvernveginn finnst mér ekkert hafa orðið ágegnt í þeim málum þótt Jóhanna telji sér trú um að margt haf gerst til bóta. Kannski hefðu þær úrbætur geta bjargað mörgum í skarra árferði en í raun finnst mér að þær séu frekar til að stuðla að áframhaldandi þrælahaldi hér.
Ég vona að hægt verði að leysa vandann þannig að fólk hafi von um að losna úr ánauðini því hætt er við uppgjöf vari ánauðin í mörg ár til viðbótar.
Offari, 28.11.2010 kl. 14:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.