Leita í fréttum mbl.is

Algjör þvæla

Ég hef ekki önnur orð yfir þetta.  ALGJÖR ÞVÆLA.

Ég hvet ASÍ til að hætta skáldsagnaritun og snúa sér að því sem sambandið hefði átt að gera fyrir 30 mánuðum, ef ekki lengur, þ.e. að verja hagsmuni félagsmanna sinna fyrir arðráni fjármálakerfisins.


mbl.is Lífeyrissjóðir hefðu borið 75% kostnaðar við skuldalækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Magnússon

Því miður Marinó þá eru það þessir herramenn sem standa hvað harðast gegn því að fólkið í landinu geti fengið leiðréttingu sinna mála.  ASÍ og lífeyrissjóðirnir berjast harðast fyrir siðlausum verðtryggðum okurlánum.

En stattu þig Marinó í þinni baráttu. Ekki gefa eftir af sanngjörnum kröfum um afnám verðtryggingar og leiðréttingu höfuðstóla verðtryggðra lána miðað við 1.10.2008. Það er ekki niðurfelling heldur leiðrétting þar sem ránsfeng er skilað til baka.

Jón Magnússon, 20.10.2010 kl. 16:02

2 Smámynd: Sigríður Jósefsdóttir

Það sorglega við þetta herrar mínir er það, að það var í lagi að lánastofnanir (og þá tel ég með banka, lífeyrissjóði og íbúðalánasjóð) virtust geta haft sjálfdæmi um eignaupptöku hjá almenningi í aðdraganda hrunsins, en berjast svo um á hæl og hnakka þegar snúa á dæminu við.

Sigríður Jósefsdóttir, 20.10.2010 kl. 16:47

3 Smámynd: Ragnar Þór Ingólfsson

Hvað verða lífeyrissjóðirnir búnir að tapa verðbótum fasteignalána mörgum sinnum áður en við förum á lífeyri? Í dag eru þessar sömu verðbætur notaðar til að breiða yfir gengdarlaust fjárfestingasukkið, afgangurinn er notaður til frekari áhættufjárfestinga og vafasamra fyrirtækjakaupa.

Ragnar Þór Ingólfsson, 20.10.2010 kl. 17:13

4 Smámynd: Hrannar Baldursson

Nákvæmlega það sama og ég hugsaði þegar ég las þessa frétt á Eyjunni. Þetta lítur út fyrir að vera rætinn hræðsluáróður hjá ASÍ.

Hrannar Baldursson, 20.10.2010 kl. 17:18

5 identicon

Því miður er ASÍ ekkert annað en hagsmunasamtök fjármagnseigenda.  Það er sorglegt að þarna skuli vera fólk með laun sem eru jafnvel margföld laun venjulegs fólks, sem situr þarna í sínum fílabeinsturni, keyrir um á sínum fína jeppa og stendur síðan í veginum fyrir því að heimilin fái nauðsynlega leiðréttingu á arfavitlausri "neysluvísitölu" sem varð til vegna bankahruns.  Það er bara þyngra en tárum taki að verkalýðshreyfingin skuli nánast öll standa gegn heimilunum og með fjármagnseigendum í þessu máli.  Til hvers var þetta fólk eiginlega kosið  í þessar stöður?  Jú, til að standa með venjulegu launafólki, verkafólki sem fær núna útborgað kannski rétt svo húsaleigu fyrir 2ja-3ja herb íbúð.  Á hverju á það fólk að lifa, það er spurning.  ASÍ virðist ekki hafa miklar áhyggjur af því.

Margrét Ólafsd. (IP-tala skráð) 20.10.2010 kl. 18:02

6 identicon

Það er gott að kynna sér málin og forðast gífuryrðaflaum. Menn virðast ekki í jafnvægi þegar mús í mannheimum og algjör þvæla virðast best fallin til að tjá hugsanir. Ef Marínó telur sig talsmann Hagsmunasamtaka heimilanna þá vinnur hann þeim eingöngu ógagn. Fullyrðingunni á umræðuplagginu frá Asi er t.d. hægt að svara með því að koma með aðra og réttari reikninga. Í umræðuplagginu er rakið hver þróunin hefur verið í húsnæðismálum landsmanna. Þar er því lýst hvernig frjálshyggjuöflunum tókst nánast að eyðileggja markaðinn en einnig er núveerandi ríkisstjórn gagnrýndi fyrir haldlitlar aðgerðir.

Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 20.10.2010 kl. 18:17

7 Smámynd: Elle_

Ætla sumir aldrei að skilja eða viðurkenna að glæpabankar felldu gengið viljandi og ollu óðaverðbólgu og ranglætið í að ætla lánþegum að sætta sig við tröllaukinn höfuðstól skulda af þeirra völdum?

Elle_, 20.10.2010 kl. 19:27

8 Smámynd: Elle_

Og ASÍ og SA hafa barist eins og ljón fyrir að koma ICESAVE yfir okkur.  Hvers vegna??

Elle_, 20.10.2010 kl. 19:32

9 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Hirðið þið bara lífeyrissjóðina, það er hvort sem er búið að eyðileggja allt hér á landi  við lífeyrisþegar höfum lifað verri tíma en þetta og lifað það af! þó að núverandi stuttbuxnakinslóð geti það ekki. Einu sinni voru engir líeyrissjóðir til, en þeyr sem byggðu upp þetta land komu þessum sjóðum á legg,  eru ekki mjög ánægðir með síðustu 10 árin! Öll uppbygging farin út í veður og vind. þetta hefði ég ekki viljað lyfa!!

Eyjólfur G Svavarsson, 20.10.2010 kl. 22:12

10 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Verkalýðshreyfingin er að snúast upp í andhvefu sína og tekur nú stöðuna gegn launafólki.  Sorglegt að verða vitni að slíku. Þessi andstaða við skuldaleiðréttingu heimilanna, getur leitt til þess að fólk fer að segja sig úr félögum og snúast gegn hreyfingunni, líkt og gerst hefur með kirkjuna að undanförnu.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 20.10.2010 kl. 23:23

11 identicon

Jón, Marinó og Hólmfríður, hætið nú að kenna þeim um hlutina, sem hafa ekki völdin.... hverjir ráða???? á meðan Samfylkingin er í stjórn, þá verður ekki farið í almenna leiðréttingu, Hólmfríður veit það manna best.... af hverju tölum við ekki Íslensku um þetta og gagnrýnum Samfylkinguna og Steingrím  harðlega...... svo þegar næsta skoðanakönnun kemur, þá segjum við x við samfó og við treystum Steingrími best, ég gæti gubbað, látum þetta fólk finna það að við treystum því ekki lengur og við viljum að það fari.... af hverju má ekki koma frétt frá HH um að á meðan samfó og Steingrímur eru í ríkisstjórn, þá verður ekki leiðrétting.... vegna AGS, ESB, (fjármagnseigendur, vogunnarsjóðir og erlendir kröfuhafar)

Siguróli Kristjánsson (IP-tala skráð) 21.10.2010 kl. 08:05

12 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Alger þvæla er ekki rétt lýsing á þessara frétt.

þetta er bara hrein lygi, Það er engin sem útskrifast úr grunnskóla svona vitlaus.

Guðmundur Jónsson, 21.10.2010 kl. 09:57

13 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Ég sé nú varla orðið annan kost í stöðunni en stofnun flokks til bjargar millistéttinni það er greinilegt að mínu mati að það verður ekki gert í leikhúsinu við Austurvöll með þeim leikurum sem þar eru nú við störf og ekki heldur þeim sem að hafa hlutverk í því skuespili sem heitir ASI og ég fyrir löngu er hættur að líta á sem talsmenn mína

Jón Aðalsteinn Jónsson, 21.10.2010 kl. 20:26

14 identicon

Þeir sem eru alltaf að fullyrða um að þessi og þessi kynslóð hafi byggt upp lífeyrissjóðina þurfa aðeins að líta á söguna og tölurnar. 1980 voru eignir lífeyrissjóðanna 10% af vergri landsframleiðslu (sem var þá aðeins brot af því sem hún er nú). 2010 eru eignir þeirra 120% af VLF. Þær krónur sem voru til í þeim 1980 hafa fyrir löngu verið greiddar lífeyrisþegum og langt umfram það. Eftir sem áður töpuðu lífeyrissjóðirnir 500 milljörðum í tengslum við hrunið og þeir ættu því að halda um eignir sem nema 160% af VLF. Þessir fjármunir eru fengnir frá því fólki sem hefur greitt í sjóðina á árunum 1980 til 2010. Það erum við sem erum undir 60 ára nú sem höfum búið til þessa sjóði. Nú á að fara í eignaupptöku hjá hluta þessa hóps til þess að bæta fyrir botnlaust tap sjóðstjóranna. Mörg okkar verða eignalaus en fáum svo skammtaðan skít úr hnefa frá því hyski sem er að gera okkur eignalaus. Stjórnendur lífeyrissjóðanna bera mikla ábyrgð á því sem hér gerðist. Þeir jusu fé í þensluhvetjandi lánagjörninga.

Ólafur Garðarsson (IP-tala skráð) 23.10.2010 kl. 09:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 1678172

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband