Leita í fréttum mbl.is

Jibbí, enn "mikil" velta á fasteignamarkaði

Maður getur ekki annað en velt því fyrir sér hvort við búum í gömlu Sovétríkjunum eða Alþýðulýðveldinu Norður Kóreu.  Hvernig getur ritstjórn Morgunblaðsins eða mbl.is komist að því að enn sé mikil velta á fasteignamarkaði, þegar veltan er ennþá um 20% undir því sem var árið 2001. Aðeins 6 sinnum á tímabilinu frá 16. febrúar 2001 til 20. desember 2007 var vikuveltan minni en í síðustu viku.  Fimm af þessum sex skiptum voru um jól og áramót.

Það er jákvætt að veltan sé að aukast, en út í hött að tala um "mikla" veltu.


mbl.is Enn mikil velta á fasteignamarkaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnar Einarsson

Hver borgar fyrir þessar fyrirsagnir?

Ragnar Einarsson, 1.10.2010 kl. 16:24

2 Smámynd: Héðinn Björnsson

Held að þarna sé frekar um skorti á talnalæsi að ræða. Ég á en eftir að heyra af þeim blaðamanni sem ber skynbragð á tölur með meira en 6 núll. Nú náði ég aldrei að koma til Sovétríkjanna en það var mín tilfinning að þeir hafi verið frekar sleypir í talnaskilningi, sem er meira en hægt er að kenna íslendingum um.

Héðinn Björnsson, 1.10.2010 kl. 16:40

3 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Svo má líka velta því fyrir sér hvort hér sé yfirleitt einhver fasteignamarkaður þegar verði er stýrt með litlu framboði.  Hvenær skyldum við fara að kalla hlutina réttum nöfnum?  Hér er fasteignaverði og leiguverði handstýrt í þágu bankanna.  Ef markaðurinn réði myndi verðið falla um 30% og það hafa bein áhrif á efnahagsreikninga bankanna. Um það snýst þessi blekking

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 1.10.2010 kl. 16:46

4 Smámynd: Ketill Sigurjónsson

Blaðamenn og tölfræði fer ekki alltaf vel saman. Ég hef rekið mig á það að furðu margir vel skapaðir einstaklingar vita ekki hversu mörg núll eru í milljarði [níu]. Og enn síður hversu mörg núll eru í því sem Bandaríkjamenn nefna trillion [tólf] -sem vel að merkja er ekki sama og það sem við köllum trilljón [þá eru núllin orðin átján en Kanar kalla það million-trillions]. Svo er líka til talan sextilljón, en hún er of dónaleg til að segja hana upphátt. Dásamlegt.

Ketill Sigurjónsson, 1.10.2010 kl. 17:17

5 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Mbl virðist reikna út mikla veltu miðað við síðasta 1-2 ár, þ.e. í kreppunni, sem er alveg út í hött. Veltan á fasteignamarkaði er afar lítil og líklega rétt hjá Jóhannesi hér að framan að velta má upp spurningunni hvort hér sé markaður yfirleitt þegar framboði er handstýrt af bönkum og Íbúðalánasjóði?

Guðmundur St Ragnarsson, 2.10.2010 kl. 12:16

6 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Spurning hvort fjölgun nauðungarsala - sem strangt til tekið getur talist sala þ.e. færsla eignar frá einumg aðila til annars gegn greiðslu x fjármuna - sé inni í þessum tölum.

En nauðungarsölum eins og þú Marínó hefur bent á fer fjölgandi.

Hefur það eitthvað verulegt skýringargildi um þessa aukningu sem vitnað er til í frétt?

Eða, er aukning mun meiri en sem svarar fjölgun nauðungarsala?

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 2.10.2010 kl. 12:18

7 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Veltan/fasteignasalan er mæld eftir skráðum fjölda þinglýsinga hjá sýslumönnum. Það veit eflaust enginn hver er raunveruleg sala á markaði.

Fréttamönnum er vorkunn þótt þeir ruglist í fjölda milljóna/milljarða núllanna. T.d. er reikningsvélin mín ágæt til daglegra nota, en hún ræður ekki við stærri tölur en 99 þúsund milljónir eða 99 milljarða...

Kolbrún Hilmars, 2.10.2010 kl. 14:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 1678172

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband