Leita í fréttum mbl.is

Ótrúleg hógværð Seðlabankans - Álit hans skiptir ekki sköpum!

Jæja, þá er næsta stig afneitunarinnar í gangi.  Fyrsta stigið er að segja ekki frá, næsta stig að segja það ekki sitt hlutverk að greina frá, þriðja að gera lítið úr aðallögfræðingi sínum og núna að gera lítið úr álitinu/minnisblaðinu almennt.  Hvenær ætla menn að átta sig á því að það að birta ekki minnisblað aðallögfræðings Seðlabanka Íslands er meiriháttar klúður og hefur mögulega raskað verulega fjármálastöðugleika í landinu?  Seðlabankinn og FME hafa haldið því fram að í svörtustu sviðsmynd gætu 350 milljarðar króna fallið á veikburða fjármálafyrirtæki vegna þess að ekki var, að því virðist að þeirra áliti, tekið nægilega tillit til niðurstöðu minnisblaðs Sigríðar Logadóttur við uppgjör milli gjaldþrotahluta fjármálakerfisins og þess sem reist var úr rústunum.  Nei, nei, minnisblað Sigríðar skipti ekki sköpum og þess síður nöfnu hennar Rafnar Pétursdóttur hjá viðskiptaráðuneytinu.

Ef álit Seðlabankans skipti ekki sköpum, af hverju fóru fjármálafyrirtækin þá ekki eftir áliti Gísla Tryggvasonar og Björns Þorra Viktorssonar?  Jú, vegna þess að þau álit voru léttvæg fundin.  Þau höfðu ekki vigt.  Álit frá Seðlabankanum eða minnisblað hefur allt annað vægi.  Fjármálafyrirtækin hefðu ekki getað hunsað slíkt skjal.  Það hefði virkað eins og flóðvarnargarður við erfiða á meðan álit Gísla og Björns voru meira eins og ábending um að reisa þyrfti slíkan garð.

Annars er Seðlabankinn með tvískinnungshátt í þessu máli.  Hann treysti sér ekki til að koma fram með álitið, þegar það gat komið lántökum til góða vegna þess að alltaf þurfi að bíða eftir niðurstöðu dómstóla, en þegar eitthvað ógna aumingja fjármálafyrirtækjunum, þá tvínónar bankinn ekki við að grípa til aðgerða byggðar á lagatúlkun bankans.  Er bankinn að reyna að rústa því litla trausti sem almenningur ber til hans?  Hvers vegna getur bankinn túlkað lög hægri-vinstri og gripið fram fyrir hendur dómstóla, þegar verja þarf fjármálafyrirtækin fyrir hinum ógnvænlegu lántökum, en þegir þunnu hljóði þegar bankinn kemst að þeirri niðurstöðu að þessi sömu fjármálafyrirtæki og sumum tilfellum undanfarar þeirra brutu lög?

En hvað með það.  Þetta er búið og gert og lántakar eiga víst að borga reikninginn, einu sinni sem oftar.  Mig langar bara að benda lántökum gengistryggðra lána á, að þeim ber nákvæmlega engin skilda til að greiða af lánum sínum í samræmi við tilmæli Seðlabanka Íslands og FME.  Tilmælunum var beint til fjármálafyrirtækjanna og hafa nákvæmlega engin áhrif á samning þriðja aðila við fjármálafyrirtækin.  Vilji þau semja við lántaka upp á nýtt, þá er það hið best mál, en þar til dómar falla fyrir Hæstarétti í fordæmisgefandi málum, þá eru lántakar eingöngu bundnir af því að greiða samkvæmt greiðsluáætlun meðan það er skoðun lántaka að hann hafi ekki nú þegar greitt meira en greiðsluáætlun segir til um.  Lántaka hjá Avant fóru illa út úr því að treysta orðum fyrirtækisins og eru líklega búnir að tapa einhverju af því sem þeir greiddu af lánum sínum síðustu mánuði.  Ég spyr bara, hvers vegna eiga aðrir lántakar að taka sömu áhættu?  Höfum líka í huga, að SÍ hylmdi yfir með lögbrjótum í rúma 13 mánuði áður en tilmæli voru gefin út.  Að hylma yfir lögbroti er lögbrot út af fyrir sig.  Hverju svarar Seðlabankinn því?


mbl.is Töldu lögfræðiálitin ekki skipta sköpum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ránið heldur áfram á fullu.

- Lántakendur skulu borga sukk einkafyrirtækja í topp.

- Lántakendur skulu borga ótryggðar innstæður í topp.

Það er ofar mínum skilningi hversu langt stjórnvöld geta og hafa gengið gegn hagsmunum lántakenda án lagastoða. Á sama tíma halda bankarnir ótrauðir áfram í innheimtu sinni, án lagastoða og með fullu samþykki stjórnvalda sem þegar lögunum sleppir, senda frá sér eitthvað sem kallast tilmæli. Tilmælin eru svo neytendum í óhag, sem er klárt lögbrot.

Rakst á ágæta lýsingu á þessu öllu saman hér, leyfi mér að láta tengilinn flakka með http://fhg.blog.is/blog/fhg/entry/1085821/

sr (IP-tala skráð) 17.8.2010 kl. 13:10

2 identicon

Ráðherranefnd um efnahagsmál hefur eftirtalin verkefni:

Stefnumótun og samræming stefnu ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum

Eftirlit með framkvæmd efnhagsstefnu ríkistjórnarinnar

Samstarf við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn

Framtíðarskipan peningamála

Samræming í fjármálum ríkisins til skemmri og lengri tíma

Samskipti við aðila vinnumarkaðarins

Uppbygging fjármálakerfisins

Þetta má finna á heimasíðu forsætisráðuneytisins.

Í þessari nefnd sitja:

Jóhanna Sigurðardóttir

Steingrímur J Sigfússon

Gylfi Magnússon

Hvað skyldi vera spjallað á fundum þessarar nefndar?

Um stöðuna í gengistryggðum lánum? Vissu þau ekki af þeim vanda? Gleymdu þau að halda fundi? (Jóhanna var sjálf í sambærilegri nefnd á vegum hrunstjórnarinnar). Hversu lengi getur þetta fólk haldið blekkingunni áfram?

marat (IP-tala skráð) 17.8.2010 kl. 18:02

3 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Þetta er áhugavert - ég velti fyrir mér hvort þeir áttis sig á, hve nærri það gengur því að segja að skoðanir Seðló skipti yfirhöfuð engu máli, að halda því fram að skoðanir aðallögfræðings Seðló séu svoddan smáatriði :)

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 17.8.2010 kl. 18:59

4 identicon

Thetta er sorglegt med erlendu lanin, en thad er vel thekkt ad taka lan i annarri mynt en thu hefur tekjur ber toluverda ahættu og serstaklega fyrir sma myntsvædi. Thessi vaxtarmun vidskipti heldu margir islendingar vær peningarvel. 

Eg efast um ad Sedlabankinn,bankarnir og FME hafi i raun gert ser grein fyrir hversu katastrof afleidingar thetta gat haft i for med ser, en hagstjorn i landinu var ad visu tomt rugl.

Thetta hlytur ad vera a ykkar eigin abyrgd thott krakkarnir i bonkunum hafi radlagt ykkur ad taka thessi eitrudu lan.

Hvad hefdi gerst hefdi  islenska kronan styrkst um 50 % gagnvart yeninu og sveisar frank ...

grettirsterki1 (IP-tala skráð) 17.8.2010 kl. 20:36

5 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Grettir - þú lítur hjá því að skv. dómi eru þessi lán ekki í erlendum gjaldmiðlum heldur ísl. krónulán - sem er ástæða þess, að hann dæmdi verð-tenginguna við aðra  gjaldmiðla ólöglega.

Deilan snýr ekki lengur um hvort þau voru erlend, þ.e. búð að skera úr því, heldur hvaða vexti á að hafa á þeim lánum eftirleiðis.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 17.8.2010 kl. 20:43

6 Smámynd: Billi bilaði

Og, Einar, Grettir lítur líka algerlega fram hjá neytendarétti; (en hann skiptir víst hvort eð er ekki máli á íslandi).

Billi bilaði, 18.8.2010 kl. 03:43

7 identicon

Takk fyrir abendinguna.

   Thad sem mer finnst storkostlega undarlegt i thessu mali . Hvar er abyrgdin a thessu rugli ? Skadinn af thessu er ekki bara their sem toku lanin, fjarflædid hefur pustad allt hagkerfid og Sedlabankinn a sama tima ad halda tilbaka med hækkandi vøxtum . Islenska kronan styrkt ... fleirri spekulanter i kronuna...

Thetta er verri en Icesave

grettirsterki (IP-tala skráð) 18.8.2010 kl. 08:22

8 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Grettir - eitt er víst, að neytendur eru í mun lakari stöðu en bankarnir sjálfir, þegar kemur að því að slá slíkt mat. En, til þess þyrfti þá að fá sérhæfða lögfræðiaðstoð, sem almenningur almennt leggur ekki í að gera, nema verið sé að taka e-h stórt lán.

Neytendur eru alltaf í lakari stöðu, þegar þörf er á sérfræðiþekkingu er þeir búa ekki sjálfir yfir, til að taka upplýsta ákvörðun.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 18.8.2010 kl. 17:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 122
  • Sl. viku: 687
  • Frá upphafi: 1677709

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband