28.6.2010 | 14:46
Ja hérna, er kreppunni lokið!
Öðruvísi mér áður brá. Kreppunni lokið með allt upp í loft. Þýðir þetta þá að AGS er að fara heim?
Skoðun AGS á dómi Hæstaréttar kemur mér ekki á óvart, þar sem Franek Rozwadowsky greindi okkur hjá Hagsmunasamtökum heimilanna frá skilningi sjóðsins á dómnum sl. föstudag. Við bentum Franek á að sjóðurinn hafi fengið dapra lögfræðiráðgjöf varðandi þetta efni. Dómurinn hafi úrskurðað um þrennt: 1) leigusamningar eru lánasamningar; 2) gengistrygging er ólögleg; 3) samningarnir skulu að öðru leiti halda.
Ég verð þó að fagna því sem haft er eftir fulltrúum AGS um skuldavanda heimilanna. Í frétt mbl.is segir:
Fulltrúar AGS á Íslandi fagna lögum um aðstoð við fjölskyldur í skuldavanda sem samþykkt voru í síðustu viku. Meira þarf þó að gera til að bregðast við vandanum.
Sýnir þetta að AGS hlustaði á þennan hluta í málflutningi okkar hjá Hagsmunasamtökum heimilanna, enda tel ég að við höfum lagt fram haldgóð rök fyrir því.
Meira um þennan fund síðar, þegar frekari upplýsingar liggja fyrir.
Kreppunni lokið segir AGS | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 6
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 48
- Frá upphafi: 1680030
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 42
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Tenglar
Upplýsingaöryggi og persónuvernd
- Betri ákvörðun ráðgjafarþjónusta Marinós G. Njálssonar
- CISA, CISM, COBIT, Val IT
- Staðlaráð Íslands
- Heimasíða Persónuverndar
Hagsmunabarátta
- Hagsmunasamtök heimilanna
- Hugmyndir að úrræðum fyrir almenning
- Færa þarf höfuðstól lánanna niður
- Fólk þarf leið út úr fjárhagsvandanum
- Innlegg í naflaskoðun og endurreisn
- Er raunhæft að afnema verðtrygginguna eða setja henni skorður?
- Aðgerðaráætlun fyrir Ísland
- Hinn almenni borgari á að blæða
- Leið ríkisstjórnarinnar er röng
- Innantómar aðgerðir til stuðnings heimilunum
- Tillögur talsmanns neytenda
- Á hverju munu Íslendingar lifa?
- Verðbólga sem hefði geta orðið
- Aðgerða þörf strax - Tillaga að aðgerðahópum
- Mikilvægast að varðveita störfin
- Hvar setjum við varnarlínuna?
- 385 milljarða til bankanna og reikningurinn til heimilanna
- 2009 gengið í garð, ár endurreisnar, en hvernig endurreisn viljum við?
- Jöklabréf, erlend lán og vaxtaskiptasamningar
Færsluflokkar
- Áhættustjórnun
- Bloggar
- Dægurmál
- Efnahagsmál
- Endurreisn
- Ferðalög
- Ferðaþjónusta
- Heimspeki
- HRUNIÐ
- Icesave
- Íbúðalánasjóður
- Íþróttir
- Lánamál
- Leiðsögn
- Lífeyrissjóðir
- Lífspeki
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Neytendavernd
- Persónuvernd
- Skuldamál heimilanna
- Snjóhengjur
- Stjórnmál og samfélag
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Upplýsingaöryggi
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Já, Marínó og skuldir þínar eru greiddar. Þér er fyrirgefið. Nú verður þú að mæta í musteri Samfylkingar og biðja a.m.k. einu sinni á dag.
Sigurður Þorsteinsson, 28.6.2010 kl. 14:53
Þeir fara fyrst heim þegar við hættum að lána pening frá þeim, og við höfum borgað lánin til baka með vöxtum.
Bjarni (IP-tala skráð) 28.6.2010 kl. 15:33
Já er þá ekki bara allt í fína eða hvað. Almáttugur hvað ég er reið, já reiðari en andskotinn. Hvað vita þessir menn um venjulega íslendinga, ha. Þetta snýst um réttlætiskennd allra, nema what sagði Didda eftir Guðberg. Ég hef tapað í fjármálakerfi bankanna, á ekki neitt og skulda ekki neitt, en ég er fjúkjandi reið, vegna stöðu heimilanna.
Ingibjörg Kristrún Einarsdóttir, 28.6.2010 kl. 17:30
Já, þessar "tæknilegu forsendur" eru oft einkennilegar.
Ég verð þó að virða það við þá, að þeir fóru eftir ábendingum okkar og rökum um að staða heimilanna væri ennþá ekki nógu góð.
Marinó G. Njálsson, 28.6.2010 kl. 17:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.