Leita í fréttum mbl.is

Eygló á hrós skilið fyrir þrautseigjuna

Ég verð að taka hattinn ofan fyrir Eygló Harðardóttur í þessu máli.  Fyrst fékk hún því framgengt að haldinn var opinn fundur í viðskiptanefnd um verðtrygginguna og efnahags- og viðskiptaráðherra var fenginn til að láta útbúa skýrslu um málið.  Núna er komin þverpólitísk nefnd sem fjalla á um kosti þess og galla að draga úr vægi verðtryggingar.  Ég hélt að kerfið hefði hana undir í baráttu hennar, en það fór á annan veg.

Vissulega er á móti frestað öðrum ákvæðum frumvarps hennar, en vonandi verður það niðurstaða vinnu nefndarinnar, að tillögur hennar og raunar Hagsmunasamtaka heimilanna um 4% þak á árlegar verðbætur verði samþykktar á haustþingi.

Annars vil ég segja það um skýrsluna, sem Gylfi Magnússon fékk Askar Capital að taka saman, að hún er ekki pappírsins virði.  Nokkrir stjórnarmenn Hagsmunasamtaka heimilanna lásu yfir skýrsluna og í henni eru slíkar ambögur að mér finnst að ráðherra eigi að krefjast endurgreiðslu.  Ég mætti ásamt Friðriki Ó. Friðrikssyni á opinn fund viðskiptanefndar og bentum við á þeim fundi á mjög margt í skýrslunni sem í besta falli orkaði tvímælis, en í mörgum tilfellum bar vott um arfaslök vinnubrögð að okkar mati.  Viðskiptanefnd bað okkur um að semja greinargerð um gagnrýni okkar, en hún verður ekki rituð nema Alþingi eða ráðherra greiði okkur fyrir þá vinnu a.m.k. fjórðung af því sem ráðherra greiddi Askar Capital fyrir sína vinnu.

Það var fleira sem gerðist jákvætt á þingi og stjórnarheimilinu í dag.  Á ég þá við samkomulag um þinglok, sem byggir á því að "heimilispakkinn", eins og forsætisráðherra kallar hann verður tekinn fyrir í næstu viku, þ.e. eftir að dómur Hæstaréttar um gengistrygginguna liggur fyrir.  (Mér finnst "heimilispakkinn" vera nokkuð nálægt "heimilispakkið", þannig að eins gott er að enginn rugli þessu tvennu saman.)  Tókst að afstýra því að þing yrði sent heim áður en dómur Hæstaréttar félli.  Nú bíð ég, eins og fleiri, eftir niðurstöðu Hæstaréttar og vona að furðuleg skilaboð efnahags- og viðskiptaráðherra til réttarins trufli ekki störf hans.


mbl.is Nefnd skoði forsendur verðtryggingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Sammála, Eygló er fyrirmynd annarra þingmanna og á hrós skilið

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 16.6.2010 kl. 00:40

2 Smámynd: Viggó H. Viggósson

Marinó þú átt sjálfur heiður skilið fyrir þína þrautseigju.

BTW: hvers vegna 4%?

Viggó H. Viggósson, 16.6.2010 kl. 01:18

3 identicon

Verðtrygging er tvíeggjað sverð ef svo má segja því hún snýr að tvennu. Útlánum og innlánum. Varðandi útlánin hefur hún leikið fólk illa þegar verðbólgan hækkar en að sama skapi dregur hún úr gildi fjármuna á innlánsreikningum.

Hvers vegna 4% þak? Á því er sá annmarki að þegar þú leggur fé inn á verðtryggðan bankareikning og verðbólgan mælist 5% þá rýrnar fé þitt. Það bætir hins vegar stöðu lántakenda ef verðbólgan mælist meiri en 4%.

Það verður ekki bæði haldið og sleppt.

Þegar verðtrygging var tekin upp var það ekki eingöngu vegna útlána. Það var einnig til þess að fólk glataði ekki sparifé vegna verðbólgu.

Góð efnahagsstjórn er lykilatriði.

Hafþór Baldvinsson (IP-tala skráð) 16.6.2010 kl. 05:41

4 identicon

1. Munið að í verðtryggingu er innbyggður verðbólguhvati!

2. Fjármagnseigendur VERÐA að taka á sig byrðar líka. Annars hrynur kerfið til langs tíma litið! 22 þús. heimili eru komin í vanda nu þegar!
3. Auðvitað þurfa vextir að hækka eitthvað, en það er BETRA en það rán sem framið. Með afnámi verðtryggingar þá hækkar amk. íbúðalán hins almenna launþega  ekki ef t.d. brennivínið hækkar.

4. Við getum ekki verið EIN á báti í heiminum með þetta arðrán! Hvernig væri að láta reyna á þetta fyrir mannnréttindadómstólnum?

Hruturinn (IP-tala skráð) 16.6.2010 kl. 08:11

5 Smámynd: Viggó H. Viggósson

Fjármagnseigendur eru þeir sem "eiga" að tapa í fjármálakrísum.

Fjármagnið komst m.a. (aðalega) til þeirra vegna eignabólgu sem "þeir" bjuggu til og örvuðu með aðgerðum sínum. Jafn gríðarlegt og tap þeirra kann að vera, þá var væntanlega gróði þeirra jafn gríðarlegur (ef ekki "gríðarlegri") í aðdragandanum.

Þetta var þeirra geim, þeir töpuðu. Tjónið á að vera þeirra.

Við eigum ekki að sætta okkur við að hálfkák í þessu efni. Nú er einmit tíminn til þess að gera "truflandi" breytingar. Burt með verðtrygginguna.

Burt með dópið (verðtrygging er efnahagslegtdeyfilyf).

Viggó H. Viggósson, 16.6.2010 kl. 09:38

6 identicon

Dagskrá Hæstraréttar fyrir daginn er komin. Niðurstaðan í gengislánum kemur í dag.

Séra Jón (IP-tala skráð) 16.6.2010 kl. 10:53

7 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Rökin fyrir 4% þaki á verðtryggingu eru að það er jafn hátt yfirlýstu verðbólgumarkmiði seðlabankans. Með öðrum orðum myndi það þýða að ef tekst að halda verðbólgu í skefjum þá standast greiðsluáætlanir lántakenda. Ef hinsvegar verðbólgan fer framúr settu markmiði þá væri það á kostnað bankanna og fjármagnseigenda, í stað lántakendanna sjálfra. Fjármálakerfið í heild myndi þannig hafa beinan hag af því að stuðla að sem lægstri verðbólgu, öllum til hagsbóta.

Guðmundur Ásgeirsson, 16.6.2010 kl. 22:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 10
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 1678270

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband