Bloggfærslur mánaðarins, júní 2014
6.6.2014 | 20:07
Hæstiréttur að missa sig?
Ég get ekki annað en spurt mig þessarar spurningar í fyrirsögn pistilsins. Er Hæstiréttur að missa sig?
Í síðustu viku gekk dómur í máli nr. 338/2014, kröfu Landsbankans um að bú Ólafs H. Jónssonar verði tekið gjaldþrotaskipta, en Ólafur áfrýjaði dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í þá veru. Gjaldþrotaúrskurðurinn er byggður á því að einn dag í september 2013 hafi farið fram árangurslaust fjárnám hjá Ólafi. Gerð sem samkvæmt frétt Morgunblaðsins, Ólafi var ekki kunnugt um, en látum það gott heita.
Það eru hins vegar þessi orð Hæstaréttar sem mér er ómögulegt að skilja:
Að þessu virtu verður að líta á hið árangurslausa fjárnám, sem gert var hjá sóknaraðila 2. september 2013, sem sönnunargagn um ógjaldfærni hans. Breytir í því sambandi engu þótt skuldin sem leiddi til fjárnámsins hafi verið greidd. Á hinn bóginn getur sóknaraðili varist kröfu varnaraðila um gjaldþrotaskipti með því að sýna fram á að hann sé allt að einu fær um að standa skil á skuldbindingum sínum eða verði það innan skamms tíma, sbr. upphafsákvæði 2. mgr. 65. gr. laga nr. 21/1991. (Feitletrun er mín.)
og síðan:
Þótt sóknaraðili haldi því fram að krafan sé fyrnd eða fallin niður hefur sá ágreiningur málsaðila ekki verið til lykta leiddur fyrir dómstólum. Af þessum sökum verður ekki horft framhjá kröfunni við mat á því hvort sóknaraðili sé fær um að standa skil á skuldbindingum sínum eða verði það í bráð.
Hér eru tvö atriði sem ég skil ekki og hef ég talað við lögfræðing sem tekur undir það með mér.
- Er það ekki sönnun á gjaldfæri að hafa greitt kröfuna sem árangurlausa fjárnámið gekk út á? Hvernig er hægt að greiða kröfuna upp, ef gjaldfærið er ekki fyrir hendi? Hæstiréttur bendir á að aðrar kröfur séu með veðtryggingu og hvað stendur þá eftir?
- Hæstiréttur samþykkir að krafa sem ekki hefur verið sannreynd fyrir dómi að sé réttmæt sé grunnur að því að úrskurða um gjaldþrot. Ég hefði haldið, að Hæstiréttur hefði átt að vísa málinu frá eða aftur til héraðs, þar sem augljóslega er ágreiningur um kröfuna, Landsbankinn sæki á Ólaf um hvort krafan sé réttmæt, verði niðurstaðan Landsbankanum í hag, þá geti hann notað hana sem grunn í nýrri beiðni um að taka búið til gjaldþrotaskipta. Er það virkilega svo að þeir sem leggja fram kröfu um gjaldþrotaskipti þurfa ekki að sanna, að kröfur þeirra eigi við rök að styðjast og upphæðin sé sú sem þeir halda fram? Ef svo er, þá getur kröfueigandi sem sér fram á að verða undir í ágreiningsmáli einfaldlega krafist gjaldþrotaskipta og þannig hefnt fyrir að verða gefa eftir.
Líklegast er rétt að halda áfram með "rökstuðning" Hæstaréttar:
Að teknu tilliti til þess verður ekki talið að sóknaraðila hafi tekist að hnekkja líkum fyrir ógjaldfærni sinni sem leiddar verða af fjárnámsgerðinni 2. september 2013.
Þegar af þeirri ástæðu verður hinn kærði úrskurður staðfestur og þarf þá ekki að taka afstöðu til þess hvort aðrar kröfur varnaraðila, sem að framan greinir og enn eru óuppgerðar, séu nægilega tryggðar. (Feitletrun er mín.)
Þó ég sé ekki löglærður, þá sýnist mér Hæstiréttur teygja sig langt út fyrir það sem hann er spurður um. Lögð var fram krafa um gjaldþrotaskipti vegna kröfu sem hefur verið greidd. Samt telur rétturinn að honum hafi ekki "tekist að hnekkja líkum fyrir ógjaldfærni sinni". Er rétturinn farinn að velta fyrir sér hvort Ólafur gæti hugsanlega í einhverju öðru tilfelli ekki greitt. Ég hélt að rétturinn yrði að dæma samkvæmt staðreyndum, en ekki líkum. Höfum í huga að rétturinn lítur framhjá öllum öðrum kröfum sem á Ólaf eru gerðar. Af hverju á Ólafur að sanna gjaldfærni sína gagnvart kröfum sem rétturinn tekur ekki tillit til? Ef þetta er löghyggja, þá er eitthvað að lögunum.
Ormagryfjan hefur verið opnuð
Ég er ansi hræddur um að Hæstiréttur hafi opnað ormagryfjuna. Allir þeir aðilar sem hafa lent í árangurslausu fjárnámi geta nú lent í því að krafist verði gjaldþrotaskipta á búi þeirra þrátt fyrir að skuldin hafi verið gerð upp. Fjármálafyrirtæki og innheimtufyrirtæki hafa fengið opið skotleyfi á stóran hóp Íslendinga og geta þau með geðþóttarákvörðunum valið einstaklinga sem þeim er illa við. Kröfu sína get þau stutt með öðrum kröfum sem ágreiningur er um. Kröfuhafar þurfa nefnilega ekki að sanna að krafan sé gild. Nóg er að hún sé sett fram. Í þessu máli virðist mér t.d. að séu kröfur sem gætu fallið undir fordæmi dóma Hæstaréttar sjálfs vegna gengistryggðra lána! En Hæstarétti er sama. Það kemur honum ekki við hvort kröfurnar eigi við rök að styðja!
Já, nú eru allir sem einhvern tímann hafa lent í árangurlausu fjárnámi berskjaldaðir fyrir því að einhverju kröfuhafa, sem lent hefur í slíkri árangurslausri gerð, detti í hug eftir 10, 20 eða 30 ár að óska eftir því að bú viðkomandi verði tekið til gjaldþrotaskipta, þrátt fyrir að krafan hafi verið greidd. Og ekki bara átt á hættu að fá slíka kröfu á sig, Hæstiréttur hefur sett fordæmi um að vegna þess að einhvern tímann fyrir löngu hafi viðkomandi ekki verið gjaldfær, þá gildi það um aldur og ævi.
Eins og ég segi, þá er ég ekki löglærður, en get lesið lög. Sé Hæstiréttur að dæma að lögum, þá verður að breyta lögunum.
Greidd krafa grundvöllur gjaldþrots | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
3.6.2014 | 21:42
Orðræða og orrahríð sem netið geymir
Þegar ég var yngri og sérstaklega á barnsaldri, þá var oft talað falllega um gömlu dagana og oft notað setningarbrotið "þegar amma var ung..". Ja, þegar ömmur mínar og afar voru ung, þá var ekkert internet, þannig að þau þurftu ekki að óttast að það sem þau gerðu eða sögðu yrði ódauðlegt, nema svo (ó)heppilega vildi til að eitthvert skáld álpaðist til að setja söguna á blað. Það vill nú svo til að Þórbergur Þórðarson leigði um tíma herbergi af langafa mínum og -ömmu, en ég er ekki viss um að þau hafi ratað inn í neina af bókum hans. Verð samt að viðurkenna, að ég er ekki viss.
Við getum vissulega lesið skemmtilegar sögur um íslenska stjórnmálamenn, og þeir virtust hafa verið orðheppnir með ólíkindum. Hafa líklega aldrei mismælt sig eða sagt neitt rangt, hef ég eftir mér fróðari mönnum um efni ævisagna þeirra. Les ekki ævisögur og hef því ekki sannreynt það. Á þessum árum gat fólk sagt allt mögulegt og þó úr því yrði einhver munnmælasaga, þá var nokkuð víst að sú saga myndi breytast mikið og frekar verða betri en fyrirmyndin en verri.
Netið gleymir engu
En nú er öldin önnur. Nánast allt sem menn láta frá sér fer viðstöðulaust út á öldur ljósvakans. Ekki bara það, heldur festist það í stærsta kóngulóavefi allra tíma, veraldarvefnum. Þetta er vefur sem ekki slitnar og hann límir allt við sig sem einhverju sinni kemst í snertingu við hann. Þannig getum við ekki bara lesið hvað Sigmundur Davíð í raun og veru sagði, heldur líka hvað Illugi Jökulsson (svo dæmi sé tekið) heyrði hann segja. Við getum borið saman viðbrögð Dags Eggertssonar við gagnrýni á rússnesku rétttrúnaðarkirkjuna og viðbrögðum hans við tillögu um að kjósa um lóð undir mosku í Reykjavík. Við getum lesið fréttir af "ljótum" klæðnaði sjónvarpsfréttamanna, "ólögulegum" vexti þulunnar, "framhjáhaldi" veðurfréttamannsins og guð má vita hvað.
Sem betur fer þá endist margt af þessu ekki í minni okkar. Það kemur nefnilega eitthvað nýtt og ennþá meira krassandi sem tekur við. En kóngulóavefurinn geymir allt. Ef þið trúið mér ekki, þá vil ég benda á vefsvæðið Internet Archive: Webback Machine, en þar má finna afrit af gömlum vefsíðum sem ekki eru lengur í loftinu. Síðan má nota venjulegar leitarvélar og leita uppi allt og ekkert.
Orðstír deyr engum..
Ég velti því oft fyrir mér hvaða umræða stenst tímans tönn. Hvaða orðstír það verður sem ekki deyr? Menn gleyma nefnilega oft að erindin "Deyr fé, deyja frændur.." eru tvö. Annað fjallar um góðan orðstír, en hitt slæman. Það sem ég velti ekki síður fyrir mér, mun fólk horfa með stolti og ánægju til orða sinna og afhafna eða eftirsjá og leiða. Líklegast veltur það á athöfninni. Loks velti ég fyrir mér hvernig komandi kynslóðir munu líta á orðin. Munu börnin og barnabörnin fyllast stolti yfir framgöngu mömmu/ömmu eða pabba/afa á árum áður. Hver verður dómur sögunnar?
Ég ætlast svo sem ekki til að fólk breyti skoðunum sínum með þetta í huga, en mikið væri gott að það hugsaði aðeins hvers konar fyrirmyndir það er fyrir kynslóðina sem er að vaxa úr grasi.
Uppþot vegna moskuummæla
Mér fannst orð oddvita Framsóknarflokksins í Reykjavík um að setja lóðarúthlutun til Félags múslima í kosningu borgarbúa vera heimskulega, en ekkert meira. Hún notaði kjánaleg rök, en lýsti því jafnframt yfir að hún setti sig ekki upp á móti að reist yrði bænarhús félagsins(!) og ekki vildi hún skerða á neinn hátt frelsi múslima til að iðka trú sína. (Viðtalið má lesa hér.) Því miður voru flestir hættir að lesa/hlusta, þegar kom að þessum hluta viðtalsins og því misstu þeir af því.
Viðbrögð hinna sem fylltust réttlátri reiði voru eins og Guðs í Gamla testamentinu. Ofsafengin. Sódóma og Gómorra skyldi eytt með eldi og brennisteini. Skítt með þó flestir væru saklausir. Allir skyldu líða fyrir orð einnar manneskju. Og það eru þessi viðbrögð sem ég held að þegar framlíða stundir fólk myndi ekki vilja að komandi kynslóðir geti lesið. Málsmetandi einstaklingar, sem hafa sumir verið í kjöri til mikilsverðra embætta, misstu sig algjörlega. Fjöðrin varð fljótlega að heilu hænsnabúi. Vitræn hugsun vék til hliðar fyrir einhverri ófreskju sem á frekar skylt við berserki eða hamhleypur en það dagfarsprúða fólk, sem þessir einstaklingar líklegast eru.
Mér dettur ekki í hug að gagnarýna fólk fyrir afstöðu sína, það að vera á móti hömlum á trúfrelsi (eins og það túlkaði orð oddvitans), en ég skil ekki hvernig orðræðan fór frá því að vera sterk mótmæli við því sem fólk heyrði yfir í það að tala um rasista, fasista, nasista, útlendingahatur, miðjuöfgaflokk og algilt hatur á framsóknarfólki. Sérstaklega, þegar Sveinbjörg segir að allir eigi að geta iðkað trú sína og hún er hlynnt byggingu bænahúss. Verst fannst mér að sjá umræðuna toga út úr hinum dýpstu skúmaskotum samfélagsins virkilega veika einstaklinga, sem eru ekkert annað en rasistar, fasistar, nasistar og bera með sér útlendingahatur. Þá einstaklinga sem eru í raun og veru þeir lægstu af öllu lágu í þessu þjóðfélagi. En þeir þorðu að koma út vegna þess að þeir töldu sig eiga skjól hjá þeim sem urðu fyrir eldingaveðrinu. Og að ógleymdum þeim einstaklingum sem af óvitaskap sögðu hluti sem þeir iðrast að hafa sagt.
Var þetta raunverulegt eða sviðsett?
Líklega hefur hluti umræðunnar verið leikrit, þar sem verið var að prófa hve langt væri hægt að ganga í kosningabaráttunni. Hef ég t.d. enga trú á því að fólk hafi meint allt það sem það ritaði og sagði. Ég er fyrir langa löngu búinn að komast að því að maður tjáir sig á annan hátt í rituðu máli og ræðum, en maður gerir í mannlegum samskiptum. Hér var kominn heldur smekklaus hlið af Morfís-ræðukeppninni. Þó gekk svo langt að fréttist af því að einn góður fjölmiðlamaður hafi misst sig gagnvart konu sem hafði skoðanir honum ekki þóknanlegar, en hann baðst afsökunar og það sem meira var að skrif hans urðu umburðarlyndari á eftir.
Af umburðarlyndi umburðarlyndra
Það sem mér finnst skjóta skakkast við í þeirri orrahríð sem gengið hefur yfir undanfarna 10 daga, er hve hugtakið umburðarlyndi virðist hafa takmarkað svið. Umburðarlyndið virðist bara ná til þess sem viðkomandi er þóknanlegt. Hef ég nokkrum sinnum vísað til greinar Bergs Ebba Benediktssonar, leikara, Umburðarlyndi, þar sem hann segir á skoplegan hátt:
Umburðarlyndi er einn af mínum helstu kostum. Ég er umburðarlyndur maður og ég geri umburðarlyndi hátt undir höfði í skoðunum mínum til lífsins.
Umburðarlyndi er birtingarmynd samkenndar og samúðar. Það erum við umburðarlynda fólkið sem höldum þjóðfélaginu saman. Ef ekki væri til umburðarlynt fólk eins og ég þá væri hér hver höndin upp á móti annarri. Ég er stoltur af sjálfum mér því ég er ekki þrjóskur og þröngsýnn eins og flestir. Ég er umburðarlyndur.
Háðið náttúrulega skín í gegn eins og framhald greinarinnar ber með sér. En skilaboðin eru sterk. Allt of margir sem þykjast vera umburðarlyndir eru ótrúlega umburðarlausir. Ekki bara það, þeir eru alveg ótrúlega falskir og veigra sé ekki við að fara með rangt mál, snúa út úr, bera upp á fólk rangar sakir, misbjóða öllum nema skoðanabræðrum sínum, og til hvers? Að slá ómerkilegar pólitískar keilur og hugsanlega að fá fullnægingu sinna hvata. Ég velti því oft fyrir mér hversu leiðinlegu lífi fólk lifir sem er í þessari stöðu. Ef þetta er mesta skemmtun þess, hvernig eru þá hinir tímar sólarhringsins. Auðvitað lenda allir einhvern tímann í því að tala sér þvert um hug, en þessi múgsefjun sem við urðum vitni að í síðustu viku og reynt er að halda við á a.m.k. einum miðli, er ekki bara niðurdrepandi. Hún skemmir íslenskt samfélag og gerir það fráhrindandi. Maður veit nefnilega aldrei hver er næstur og fyrir hvaða uppblásnu sakir.
Því miður ekki einstakur atburður
Svona framkoma er ekkert afmarkað tilfelli. Hún er því miður allt of algeng. Kosningar virðast vera kjörið tækifæri, en þegar grant er skoðað, þá eru dagarnir færri, þar sem ekkert svona er í gangi en hinir, þar ofsi og níðskrif ráða umræðunni. Kannski er fólk ekki að höndla að geta tjáð skoðanir sínar fyrir framan tölvuna án þess að þurfa að horfa framan í þá manneskju sem verið er að fjalla um. Bland.is er vefur sem ég fer aldrei inn á, en maður les reglulega sögur af því sem þar fer fram. Einelti í skólakerfinu er stundum svo svæsið að manni bregður. En hvers vegna ættu börn og ungmenni að skilja alvarleika eineltis, þegar foreldrar þeirra stunda það á netinu dagsdaglega? Fyrirmyndin að hegðun barnanna er foreldrarnir, en hver er fyrirmynd foreldranna. Gleymum því ekki að orðræða okkar endurspeglar okkar innri mann.
Er ekki kominn tími til að breyta orðræðunni? Hefja hana upp á hærra plan. Sýna hverju öðru þá virðingu sem við viljum að okkur sé sýnd. Vera börnunum okkar góð fyrirmynd á sem flestum sviðum. Enginn er gallalaus, en berum persónuleikagalla okkar í hljóði. Sýnum aðgát í nærveru sálar.
Hvet svo í lokin alla til að lesa hið magnaða ljóð Einars Benediktssonar, Einræður Starkaðar, en hann fjallar um flest af því ég er hér að fjalla um, þó sjónarhornið sé oft annað.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 38
- Sl. sólarhring: 67
- Sl. viku: 346
- Frá upphafi: 1680484
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 41
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Tenglar
Upplýsingaöryggi og persónuvernd
- Betri ákvörðun ráðgjafarþjónusta Marinós G. Njálssonar
- CISA, CISM, COBIT, Val IT
- Staðlaráð Íslands
- Heimasíða Persónuverndar
Hagsmunabarátta
- Hagsmunasamtök heimilanna
- Hugmyndir að úrræðum fyrir almenning
- Færa þarf höfuðstól lánanna niður
- Fólk þarf leið út úr fjárhagsvandanum
- Innlegg í naflaskoðun og endurreisn
- Er raunhæft að afnema verðtrygginguna eða setja henni skorður?
- Aðgerðaráætlun fyrir Ísland
- Hinn almenni borgari á að blæða
- Leið ríkisstjórnarinnar er röng
- Innantómar aðgerðir til stuðnings heimilunum
- Tillögur talsmanns neytenda
- Á hverju munu Íslendingar lifa?
- Verðbólga sem hefði geta orðið
- Aðgerða þörf strax - Tillaga að aðgerðahópum
- Mikilvægast að varðveita störfin
- Hvar setjum við varnarlínuna?
- 385 milljarða til bankanna og reikningurinn til heimilanna
- 2009 gengið í garð, ár endurreisnar, en hvernig endurreisn viljum við?
- Jöklabréf, erlend lán og vaxtaskiptasamningar
Færsluflokkar
- Áhættustjórnun
- Bloggar
- Dægurmál
- Efnahagsmál
- Endurreisn
- Ferðalög
- Ferðaþjónusta
- Heimspeki
- HRUNIÐ
- Icesave
- Íbúðalánasjóður
- Íþróttir
- Lánamál
- Leiðsögn
- Lífeyrissjóðir
- Lífspeki
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Neytendavernd
- Persónuvernd
- Skuldamál heimilanna
- Snjóhengjur
- Stjórnmál og samfélag
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Upplýsingaöryggi
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði