Leita í fréttum mbl.is

Sorg og áfall

Þegar ég heyrði af því í hádegisfréttum RÚV að brotist hefði verið inn í steinasafnið að Teigarhorni og þaðan stolið öllum geislasteinum safnsins, þá fann ég fyrir sorg í hjarta.  Er virkilega svona komið fyrir landinu, að dýrmætustu gersemar þess eru ekki lengur óhultar nema í rammgirtum söfnum. 

Já, safnið að Teigarhorni var meðal mestu náttúrugersemum okkar.  Þó ég hafi ekki komið á það, þá hef ég lesið nóg um það til að vita hvað það hafði að geyma.  Þarna voru einstakir steinar á heimsvísu.

Án þess að vita málavöxtu, þá finnst mér ekkert annað koma til greina, en hér hafi fagmenn verið á ferð.  Þeir vissum hvað átti að taka og hverju átti að sleppa.  Hugsanlega var þetta gert eftir pöntun einhverra óprúttinna aðila úti í heimi.  A.m.k. dettur varla nokkrum í hug, að hægt væri að koma safninu í verð hér innan lands.  Svona rán hefur vafalaust verið skipulagt út í hörgul.  Þjófarnir líklegast komið þarna oft við og spurt út í sýningargripi.  Þeir hafa kortlagt ferðir heimafólks og hugsanlega dvalið á Djúpavogi eða í nágrenni í dágóðan tíma síðustu mánuði.  Eða að þeir hafa haft vitorðsfólk, sem hefur veitt þeim allar þessar upplýsingar.

Ýmsar spurningar vakna við þessa frétt.  Ein sú fyrsta var hvort búið sé að kortleggja ýmis verðmæti landsins og ætlunin sé að stela þeim smátt og smátt.  Hvers vegna ekki?  Hér vaða uppi skipulagðir glæpahópar, sem hafa ákveðið að breyta Íslandi í hverfi austur evrópskra borga, þar sem vændi, ofbeldi og fíkniefni er það sem íbúarnir þurfa að sætta sig við.  Þessir guttar hafa að sjálfsögðu uppgötvað, að hér eru ýmis verðmæti geymd án daglegs eftirlits, þó ég ætli ekki að kenna þeim endilega um þetta atvik.

Þessi sorglegi atburður að Teigarhorni kallar líklegast á gjörbreytt viðhorf til verndar verðmæta út um allt land.  Hvert einasta safn, þarf að framkvæma áhættumat, þar sem tekið er tillit til ógna í umhverfi þessi.  Hvað kemur út úr slíku áhættumati, ætla ég ekki að ákveða hér og nú, en líklegast verður það eitthvað annað en óbreytt ástand.


mbl.is Um 500 steinum stolið á Teigarhorni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sammála þér Marinó með að illa er komið.  Það er sérstakt lið sem stelur steinum, fyrir annað en hreina heimsku, því við það að stela þeim missa þeir gildi sitt.

Þetta steinasafn var m.a. byggt upp á geislasteinum (zeolitum)sem eru einstakir, sjá HÉR .

Teigarhorn er heimsþekkt fyrir þessa steina og þar eiga þeir heima.  Hver hefur smekk fyrir því að punta með stolnum geislasteinum sem hann getur hvorki selt né sýnt?

Magnús Sigurðsson, 17.10.2009 kl. 17:54

2 Smámynd: Arnór Baldvinsson

Sæll Marinó,

Sammála þér um þetta.  Því miður er ekki ósennilegt að þetta safn sé nú þegar komið í kassa á brettum inni í gám.  Vonandi tekst lögreglunni að stoppa þetta áður en það fer úr landi.  Nágranni okkar hinu megin við götuna er steinasafnari og á all stórt steinasafn og fer með valda steina á sýningar út um öll Bandaríkin.  Hann á námu í Idaho þar sem hann grefur upp bleikt Heulandite.  Það er óhemju vinna sem fer í að byggja upp þessi söfn og sennilega er það verðmæti sem eigendurnir áætla mjög vanmetið ef þeir taka með alla þá vinnu sem þeir hafa lagt á sig til að koma þessu upp. 

Kveðja,

Arnór Baldvinsson, 17.10.2009 kl. 18:29

3 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Þetta er rétt að byrja Marínó. Brátt verðum rúin inn að skinni og meira til, ekki bara af þjófagengjum heldur einnig af bönkum, ríkisstjórn, erlendum fjárfestum sem vilja sitt til baka, alþjóðlegum stórfyritækjum sem hirða orkuna og vatnið fyrir lítið ásamt fleirum sem renna til okkar hýru auga. Svartsýnt, já en er þetta ekki myndin sem blasir við okkur?

Kveðja að norðan.

Arinbjörn Kúld, 20.10.2009 kl. 21:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 1678119

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband