Leita í fréttum mbl.is

Nýja-Kaupþing krafsar í bakkann

Heldur finnst mér hún aum vörnin sem Nýja Kaupþings heldur uppi í þessu máli:

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum, segir í greinargerð með frumvarpi til laga nr. 38 frá árinu 2001, að ekki sé „heimilt að binda skuldbindingar í íslenskum krónum við dagsgengi erlendra gjaldmiðla.“ Það er hins vegar löglegt að veita lán í erlendum gjaldmiðli. Slík lán bera erlenda vexti en skuldbindingar í íslenskum krónum bera íslenska vexti.

Ef það eiga að vera öll rökin að það velti á hvert vaxtaviðmiðið er hvort fjárskuldbinding er í íslenskum krónum eða ekki, þá velti ég því fyrir mér hvers vegna er þá verið að  tala um "gengistryggingu" og "gengisviðmið" í mörgum þessara lánasamninga.  Og þegar um er að ræða blandað lán, þ.e. að hluta með viðmið í íslenskum krónum og hluta í erlendum gjaldmiðli, hvar fellur það inn í þessa skilgreiningu Nýja Kaupþings.

Hagsmunasamtök heimilanna hafa fengið munnleg álit fjölmargra lögmanna og lögfræðinga um þetta mál.  Ef samtökin væru nægilega fjársterk, þá hefðum við óskað eftir skriflegum rökstuðningi og greitt fyrir hann.  Við höfum líka heimildir fyrir því að gert sé ráð fyrir því að gengistryggð lán heimilanna verði flutt frá gömlu bönkunum til þeirra nýju með allt að 50% afslætti.  Hvers vegna skyldi það vera?  Ætli það sé vegna þess að menn efast um lögmæti lánanna?  Spyr sá sem veit ekki.


mbl.is Engin gjaldeyrislán hjá Nýja-Kaupþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Ég er nú sv greindarskert að ég skil ekki þessa yfirlýsingu KB banka?

Veit um fullt af erlendum lánum hjá þeim, en auðvitað fyrir FALLIÐ! Á það að hvítþvo alla bankana að það hafi orðið hrun 8. okt 2008?

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 10.9.2009 kl. 21:28

2 identicon

Samkvæmt lánasamningum á að vera unnt að breyta körfunni þannig að menn geti hliðrað til myntum. Það eitt og sér var tekið út þegar bankarnir féllu þannig að fólk gat ekki losað sig við JPY hluta lánanna og sat uppi með gríðarlegt fall.

Nokkuð viss um að þetta eitt og sér ætti að duga til að vinna mál gegn bankanaum. Hvað heldur þú Marinó ?

Björn Kristinsson (IP-tala skráð) 11.9.2009 kl. 08:48

3 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Björn, alveg frá því að ég fjallaði fyrst um þetta í febrúar hef ég verið sannfærður um að maðkur væri í mysunni.  Orðaleikir skila mönnum sjaldnast neitt, eins og þú bendir á.  Lánið getur ekki verið japönsk skuldbinding, ef hægt er að skipta um mynt hvenær sem er.

Ég hef fengið munnleg álit nokkurra lögfræðinga, auk þess sem nokkrir aðrir hafa komið með skoðun sína fram í fjölmiðlum.  Allir þessir aðilar eru á einu máli um að verið var að brjóta lög.  Það er líka merkilegt, að þeir sem þó hafa risið upp bönkunum til varnar hafa ekki kmoið með nein haldgóð rök.

Marinó G. Njálsson, 11.9.2009 kl. 08:58

4 identicon

Þetta eru bara bull rök eins og venjulega hjá bönkunum.

Þetta eru og voru alltaf Íslensk krónulán en með gengisviðmiði sem er ólöglegt samkvæmt lögunum um vexti og verðtryggingu. Það er hinsvegar ekki bannað að lána mönnum á neikvæðum raunvöxtum þannig að bankarnir geta ekki breytt þessu eftir á.

Þetta eru og voru IKR lán með 2-4% vöxtum og aðeins á að miða við gengi á tökudegi, þannig eru menn með góð vaxtakjör í IKR og allt sem umfram hefur verið greitt er aðeins innborgun á höfuðstól frá greiðsludegi að telja.

Þetta er eina leiðinn til að lenda málinu eftir að lánin verða dæmd ólögleg, þ.e. gegnisþáttur þeirra. 

Magnús Orri Einarsson (IP-tala skráð) 22.9.2009 kl. 15:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 1678220

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband