Leita í fréttum mbl.is

Námskeið: Áhættustjórnun og stjórnun rekstrarsamfellu

Dagana 20. og 21. apríl verður haldið á vegum Betri ákvörðunar ráðgjafaþjónustu námskeið um  Áhættustjórnun og stjórnun rekstrarsamfellu.  Námskeiðið hefst kl. 9.00 báða dagana og stendur til um kl. 17.00.

MARKMIРnámskeiðsins er að kynna aðferðafræði við áhættumat og samspil áhættumats og stjórnunar rekstrarsamfellu.

Áhættustjórnun og stjórnun rekstrarsamfellu eru tveir af grunnþáttum í góðum stjórnháttum fyrirtækis. Fátt er mikilvægara en að fyrirtæki hafi góða vitneskju um ógnir og hættur í umhverfi sínu og grípi til viðeigandi ráðstafana til að draga úr áhrifum þeirra á rekstrarleg og viðskiptaleg markmið.  Þetta er hægt að gera með því auka þol fyrirtækisins fyrir áhrifum óæskilegra atvika í rekstrarumhverfi þess með því að greina hver slík óæskileg atvik geta verið og grípa til ráðstafana til að styrkja inniviði fyrirtækisins.  Atburðir undanfarinna mánaða ættu að segja fyrirtækjum að slíkt er bráð nauðsynlegt.

Á námskeiðinu er stuðst við staðla og viðurkenndar aðferðir.  Meðal þeirra staðla og aðferða sem stuðst er við á námskeiðinu má nefna ISO 27001, ISO 27002, ISO 27005, BS 25999, BS 31100 og CobiT (Control Objectives for Information and Related Technology).

Leiðbeinandi á námskeiðinu er Marinó G. Njálsson, tölvunarfræðingur og sérfræðingur í stjórnun upplýsingaöryggis, M Sc og Engineer Degree Operations Research, Stanford University.  Marinó hefur undanfarin 9 ár veitt ráðgjöf vegna öryggisstjórnunar, áhættustjórnunar og stjórnunar rekstrarsamfellu.

Verð kr. 80.000, innifalið námskeiðsgögn, léttar veitingar og hádegisverður.  Veittur er 10% afsláttur ef tveir eða fleiri koma frá sama aðila.

Námskeiðið verður haldið miðsvæðis í Reykjavík.  Endanleg staðsetning verður tilkynnt síðar.

Skráning á námskeiðið er hafin og fer hún fram með því að senda tölvupóst á oryggi@internet.is.  Þar eru einnig veittar nánari upplýsingar, ef óskað er.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Offari

Er þetta námskeið ætlað næstu kynslóð fjárfesta? mikið hefði ég viljað að þú hefðir tekið alla útrásarvíkingana á svona námskeið fyrir svona sirka tíu árum.

Offari, 4.4.2009 kl. 15:37

2 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Ég ætla nú ekki að setja mig á þann háa hest að halda því fram, að eitt svona námskeið hefði bjargað öllu.  Hitt er vitað, að áhættustjórnun og stjórnun rekstrarsamfellu var eitt af því sem fór úrskeiðis.  Ég er raunar búinn að vera að vekja athygli fyrirtækja á stjórnun rekstrarsamfellu hér á blogginu í hart nær 2 ár.  Ég hef unnið með nokkrum aðilum að þessum málum og hjá einum þeirra reyndi vel á þessi máli í haust.  Fyrirtækið stóðst áraunina.

Hitt er annað mál, að haustið 1991 og vorið 1992 hélt ég nokkur námskeið um markvissari ákvörðunartöku.  Þá vildi DV endilega senda alla þingmenn á námskeið hjá mér

Marinó G. Njálsson, 4.4.2009 kl. 18:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 1678235

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband