Leita í fréttum mbl.is

SPRON in memoriam

Sparisjóðurinn minn, SPRON, er allur.  Hann var lýstur látinn af Gylfa Magnússyni, viðskiptaráðherra, á fréttamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu.  Búi hins látna hefur verið ráðstafað og fellur það að mestu í hlut afkvæmi hans, þ.e. Kaupþings, þó svo að afkvæmið hafi í fyrir löngu slitið öll tengsl við uppruna sinn og fyrirgert sér erfðarétti.  Mun ég syrgja hinn látna og votta starfsfólki og aðstandendum samúð mína.  Ég vil þakka þeim fjölmörgu starfsmönnum SPRON, Frjálsa fjárfestingabankans og Netbankans fyrir viðskiptin og góða þjónustu í gegnum tíðina.  Þið hafði sýnt einstaka þjónustulund og eigið bestu þakkir fyrir.

Að SPRON flytjist yfir í Kaupþing er í sjálfu sér ekkert annað en það sem stefndi í sl. haust.  Þá benti allt til þess að SPRON sameinaðist Kaupþingi í kjölfar þeirra erfiðleika sem SPRON átti í þá.  Ekkert varð úr því vegna falls Kaupþings og var ég fenginn því, en þetta reyndist skammgóður vermir.  Nú er það búið að gerast sem ég óttaðist.

Gylfi Magnússon segir að ekki flytjist allur hluti af starfsemi SPRON til Nýja Kaupþings.  Það verður að koma skjótt í ljós hvað fer á milli og hvað verður eftir.

 


mbl.is SPRON til Kaupþings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Mig langar að bæta því við, að í október og nóvember átti ég mörg samtöl við starfsmenn SPRON og Frjálsa fjárfestingabankans.  Þá þakkaði fólk sínu sæla í upphafi hverrar viku, þegar í ljós kom að það hafði vinnu.  Um hver mánaðarmót þá beið fólk spennt eftir því hvort það fengi launin sín.  Síðustu skipti sem ég ræddi við þetta sama fólk, þá var vonleysið orðið meira hjá FF, en bjartsýnin ríkjandi hjá SPRON.

Nú hefur komið fram að MP banki hafi áhuga á að kaupa hluta af útibúaneti SPRON.  Ég vona að af því geti orðið.  Það yrði mikil blessun fyrir fjármálakerfi höfuðborgarsvæðisins, að einhver utan þeirra hópa sem áttu sök á hruninu byði upp á fjármálaþjónustu fyrir almenning á svæðinu.  Núna höfum við val um nýjan Glitni, nýjan Landsbanka, nýtt Kaupþing og BYR á brauðfótum sem var mergsogið af gráðugum eigendum sínum.

Marinó G. Njálsson, 23.3.2009 kl. 09:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 1678165

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband