Leita í fréttum mbl.is

Aðgerðir fyrir heimilin

Ég vil byrja á því að fagna þeim ásetningi hinnar nýju ríkisstjórnar að stoppa nauðungarsölur á íbúðarhúsnæði næstu 6 mánuði.  Þetta er mikilvægt skref til að koma í veg fyrir að fjölskyldur verði sendar út á Guð og gaddinn.

Í mínum huga eru nokkur verkefni ákaflega brýn:

  1. Að ráðast strax að hinu vaxandi atvinnuleysi.  Ég hef sagt að það sé betra að borga fyrirtækjum fyrir að hafa fólk í vinnu, en að borga fólki bætur fyrir að hafa ekki vinnu.  Fjölmörg fyrirtæki eru að líða fyrir það núna, að heimilin og fyrirtæki eru að skera niður útgjöld.  Þjónusta þessara fyrirtækja er mikilvæg fyrir samfélagið, þó svo að einhverjir geti verið án hennar.  Má þar nefna alls konar tómstundastarfsemi og útgáfufélög.
  2. Afnema þarf verðtrygginguna.  Í mínum huga eru tvær ástæður fyrir því.  Fyrst er að verðbætur hafa samkvæmt upplýsingum frá Seðlabankanum verði ofmetnar um áraraðir og því erum við að greiða hærri verðbætur á verðtryggð lán en við ættum í raun og veru að hafa gert.  Síðari ástæða er sú sem Gunnar Tómasson lýsti í Silfri-Egils í gær.  Verðtrygging er skuldaaukning án verðmætaaukningar.  Í nærri 20% verðbólgu hefur sú upphæð sem heimilin þurfa að greiða af lánum sínum aukist um ríflega 200 milljarða, en á sama tíma er mikil samdráttur á þjóðarframleiðslu og tekjum.  Það getur einfaldlega ekki staðist að lánakerfið getið tekið þessa 200 milljarða til sín.  Ég hef sett fram svipaða hugmynd og Gunnar nefndi í gær, þ.e. setja hluta af höfuðstól lánanna í afskriftarsjóð, sem annað hvort yrði greitt af eftir sérstökum reglum eða afskrifað á löngum tíma (sjá Tillögur talsmanns neytenda frá 9. október!).  Málið er að núna er tækifæri til að afnema verðtrygginga.  Verðbólgan er á hraðri niðurleið og verður (vonandi) komin niður fyrir 5% við árslok.  Ég hef áður lagt til að byrjað verði á því að setja þak á verðbætur (og vexti líka).  Aðrir hafa gengið lengra og hreinlega lagt til að verðtryggingin verði aftengd strax og þær verðbætur sem ættu að leggjast á lán annað hvort falli niður eða leggist í afskriftarsjóð.  Hvor leiðin sem farin er, þá væri hægt að afnema verðtrygginguna alveg á 2-3 árum.
  3. Bregðast við hækkun höfuðstóls og greiðslubyrði.  Búin hefur verið til greiðslujöfnunarvísitala vegna verðtryggðra lána.  Hún dregur tímabundið úr greiðslubyrði, en frestar bara vandanum.  Sama á við, ef útbúið verður einhvers konar greiðslujöfnunargengi.  Eins og ég bendi á að ofan, þá stendur engin verðmætaaukning að baki hækkunar höfuðstóls lánanna.  Það er því vonlaust að fólk geti nokkru sinni unnið upp hækkunina, án þess að meiri verðbólga verði sem hækkar þá höfuðstólinn enn frekar.  Mér finnst mikilvægt að skoða hvaða skuldbindingar liggja að baki lánunum hjá lánastofnunum.  Við skulum hafa í huga að búið er að leggja háar upphæðir af almannafé í að bjarga ríkisbönkunum.  Mér finnst bara allt í lagi að almenningur njóti þess með niðurfærslu höfuðstóls lánanna.  Ég legg til að höfuðstóll lánanna verði miðaður við gengi og vísitölu 1. mars 2008.
  4. Gæta þarf að því, að hluti íbúðalána fólks er hjá öðrum en ríkisbönkunum þremur eða Íbúðalánasjóði.  Mér finnst það oft gleymast.  Það hefur ekkert verið gert út af þeim lánum.  Allt er miðað við þríburana eins og ekkert annað sé til.
  5. Jafnræði þarf að vera á milli aðgerða.  Búið er að leggja tugi, ef ekki hundruð, milljarða í að bjarga sparifé hluta landsmanna.  Af hverju eitt sparnaðarform er varið með sértækum aðgerðum á kostnað allra landsmanna, en það er talið í lagi að aðrir beri tap sitt.  Hér þarf að hugsa málið betur.  Það gengur ekki að almennir hlutafjáreigendur eigi að bera allt sitt tjón óbætt, meðan sá sem lagði peninginn inn á sparireikning fær sitt bætt.  Á þeim tíma sem fólk keypti þessi hlutabréf, þá voru þau jafn örugg sparnaðarleið og innistæðureikningar.  Það er því út í hött að öðrum eigi að bjarga en ekki hinum.  Sama gildir um þá sem lögðu sparnað sinn í steinsteypu.  Ég geri mér grein fyrir að verðmæti húsnæðis sveiflast, en hér erum við að tala um hrun á eigin fé, sem sambærilegt tap sem hefði orðið á innlánsreikningum, ef ríkið hefði ekki komið til bjargar.  Ég fæ ekki betur séð, en að hér sé verið að fara á skjön við jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar.  Ég verð að viðurkenna, að ég skil ekki af hverju sumir eiga að tapa milljónum, ef ekki milljóna tugum, að sparnaði sínum af því að þeir völdu að hafa hann ekki á innlánsreikningum.
Mér líst mjög vel á það að slá eigi skjaldborg um heimilin, en það verður ekki gert nema gripið verði til alvöru aðgerða.  Ég býð spenntur.
mbl.is Slá skjaldborg um heimilin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Offari

Mér líst illa á þá hugmynd að borga fyrirtækjum fyrir að hafa fólk í vinnu, Því það býður upp á misnotkun. Ég vill að illa rekin fyrirtæki verði tekin af eigundum sett í skilanefnd og starfsmenn fengnir með í að skipuleggja uppbygginguna.

Að fresta gjaldþrotum í 6 mánuði er aðgerð sem í raun getur aukið vandan því alltaf kemur að skuldadögum. Fasteignir munu falla í verði hægt er að stýra því falli með því að afskrifa skuldir strax. Snögg 40% lækkun gæti komið fasteignamarkaðnum af stað aftur.

Ef fasteinaverði verður haldið nauðugu uppi er ljóst að þegar það fellur fellur það hratt og markaðurinn fer ekki aftur í gang fyrr en menn eru öruggir um að botninu sé náð. þá á ég við að miklu meira verðfall og mun fleiri gjaldþrot en þurfa að vera.

Ég vill ekki fara síðari leiðina því það verður mun erfiðara að ná okkur upp úr þeim hörmungum. Ég er kannski óþarfa svartsýnn en ég vinn meina að keyra þurfi kreppuna niður áður en uppbygging hefst á ný. Uppbyggingin getur einfaldlega ekki hafist fyrr en niðurleiðini er lokið.

Offari, 2.2.2009 kl. 12:15

2 Smámynd: Kristján Sigurður Kristjánsson

Ég held að þú getir aflétt spennunni. Tvennt er öruggt:

1.Heimilin munu borga sinn síðasta eyri án afsláttar.

2. Heimilin munu að auki borga skuldir fyrirtækjanna.

þetta staðfesti forsætisráðherra í Kastljósinu í kvöld. Mig datt í hug saga af manni sem þurfti að lóga hundinum sínum. Ekki vildi hann láta skjóta hundinn vegna þess að hann mundi kveljast. Þá datt honum snjallræði í hug, skera af honum hausinn. En til að stilla kvölunum í hóf ákvað hann að skera bara pínulítið á hverjum degi þangað til hausinn væri farinn af. Þetta er nákvæmlega sem núverandi ríkisstjórn ætlar að gera.

Kristján Sigurður Kristjánsson, 2.2.2009 kl. 21:36

3 identicon

Takk fyrir þínar skoðanir á því hvað heppilegast er að gera Marinó. Tók mér það bessaleyfi að búa til tengil við þessa færslu þína í minni færslu. Rétt að láta vita. Vona að þú hafir ekki á móti því.  Með kveðju.

Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 2.2.2009 kl. 22:06

4 Smámynd: Karl Ólafsson

Marinó,

ég vil þakka þér fyrir að halda gangandi umræðunni um afnám verðtrygginarinnar. Mig hefur skort úthaldið til þess eftir að hafa bloggað mig hásan um málið í haust, því ég sá strax rétt eins og þú hvílíkt tækifæri þetta bankahrun er til þess að endurskoða meingallað kerfi. Ef þessar tölur sem þú nefnir og nefndar hafa verið aftur og aftur, 200 milljarðar í væntanlegar verðbætur ofan á höfuðstól veðlána fasteignakaupenda á ca. 6 mánuðum, sýna ekki svart á hvítu hvers vegna kerfið gengur ekki upp þá er mönnum (og lífeyrissjóðum) ekki við bjargandi.

Því miður hef ég ekki séð eða heyrt neinar uppörvandi fréttir af áætlunum nýju ríkisstjórnarinnar í tengslum við verðtrygginguna þ.a. ég er að hugsa um að halda ekki niðri í mér andanum. Ég óttast að lífeyrissjóðirnir séu enn í hvílíkri afneitun í þessu máli að þeir haldi enn stjórnmálamönnum okkar í einhverjum helgreipum þannig að þeir einfaldlega þora ekki að hreyfa við þessum málum.

Gunnar Tómasson var frábær í Silfrinu í gær. Grein hans í Fréttablaðinu í haust hefði átt að hreyfa við mönnum, en ef ekki þá átti allur efi að hverfa við að hlusta á hann í gær. Verðtryggingin verður að fara.

Sigtúnshópurinn sem oft er vitnað til upp á síðkastið náði fram leiðréttingu sinna mála eftir að hafa liðið óréttlæti sökum galla í verðtryggingarkerfinu. Það sem hins vegar hefur aldrei verið gert upp í því sambandi er að aðeins þeir sem keyptu fyrstu íbúð sína á 'misgengistímanum' fengu bætur. Aðrir sem t.d. keyptu sína fyrstu íbúð 1982-1982 (m.a. undirritaður), sem sannanlega urðu í raun fórnarlömb nákvæmlega sama misgengis, fengu ekki krónu í bætur! Ég var á þeim tíma ungur og óþroskaður og beit á jaxlinn og steinþagði og hélt áfram að ýta á undan mér snjóboltanum sem aldrei hefur síðan náð að bráðna.

Hvenær er næsti opni fundurinn hjá hagsmunasamtökunum og hvernig get ég blandað mér í þá vinnu sem þar er unnin? Ég get ekki þagað málið í hel í þessari umferð og ég get ekki velt snjóboltanum fleiri hringi.

Karl Ólafsson, 3.2.2009 kl. 01:54

5 Smámynd: Karl Ólafsson

Afsakið, 1981-1982 átti að standa í fyrri athugasemd minni, ekki 1982-1982. (Lesa yfir áður en maður ýtir á 'Senda' :-(  )

Karl Ólafsson, 3.2.2009 kl. 01:56

6 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Karl, við erum venjulega með opið hús á fimmtudögum kl. 20.00 í Borgartúni 3.  Ákvörðun um næsta fimmtudag hefur þó ekki verið tekin ennþá.

Marinó G. Njálsson, 3.2.2009 kl. 01:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 1678129

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband