7.1.2009 | 22:47
Sigmundur pissar í skóinn sinn.
Svona út frá fyrirsögn fréttarinnar: Er ófjandsamleg yfirtaka á stjórnmálaflokki til? Ég er að velta fyrir mér hvernig ófjandsamleg yfirtaka fer fram. "Heyrið þið mig gott fólk, er ykkur ekki sama þó þið takið yfir flokkinn?" Það heitir ekki yfirtaka, þegar forystuskipti verða í stjórnmálaflokka á vinsamlegum nótum. Það heita valdaskipti. Raunar var það sem gerðist í gærkvöldi ekki yfirtaka, þar sem ekki var verið að kjósa stjórn í Reykjavíkurfélaginu, heldur að velja fólk til að fara á flokksþing. Hugsanlega var verið að undirbúa valdaskipti sem ekki er öllum aðilum þóknanleg. En að tala um fjandsamlega yfirtöku lýsir í besta falli sjálfsmikilvægi þeirra sem héldu að þeir gætu ráðið hverjir ættu að fara á flokksþingið.
Annars er til einföld lausn á svona málum. Til þess að geta tekið þátt í atkvæðagreiðslu, þá þarf viðkomandi að hafa verið félagi í minnst viku. Þá vita báðir aðilar (ef svo má segja) að eitthvað stendur til og geta búið sig undir átökin.
Hitt er, að það er sorglegt, að Sigmundur skuli kjósa að fara þessa leið. Með þessu veldur hann miklum skemmdum á uppbyggingarstarfi flokksins og staðfestir að Framsókn er flokkur bræðravíga, líkt og hann hefur verið um áraraðir. Ég held að Sigmundur hafi pissað í skóinn sinn og þetta verði til þess að stuðningsmenn Páls þjappa sér saman um Höskuld Þórhallsson, sjái þeir fram á að Páll verði undir í baráttunni við Sigmund. Mér finnst þetta líka klaufalegt hjá Sigmundi að því leiti, að hann er að senda út þau skilaboð, að hann geti ekki unnið þetta kjör á eigin verðleikum. Að hann sé ekki nógu sterkur einstaklingur til að ná kjöri út á það sem hann stendur fyrir, heldur komist hann eingöngu í formannsstólinn með því að beita bolabrögðum. Eins og ég sagði áður. Sorgleg niðurstaða.
Fjandsamleg yfirtaka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 3
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 1680018
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Tenglar
Upplýsingaöryggi og persónuvernd
- Betri ákvörðun ráðgjafarþjónusta Marinós G. Njálssonar
- CISA, CISM, COBIT, Val IT
- Staðlaráð Íslands
- Heimasíða Persónuverndar
Hagsmunabarátta
- Hagsmunasamtök heimilanna
- Hugmyndir að úrræðum fyrir almenning
- Færa þarf höfuðstól lánanna niður
- Fólk þarf leið út úr fjárhagsvandanum
- Innlegg í naflaskoðun og endurreisn
- Er raunhæft að afnema verðtrygginguna eða setja henni skorður?
- Aðgerðaráætlun fyrir Ísland
- Hinn almenni borgari á að blæða
- Leið ríkisstjórnarinnar er röng
- Innantómar aðgerðir til stuðnings heimilunum
- Tillögur talsmanns neytenda
- Á hverju munu Íslendingar lifa?
- Verðbólga sem hefði geta orðið
- Aðgerða þörf strax - Tillaga að aðgerðahópum
- Mikilvægast að varðveita störfin
- Hvar setjum við varnarlínuna?
- 385 milljarða til bankanna og reikningurinn til heimilanna
- 2009 gengið í garð, ár endurreisnar, en hvernig endurreisn viljum við?
- Jöklabréf, erlend lán og vaxtaskiptasamningar
Færsluflokkar
- Áhættustjórnun
- Bloggar
- Dægurmál
- Efnahagsmál
- Endurreisn
- Ferðalög
- Ferðaþjónusta
- Heimspeki
- HRUNIÐ
- Icesave
- Íbúðalánasjóður
- Íþróttir
- Lánamál
- Leiðsögn
- Lífeyrissjóðir
- Lífspeki
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Neytendavernd
- Persónuvernd
- Skuldamál heimilanna
- Snjóhengjur
- Stjórnmál og samfélag
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Upplýsingaöryggi
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Skiptir sannleikurinn þig engu í þessu máli, það að Sigmundur hafi tekið það skírt fram að hann stæði ekki fyrir þessum nýja lista. Á hann vantaði jafnvel marga af hans helstu stuðningsmönnum. Það er því spurning hver sér hag í því að dreifa svona sögum, að öllum líkindum stuðningsmenn Páls sem hafa langa reynslu í slíku.
Guðrún H (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 09:32
Guðrún H, það er flest sem bendir til þess að "smalarnir" séu úr hópi stuðningsmanna Sigmundar, þó svo að hann hafi sjálfur ekki "smalað". Þeir sem hafa verið nafngreindir tilheyra a.m.k. þeim hluta flokksins sem hingað til hafa ekki verið Páls-meginn í flokknum (miðað við upplýsingar sem koma fram á hinum ýmsu síðum í netheimum) og mína þekkingu á flokkadráttum innan flokksins.
Marinó G. Njálsson, 8.1.2009 kl. 09:52
Hvað með þá staðreynd að flokkurinn er vart mælanlegur núna, og það bendir til að breytingar séu ekki bara líklegar heldur bráðnauðsynlegar. Annars er þetta skíta flokkur, sem stendur fyrir spillingu, eiginhagsmunasemi, fyrirgreiðslupólitík og afturhald. Farið hefur fé betra. Og að vera laus við Bjarna Harðar og Guðna Ágústs, er eitt það besta sem upp hefur komið í íslenskri pólítík á háa herrans tíð.
Þessi flokkur hefur skilið eftir sig sviðna jörð allstaðar. Þú ættir að fagna því að Páll sé að verða undir. Hann er rotinn inn að beini og þessi Höskuldur er einn mesti afurhaldsseggur síðan Hjörleifur Guttorms og Bjarni Harðar riðu um héruð.
Loopman, 8.1.2009 kl. 13:16
Ráðvilltir kjósendur munu kasta atkvæði sínu í Framsóknarflokkinn og tryggja geðþekkum tækifærisinnum og framagosum þingsæti í næstu kosningum. Þeir geta síðan selt þingsæti sín hæstbjóðanda (fyrirtækjum eða öðrum flokkum) þvi stefna flokksins er bara það sem hentar hverju sinni og skiptir engu máli.
Markmiðið hjá þessum geðþekku aðilum er ekki að leggja krafta sína fram fyrir þjóðina heldur eiginhagsmunir
Þráinn Kristinsson (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 14:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.