Leita í fréttum mbl.is

Það er vont en það venst

Hækkun vísitölu neysluverðs er heldur meiri en ég spáði í bloggi hér fyrir hálfum mánuði (sjá Það er verðbólgan að baki sem er mesta vandamálið).  Þá spáði ég 1,1 - 1,4% hækkun milli mánaða, en síðan hækkaði ríkisstjórnin ýmsar álögur á áfengi, tóbak, bensín og olíu, sem taldar voru hafa áhrif upp á 0,5%.  Muna ekki allir eftir því, að forsætisráðherra sagði að þær hækkanir hefðu ekki áhrif á verðbólgu! (sjá Forsætisráðherra fer ekki með rétt mál og Ályktunargáfa sem á sér ekki sinn líka).

En þetta á eftir að versna áður en það byrjar að batna.  Samkvæmt töflu á vef Hagstofunnar, þá var hækkun vísitölu neysluverð 0,2% milli desember 2007 og janúar 2008.  Til þess að verðbólgan verði lægri í næsta mánuði, þá þarf hækkunin milli desember 2008 og janúar 2009 að vera undir 0,2%.  Verður það að teljast ákaflega ólíklegt.  Taflan sýnir áhrif mismunandi hækkunar á vísitölu neysluverðs milli desember og janúar á verðbólgutölur í janúar.

 

Hækkun milli des. og jan.

Verðbólga í jan.

0,3%

18,3%

0,6%

18,6%

0,9%

19,0%

1,2%

19,3%

1,5%

19,7%


mbl.is Verðbólgan mælist 18,1%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir þetta Marimó

Eru spár um verðbólgu sem komið hafa fram  að miðast við neyslukörfu landsmanna á árunum 2006 0g 2007 ?  Eitthvað segir mér að spár til þessa grundvallist á eldri neyslukörfu. Og að eftir áramót blasi við óupplýst staða - verri staða. Vonandi rangt.

Einar Vilhjálmsson (IP-tala skráð) 22.12.2008 kl. 14:50

2 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Miðað er við neyslukönnun sem gildir fyrir 3 ár.  Síðasta árið er árið sem lauk 12 mánuðum áður en árið sem á í hlut byrjaði, þ.e. 2004-2006 vegna 2008, 2003-2005 vegna 2007 o.s.frv.  Það er náttúrulega vonlaust að vera með nýliðið ár í tölunum fyrir janúar, hvað þá nýliðinn mánuð fyrir tölur í desember.  Auðvitað er þetta ekki nákvæmt, en er einhver með betri tillögu?

Marinó G. Njálsson, 22.12.2008 kl. 14:59

3 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Ég get ekki annað en furðað mig á ummælum Geirs H. Haarde áðan í Ísland í dag.  Þar sagði hann telja að verðbólgumælingin sem birt var í dag verði toppurinn.  Þetta er alveg arfavitlaus yfirlýsing, þar sem verðbólga núna á milli mánaða mældist 1,52%.  Til þess að verðbólgutoppnum hafi verið náð þarf verðbólga milli desember og janúar að vera undir 0,2%, sem er sú mæling sem fellur út í næstu ársverðbólgumælingu.  Ég held ég geti fullyrt að aldrei hafi orðið slík lækkun verðbólgu milli mánaða, þ.e. úr 1,52% niður fyrir 0,2%.  Það er því nokkurn veginn 100% öruggt að verðbólgan í janúar verður meiri en hún er núna.  Þetta er því miður enn eitt dæmi um að Geir er ekki að fylgjast með.

Marinó G. Njálsson, 22.12.2008 kl. 19:16

4 Smámynd: Einar Vilhjálmsson

Svona fyrir jólin eigum við samt ekki að standa með tilgátu Geirs í von um að verðbólgan í nóvember endurspegli veikasta meðalgengi krónu í stórum innflutningsmánuði. Þannig má ætla að ýmiss varningur hafi hækkað meira í nóvember en annars hefði orðið. Og að með styrkingu krónunnar í desember sé líklegra að margir vöruflokkar hækki ekki í janúar, auk þess sem að enn frekari útsölur hjálpa til þá - gef þessu 51/49.

Einar Vilhjálmsson, 23.12.2008 kl. 02:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 1678124

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband