Leita í fréttum mbl.is

Lánshćfi risabanka lćkkađ

Áhrif fjármálakreppunnar eru farin ađ koma fram í lánshćfi risabankanna. Matsfyrirtćkiđ S&P tilkynnti í dag lćkkun á lánshćfismati 11 af stćrstu bönkum heims.  Ţessir bankar eru:  JPMorgan Chase, Bank of America, Wells Fargo, Citigroup, Morgan Stanley, Goldman Sachs, Barclays, Credit Suisse, Deutsche Bank, Royal Bank of Scotland og UBS.  Almennt var um lćkkun um einn flokk ađ rćđa.

Ţessi ákvörđun S&P ţarf ekki ađ koma á óvart vegna ástandsins á fjármálamörkuđunum.  Allir hafa ţessir bankar tapa háum upphćđum á undanförunum mánuđum og sér ekki fyrir endann á ţví.  Virđist sem nýleg framlög til margra af ţessum bönkum hafi lítil áhrif eđa hugsanlega hafa ţau komiđ í veg fyrir frekari lćkkun. Ţađ hlýtur ađ valda yfirvöldum í Sviss áhyggjum ađ tveir af stćrstu bönkum landsins hafi lćkkađ svona. Ljóst er ađ bankakerfiđ í landinu er komiđ á hćttulegar slóđir og stefnir í hörmungar svipađar ţeim sem viđ erum ađ ganga í gegn um.  Á hverjum degi koma fréttir um tapađar fjárfestingar, ţannig ađ leiđin liggur bara niđur á viđ fyrir svissnesku bankana, eins og flesta ađra stórbanka á Vesturlöndum.  Tap ţeirra á svindli Bernard Madoff er örugglega ekki inni í mati S&P og mun ţađ bara auka á vanda bankanna.

Ţađ fer lítiđ á milli mála ađ nćstu vikur verđur róinn lífróđur.  Seđlabankar um allan heim (nema á Íslandi) eru komnir međ stýrivexti niđur í ekki neitt.  Olíuverđ hrynur ţrátt fyrir mikinn samdrátt í framleiđslu.  Breska pundiđ er fariđ ađ nálgast evruna ađ verđgildi.  Allt er á sömu bókina lagt og ţađ ţarf meira en lítiđ kraftaverk til ađ snúa ţróuninni viđ.  Áriđ ađ baki hefur veriđ viđburđaríkt, en mér sýnist áriđ framundan ekki bera bjartari tíđ í skauti sér.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1678126

Annađ

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband