Leita í fréttum mbl.is

Deutsche Bank neitar að borga!

Deutsche Bank hefur tilkynnt að bankinn muni ekki greiða EUR 1 milljarðs skuldabréfaflokk sem er á gjalddaga í janúar.  Hefur bankinn þannig reitt til reiði marga af tryggustu viðskiptavinum sínum um leið og þetta veldur mönnum áhyggjum yfir stöðu bankans.  Það sem veldur fjárfestum þá mestum áhyggjum er að fleiri bankar fari að fordæmi Deutsche Bank.

Nú er spurningin hvort spilaborgin sé að hrynja.  Ef Deutsche Bank hefur ekki efni á að endurgreiða ekki hærri upphæð, hver er þá staða annarra banka og hverjir fylgja í fótspor D Bank?

Á sama tíma vindur Madoff hneykslið upp á sig og sífellt koma í ljós nýir aðila sem hafa tapað háum fjárhæðum.  Það er alveg ljóst að fjármálaeftirlit um allan heim hafa verið blekkt á undanförunum árum eða sofið á verðinum.  Við hér þekkjum hve illa FME stóð vaktina, en nú kemur í ljós að frammistaða þeirra er hátíð á við bandaríska fjármálaeftirlitið.  Hvert hneykslið á fætur öðru hefur rekið á fjörur þess, allt frá glæpsamlegri hegðun matsfyrirtækjanna til ótrúlegs klúðurs íbúðalánasjóðanna og nú þessi að því virðist USD 50 milljarða svikamylla Bernard Madoff.

Niðurstaðan af þessu öllu er að regluverkið klikkaði, eftirlitið klikkaði, áhættustýringin klikkaði, en það sem er verst af öllu, að græðgi manna er engin takmörk sett.  Siðblinda margra velgefinna einstaklinga er slík að þeir eiga hvergi heima nema bak við lás og slá.  Það sem meira er, ég er reikna með að í ljós eiga eftir að koma verri tilfelli en Bernard Madoff.  Þá á ég við menn, sem tengjast stærstu vogunarsjóðunum.  Á sama hátt og peningar Madoffs virðast hafa gufað upp, þá sé ég fyrir mér að stór hluti eigna mjög margra vogunarsjóða hafi gert það líka.  Menn eru svo sem byrjaðir að tilkynna 50% tap hjá mörgum minni sjóðunum, en það mun fyrst hrikta verulega í stoðum, þegar stóru sjóðirnir koma með uppgjör sín fyrir þessa síðustu mánuði þessa árs.  Ég er farin að halda, að best sé að endurstilla heiminn um áramót, þannig að þá verði allt eins og það var í ársbyrjun 2007!Whistling

Loks finnst mér merkilegt, að Barclays metur krónuna ríflega kr. 15 sterkari gagnvart evru en skráningin er hér á landi.  Á vefsíðu bankans má sjá að 1 EUR = 155,655 IKR meðan 1 EUR = 171,57 IKR hjá Glitni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Ég tek heilshugar undir með þér. Heimska, siðblinda, kæruleysi....þetta fólk er hættulegt......Gott væri ef hægt væri að endurstilla.

Ég hef velt því fyrir mér hvort ekki sé hægt að gefa skít í öll þessi kerfi. Hugsa bara um auðlindirnar og mannauðinn og hanna nýtt kerfi ofan á það.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 19.12.2008 kl. 01:47

2 Smámynd: Jón Gunnar Bjarkan

Bandaríski efnahagurinn er bara ein risastór Ponzi skema. Fólk út í heimi er alveg hætt að nenna að gera sér upp hneykslun á viðskiptaháttum þar ytra. Hver hefur t.d orðið fjúkandi reiður hér á landi vegna þess að gaur þessi hafði 20 milljón dollara af Novator? Enginn. Þetta er bara venjulegir viðskiptahættir á Wall Street liggur við.

Jón Gunnar Bjarkan, 19.12.2008 kl. 15:02

3 Smámynd: Theódór Norðkvist

Það er líka ástæða til að fylgjast vel með því hvort eitthvað Icesave dæmi komi upp hjá þýskum, enskum eða hollenskum banka.

Sjáum hvort ESB-löndin taki eins harkalega á þeim bönkum eins og okkar og frysti enskar eða þýskar eigur.

Ef þeir ganga ekki að bönkum sem geta ekki borgað sparifjáreigendum eigum við að krefjast þess að skuldbindingar vegna Icesave og annarra slíkra reikninga verði felldar niður.

Theódór Norðkvist, 19.12.2008 kl. 16:23

4 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Theódór, franski seðlabankinn er búinn að komast að þeirri niðurstöðu, að tryggingasjóður innstæðueigenda geti ekki átt að standa undir kröfum í kerfishruni, líkt og hér.  Hugsanlega mun það verða okkur til hjálpar síðar meir.

Það sem mér finnst sorglegast í þessu máli, eru allar ábyrgðirnar sem við hefðum getað hafnað, ef stjórnvöld hefðu nýtt sér undanþágurnar í tilskipun ESB.  Málið var bara, að verið var að verja íslenska reikningseigendur, þegar lögin voru sett og engum datt í hug að breyta lögunum, þegar bankarnir fóru að safna erlendum innistæðum.

Marinó G. Njálsson, 19.12.2008 kl. 22:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.12.): 0
  • Sl. sólarhring: 87
  • Sl. viku: 275
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband