15.10.2008 | 13:06
Heldur vel í lagt eða hvað?
Gaman væri nú að sjá á hverju Lars Christiansen byggir spádóma sína. Ekki ætla ég að efast um að hann hefur reiknað þetta út, en ég býst við að forsendur hans byggi á því að krónan fari niður á það stig sem hún er skráð hjá UBS. Hvort sú skráning er raunhæf, er ómögulegt að segja til um, en mér finnst hún fjarstæðukennd.
Sjálfur spáði ég yfir 20% verðbólgu á næstu mánuðum í færslu hér í september (sjá Skilar sér í vel yfir 20% verðbólgu og 25% stýrivöxtum á næstu mánuðum). Þá var nú ástand efnahagsmál nokkru skárra en nú og því virðist fátt geta komið í veg fyrir slíkan skell, nema Seðlabankanum takist að koma böndum á gengið. Ef gengið hjá UBS verður ráðandi, þá fáum við yfir okkur ofurverðbólgu á við það sem Lars Christiansen er að spá.
Í gamla daga keyptu og seldu seðlabankar gjaldeyri til að skapa ró á markaði og nú þarf Seðlabanki Íslands að gera það. Að auki er orðið lífsnauðsynlegt, að Seðlabanki Íslands geri hreinlega samninga við Seðlabanka Evrópu og seðlabanka í Sviss, Japan og Bandaríkjunum, að þessir aðilar taki þátt í því að styrkja krónuna í nafni efnahagslegra neyðaraðgerða hér á landi. Ef þessir fjórir seðlabankar taka þátt í því að kaupa krónur í skiptum fyrir evrur, franka, jen og dollara, þá gæti komist á stöðugleiki á örfáum dögum. Mjög ólíklegt er að þeir myndu tapa á þessu, vegna þess að sterkari króna myndi þýða fleiri evrur/frankar/jen/dollarar í kassann, þegar þeir losa síðan um krónueign sína. Nú veit ég ekkert hvort svona samningar eru mögulegir, en við svona ástand verður ekki búið.
Spáir 75% verðbólgu á næstunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 38
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Tenglar
Upplýsingaöryggi og persónuvernd
- Betri ákvörðun ráðgjafarþjónusta Marinós G. Njálssonar
- CISA, CISM, COBIT, Val IT
- Staðlaráð Íslands
- Heimasíða Persónuverndar
Hagsmunabarátta
- Hagsmunasamtök heimilanna
- Hugmyndir að úrræðum fyrir almenning
- Færa þarf höfuðstól lánanna niður
- Fólk þarf leið út úr fjárhagsvandanum
- Innlegg í naflaskoðun og endurreisn
- Er raunhæft að afnema verðtrygginguna eða setja henni skorður?
- Aðgerðaráætlun fyrir Ísland
- Hinn almenni borgari á að blæða
- Leið ríkisstjórnarinnar er röng
- Innantómar aðgerðir til stuðnings heimilunum
- Tillögur talsmanns neytenda
- Á hverju munu Íslendingar lifa?
- Verðbólga sem hefði geta orðið
- Aðgerða þörf strax - Tillaga að aðgerðahópum
- Mikilvægast að varðveita störfin
- Hvar setjum við varnarlínuna?
- 385 milljarða til bankanna og reikningurinn til heimilanna
- 2009 gengið í garð, ár endurreisnar, en hvernig endurreisn viljum við?
- Jöklabréf, erlend lán og vaxtaskiptasamningar
Færsluflokkar
- Áhættustjórnun
- Bloggar
- Dægurmál
- Efnahagsmál
- Endurreisn
- Ferðalög
- Ferðaþjónusta
- Heimspeki
- HRUNIÐ
- Icesave
- Íbúðalánasjóður
- Íþróttir
- Lánamál
- Leiðsögn
- Lífeyrissjóðir
- Lífspeki
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Neytendavernd
- Persónuvernd
- Skuldamál heimilanna
- Snjóhengjur
- Stjórnmál og samfélag
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Upplýsingaöryggi
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Krónan á ekki að vera á frjálsum markaði við þessar aðstæður. Að láta sér detta það í hug er tóm della. Nú þarf bara að skammta og aftur skammta. Finna réttlát skömmtunarkerfi sem flestir geta sætt sig við. Svo er bara að vona að verðbólgan éti ekki íslensk börn því hverjum dettur í hug að fæða börn í þetta ástand.
Björn Heiðdal, 15.10.2008 kl. 19:26
Þeir hjá Danske Bank hafa áður spáð fyrir um Íslenskt efnahagslíf og því miður fóru þeir nokkuð nærri.
Magnús Sigurðsson, 15.10.2008 kl. 21:54
ég verð að taka undir með Magnúsi að því miður virðist íslensku hagfræðingarnir misst allt traust að sja fólk þræta fyrir svona spár minnir mann á þegar okkur var sagt hve danir væru öfundsjukir og ekki allveg með þetta en þeir voru það vist
Johann Trast Palmason, 15.10.2008 kl. 22:47
Já, skrýtið með þennan dana, alltaf þegar maður heldur að hann hafi kannski eftir allt saman verið að reyna að segja eitthvað af viti í fortíðinni slengir hann fram einhverju sem ekki er hægt að túlka öðruvísi en eintómt rugl. ég get ekki borið mikla faglega virðingu fyrir þessum ágæta manni. Ef verðlag á að hækka um 75% á ársgrundvelli þurfa erlendir gjaldmiðlar að hækka um ca. 150%. Þrátt fyrir allt og allt finnst mér það ekki mjög líklegt þegar nýtt jafnvægi verður komið á sem vonandi verður á næstu vikum.
Jón Þorvaldur (IP-tala skráð) 15.10.2008 kl. 23:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.