10.6.2008 | 14:55
deCODE komið niður í penny stocks
Það er illa komið fyrir markaðsvirði þess fyrirtækis sem einu sinni var verðmætasta fyrirtæki landsins. Verðmæti á markaði í dag USD 0,96 er ansi langt frá dölunum 60 sem verslað var með á gráa markaðnum fyrir 10 árum eða svo. Vissulega var verðið á gráa markaðnum algjört bull og í engu samræmi við verðmat fyrirtækisins sjálfs eða innra verðmæti þess. Á sama hátt er fall þess niður í penny-stock varla það sem eigendum og stjórnendur áttu von á.
Það er yfirleitt erfitt fyrir fyrirtæki að vinna sig upp úr falli niður fyrir 1 dal og þar með teljast til penny-stocks. Þar sem ég veit að þetta verðmat hefur meira með markaðsatæður að gera en raunverulegt mat á fyrirtækinu, þá held ég að það eigi ekki að valda eigendum og stjórnendum of miklum áhyggjum. Nú er greinilega kauptækifæri fyrir þá sem hafa pening og eru tilbúnir að fara í langtíma fjárfestingu. Einnig ættu líkurnar á yfirtöku að hafa aukist verulega.
Ég er einn af þeim, sem hef tröllatrú á því sem fyrirtækið stendur fyrir, enda kynntist ég innviðum þess vel á sínum tíma sem starfsmaður þess. Viðskiptahugmyndin er öflug, en líklegast er biðin eftir fyrsta lyfinu að reynast því fjötur um fót á markaði. En gangi viðskiptahugmyndin upp, þá munu afurðir hennar gagnast komandi kynslóðum við að auka lífsgæði (a.m.k. hvað varðar heilsufar).
Af þeim rannsóknum, sem komnar voru í gang, þegar ég vann fyrir ÍE, þá fannst mér langlífisrannsóknin áhugaverðust. Það má segja, að með því að finna DNA-ið sem "veldur" langlífi þá finni menn anti-sjúkdómagenið. Þ.e. það gen sem ver okkur fyrir sjúkdómum. Hvort það sé síðan eftirsóknarvert að ná háum aldri verður hver að eiga við sig.
Gengi deCODE niður fyrir 1 dal á hlut | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 1
- Sl. sólarhring: 82
- Sl. viku: 276
- Frá upphafi: 1680564
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Tenglar
Upplýsingaöryggi og persónuvernd
- Betri ákvörðun ráðgjafarþjónusta Marinós G. Njálssonar
- CISA, CISM, COBIT, Val IT
- Staðlaráð Íslands
- Heimasíða Persónuverndar
Hagsmunabarátta
- Hagsmunasamtök heimilanna
- Hugmyndir að úrræðum fyrir almenning
- Færa þarf höfuðstól lánanna niður
- Fólk þarf leið út úr fjárhagsvandanum
- Innlegg í naflaskoðun og endurreisn
- Er raunhæft að afnema verðtrygginguna eða setja henni skorður?
- Aðgerðaráætlun fyrir Ísland
- Hinn almenni borgari á að blæða
- Leið ríkisstjórnarinnar er röng
- Innantómar aðgerðir til stuðnings heimilunum
- Tillögur talsmanns neytenda
- Á hverju munu Íslendingar lifa?
- Verðbólga sem hefði geta orðið
- Aðgerða þörf strax - Tillaga að aðgerðahópum
- Mikilvægast að varðveita störfin
- Hvar setjum við varnarlínuna?
- 385 milljarða til bankanna og reikningurinn til heimilanna
- 2009 gengið í garð, ár endurreisnar, en hvernig endurreisn viljum við?
- Jöklabréf, erlend lán og vaxtaskiptasamningar
Færsluflokkar
- Áhættustjórnun
- Bloggar
- Dægurmál
- Efnahagsmál
- Endurreisn
- Ferðalög
- Ferðaþjónusta
- Heimspeki
- HRUNIÐ
- Icesave
- Íbúðalánasjóður
- Íþróttir
- Lánamál
- Leiðsögn
- Lífeyrissjóðir
- Lífspeki
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Neytendavernd
- Persónuvernd
- Skuldamál heimilanna
- Snjóhengjur
- Stjórnmál og samfélag
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Upplýsingaöryggi
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Jú, er það nú ekki eftirsóknarvert, að öðru jöfnu? Kv.
Baldur Kristjánsson, 11.6.2008 kl. 08:11
Góður pistill hjá þér Marinó.
Það er stöðugt verið að reyna að lengja lífið. Ég hef kynnst mörgum mjög gömlum einstaklingum, sumir hafa jafnvel náð 100 ára aldri eða hærri. Allir virðast þeir hafa verið sammála um ævilengd sína, því allir þeirra hafa sagt: "Ég vildi að ég væri dauð(ur)". Það má ekki gleyma því, að þau ár sem bætast við ævina, koma alltaf síðast.
Júlíus Valsson, 11.6.2008 kl. 10:22
Það er mín von að Decode rétti úr kútnum, og verði öflugt fyrirtæki á sínu sviði, gæti jafnvel náð umtalsverðum rekstarbata á þessu ári, og það stax á þriðja ársfjórðungi.
haraldurhar, 19.6.2008 kl. 01:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.