2.5.2008 | 14:04
Ólíkt hafast menn að
Það er óhætt að segja, að ólíkt hafist menn að. Í Bandaríkjunum er hundruðum milljarða dollara veitt út í efnahagslífið af seðlabankanum, en hér virðist helst að betra sé að sem flestir missi atvinnuna eða fyrirtæki fari á hausinn. Það er eins og menn skilji ekki, að verðbólgan gengur ekki til baka nema efnahagslífið styrkist, því um leið og það gerist þá styrkist krónan. Það er fyrst og fremst veiking krónunnar sem veldur verðbólgunni og innlendar hækkanir leiddar af gengissiginu.
Án þess að vera of svartsýnn, þá held ég að verðbólgan sem mældist hér milli mars og apríl sé fyrst og fremst vegna veikingar á krónunni í febrúar og kannski fyrstu vikuna í mars. Allir sem gátu, spöruðu innkaup í mars og fram í apríl til þess að þurfa ekki að taka inn nýjar birgðir á óhagstæðu gengi. Nú geta menn ekki beðið lengur og því á næsta vísitölumæling eftir að sýna umtalsverða verðbólgu. Við getum því hæglega búist við að 12 mánaðaverðbólga mælist í kringum 13%, ef ekki meira, í næstu mælingu.
Fjöldauppsagnir eru farnar að vera daglegt brauð og fyrirtæki eru komin í fjárþrot. Þeir sem voru að fjármagna sig á 5% vöxtum, þurfa nú að greiða yfir 20%. Þetta getur ekki endað nema á einn veg. Fyrirtæki munu leggja upp laupana í stórum stíl á næstu mánuðum og með þeim fer atvinna fólks og lífsafkoma. Ef þetta er það sem stjórnvöld og Seðlabankinn vilja, þá mun þeim verða að ósk sinni verði ekkert að gert. Ástandið er orðið ískyggilegt. Ég finn þetta vel, þar sem ég er að byggja og það er sama við hvern ég tala í þeim bransa menn eru komnir á brún hengiflugsins. Við blasir hyldýpið. Verði fasteignamarkaðnum ekki komið fljótlega af stað aftur, þá munu áhrifin verða geigvænleg og þau munu verða til þess að hrikta mun í fjármálakerfi landsins. Þjóðin þolir betur 10% verðbólgu í nokkra mánuði en fjöldauppsagnir og fjöldagjaldþrot.
Annars sakna ég þess að heyra ekki frá bönkunum hvað þeir vilja að gert sé. Það eru viðskiptavinir þeirra sem eru að lenda í tekjumissi, fjármögnunarkreppu o.s.frv. Þó svo að stoðir bankanna séu orðnar sterkar utan landsteinanna, þá eru undirstöður þeirra hér á landi. Ég skil vel að þeir vilji ekki virka veikir út á við með því að krefjast aðgerða af hálfu ríkisins, en eiga þeirra annarra kosta völ?
Seðlabanki Bandaríkjanna reiðubúinn til að aðstoða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 50
- Frá upphafi: 1680042
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 44
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Tenglar
Upplýsingaöryggi og persónuvernd
- Betri ákvörðun ráðgjafarþjónusta Marinós G. Njálssonar
- CISA, CISM, COBIT, Val IT
- Staðlaráð Íslands
- Heimasíða Persónuverndar
Hagsmunabarátta
- Hagsmunasamtök heimilanna
- Hugmyndir að úrræðum fyrir almenning
- Færa þarf höfuðstól lánanna niður
- Fólk þarf leið út úr fjárhagsvandanum
- Innlegg í naflaskoðun og endurreisn
- Er raunhæft að afnema verðtrygginguna eða setja henni skorður?
- Aðgerðaráætlun fyrir Ísland
- Hinn almenni borgari á að blæða
- Leið ríkisstjórnarinnar er röng
- Innantómar aðgerðir til stuðnings heimilunum
- Tillögur talsmanns neytenda
- Á hverju munu Íslendingar lifa?
- Verðbólga sem hefði geta orðið
- Aðgerða þörf strax - Tillaga að aðgerðahópum
- Mikilvægast að varðveita störfin
- Hvar setjum við varnarlínuna?
- 385 milljarða til bankanna og reikningurinn til heimilanna
- 2009 gengið í garð, ár endurreisnar, en hvernig endurreisn viljum við?
- Jöklabréf, erlend lán og vaxtaskiptasamningar
Færsluflokkar
- Áhættustjórnun
- Bloggar
- Dægurmál
- Efnahagsmál
- Endurreisn
- Ferðalög
- Ferðaþjónusta
- Heimspeki
- HRUNIÐ
- Icesave
- Íbúðalánasjóður
- Íþróttir
- Lánamál
- Leiðsögn
- Lífeyrissjóðir
- Lífspeki
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Neytendavernd
- Persónuvernd
- Skuldamál heimilanna
- Snjóhengjur
- Stjórnmál og samfélag
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Upplýsingaöryggi
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Ég sé að Steinn Logi Björnsson er sammála mér í viðtali við Viðskiptablaðið. Nú er bara að vona að ríkisstjórn og Seðlabanki vakni upp af Þyrnirósarsvefni.
Ég sé líka að BNP Paribas boðar bjartari tíð og blóm í haga. Athyglisvert er að sjá að þeir spá jafnvægisgengi evru í kringum 100 IKR. Það er um 16% styrking gengis. Nú er bara að bíða og sjá hvort bankinn hafi rétt fyrir sér.
Marinó G. Njálsson, 2.5.2008 kl. 17:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.