4.11.2007 | 18:07
Af samræmdum prófum 9 ára barna
Það hafa fjölmargir komið að máli við mig og beðið mig um að halda áfram þessari umræðu sem ég hóf um daginn, um samræmd próf 8 - 9 ára barna (hér eftir talað um 9 ára börn). Þetta hafa að mestu verið kennarar og foreldrar barnanna sem þurftu að ganga í gegnum þessi gjörsamlega tilgangslausu próf, en líka aðrir kennarar og síðan bara fólk sem ég hef hitt.
Allir eru sammála um tilgangsleysi prófanna sem samræmda mælingu á stöðu/getu barnanna. Það er mál manna, að það eigi ekki að vera í verkahring opinberrar stofnunar að mæla og meta miðlægt getu svona ungra barna. Það eigi heldur ekki að reyna á þessum aldri að ákveða áherslur í kennslu, fyrir utan það að margt í efni prófanna sé hreint og beint út í hött. Lagt sé fyrir börnin efni sem eigi sér enga skírskotun til veruleika þeirra. Dæmi um þetta eru endalausir lestrarkaflar um veruleika afa þeirra og ömmu. Sveitasögur, strætóferðir, mjólkurbúðir o.s.frv. eiga ekkert erindi inn í raunveruleika 9 ára barna árið 2007. Ég veit ekki hvaða fortíðarhyggjurómantík þetta á að vera. Sama er í stærðfræðinni. Hvaða 9 ára barn getur t.d. lesið út úr leiðaráætlun strætó? Ég veit ekki um neitt, vegna þess að jaðrar við að vera barnaverndarmál, ef 9 ára barn er sent eitt í strætó. Þetta var allt öðruvísi fyrir 30 - 40 árum, þegar veröldin var miklu öruggari og fjarlægðir minni.
En efni prófanna er ekki það sem fer mest í taugarnar á fólki. Það að prófin séu yfirhöfuð til, er það sem angrar fólk mest. Námsmatsstofnun gerir tilraun til að réttlæta prófin í bréfi til foreldranna. En það tekst ákaflega illa. Skoðum fyrst hluta af skilgreiningu á samræmdum prófum sem birt er á vef Námsmatsstofnunar:
Samræmdum prófum er ætlað að veita nemendum, foreldrum/forráðamönnum og kennurum upplýsingar um stöðu nemenda í viðkomandi námsgreinum auk þess sem því er ætlað ákveðið hlutverk við mat á skólakerfinu. Niðurstöður samræmdra prófa byggja á því að meta stöðu hvers nemanda með samanburði við jafnaldra hans á landinu öllu. Niðurstöðurnar gefa því kost á að meta stöðu nemenda í öðru samhengi en námsmat innan skóla gerir. Samræmd próf veita nemendum, foreldrum og kennurum mikilvægar upplýsingar um stöðu nemenda.
Í bréfi til foreldra kemur svo eftirfarandi fram:
Markmið með fyrirlögn prófanna eru aðallega tvíþætt. Í fyrsta lagi að gefa upplýsingar um að hvaða marki nemendur hafa náð grundvallarkunnáttu og færni sem frekara nám byggir á. Í öðru lagi að vera foreldrum, kennurum og skólayfirvöldum til leiðbeiningar um námsstöðu nemenda. Með því að leggja samræmd könnunarpróf fyrir að hausti, gefast tækifæri til að nýta niðurstöður þeirra við skipulag náms og kennslu.
Hvað af þessu er hjálplegt fyrir foreldra eða kennara 9 ára barns? Er það hjálplegt fyrir þessa aðila að 9 ára barn sé öðrum 9 ára börnum hæfari eða lakari að leggja saman eða skilja sveitarstörf eins og þau voru unnin árið 1930 eða átta sig á hvernig leiðartafla strætó virkar? Hefur Námsmatsstofnun eða öllu heldur menntamálaráðuneytið ekki átta sig á því að það eina sem skiptir máli á þessum aldri og alveg fram að samkeppnisprófum á efri skólastigum er að hlúð sé að hverjum einstaklingi eins og hann er, ýtt undir styrkleika hans og honum veittur stuðningur þar sem þörf er? Þetta heitir einstaklingsmiðað nám.
Skoðum betur það sem kemur fram í bréfinu til foreldra. Prófin eiga "að gefa upplýsingar um að hvaða marki nemendur hafa náð grundvallarkunnáttu og færni sem frekara nám byggir á." Hér vantar skilgreiningu. Hvaða kunnáttu á barn sem fætt er í janúar 1998 að hafa náð og hvaða kunnáttu á barn sem fætt er í desember 1998 að hafa náð? Það er ósanngjarnt að ætlast til þess að bæði hafi náð sömu kunnáttu. Það munar 12% á aldri þessara barna. Er einkunnin leiðrétt miðað við aldur barnsins. Er sanngjarnt að gera sömu kunnáttu til 18 ára einstaklings og 16 ára einstaklings í segjum ensku? Það er líka 12% aldursmunur á þeim. Nei, það er ekki sanngjarnt að gera sömu kröfur. Hvaða gagn er að því að bera saman stöðu 9 ára barns við jafnaldra þess á landinu? Nákvæmlega ekkert.
"Að vera foreldrum, kennurum og skólayfirvöldum til leiðbeiningar um námsstöðu nemenda". Hvað er það í samræmdu prófi sem veitir þessar upplýsingar umfram það sem komið hefur fram í samskiptum kennara og nemanda og foreldra og nemanda. Nákvæmlega ekki neitt. Þetta markmið er móðgun við alla kennara. Þetta er gróf aðför að faglegum heiðri hvers einasta kennara. Hvor aðilinn er færari um að meta stöðu nemandans: kennarinn sem er með nemandanum í kennslustund á hverjum degi eða samræmt próf sem hefur enga möguleika á að skynja nálgun nemandans að lausn verkefna heldur getur í besta falli metið færni nemandans til að taka próf. Ég verð að viðurkenna að ég treysti kennaranum til verksins, en ekki prófinu.
Ég get alveg skilið, að höfð séu samkeppnispróf til að komast inn í háskóla þegar um er að ræða að viðkomandi skóli getur tekið við takmörkuðum fjölda nemenda. Ég skil aftur ekki af hverju er verið að draga grunnskólanemendur í dilka og hleypa bara þeim vænstu inn í "fínu" framhaldsskólana. Kannski einhver af skólameisturum þeirra geti útskýrt það. Fyrirgefið, þeir eru víst rektorar.
Meginflokkur: Menntun og skóli | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 14.12.2007 kl. 13:34 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 0
- Sl. sólarhring: 81
- Sl. viku: 275
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 34
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Tenglar
Upplýsingaöryggi og persónuvernd
- Betri ákvörðun ráðgjafarþjónusta Marinós G. Njálssonar
- CISA, CISM, COBIT, Val IT
- Staðlaráð Íslands
- Heimasíða Persónuverndar
Hagsmunabarátta
- Hagsmunasamtök heimilanna
- Hugmyndir að úrræðum fyrir almenning
- Færa þarf höfuðstól lánanna niður
- Fólk þarf leið út úr fjárhagsvandanum
- Innlegg í naflaskoðun og endurreisn
- Er raunhæft að afnema verðtrygginguna eða setja henni skorður?
- Aðgerðaráætlun fyrir Ísland
- Hinn almenni borgari á að blæða
- Leið ríkisstjórnarinnar er röng
- Innantómar aðgerðir til stuðnings heimilunum
- Tillögur talsmanns neytenda
- Á hverju munu Íslendingar lifa?
- Verðbólga sem hefði geta orðið
- Aðgerða þörf strax - Tillaga að aðgerðahópum
- Mikilvægast að varðveita störfin
- Hvar setjum við varnarlínuna?
- 385 milljarða til bankanna og reikningurinn til heimilanna
- 2009 gengið í garð, ár endurreisnar, en hvernig endurreisn viljum við?
- Jöklabréf, erlend lán og vaxtaskiptasamningar
Færsluflokkar
- Áhættustjórnun
- Bloggar
- Dægurmál
- Efnahagsmál
- Endurreisn
- Ferðalög
- Ferðaþjónusta
- Heimspeki
- HRUNIÐ
- Icesave
- Íbúðalánasjóður
- Íþróttir
- Lánamál
- Leiðsögn
- Lífeyrissjóðir
- Lífspeki
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Neytendavernd
- Persónuvernd
- Skuldamál heimilanna
- Snjóhengjur
- Stjórnmál og samfélag
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Upplýsingaöryggi
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Heyr, heyr, alveg sammála þér þarna, þörf umræða og haltu endilega áfram að vekja athygli á þessu. Þetta veldur líka kvíða hjá krökkum að fara í SAMRÆMD próf en bara nafnið er nóg til að valda kvíða hjá mörgum börnum. Þau eiga ekkert að vera að "pæla" í svona á þessum aldri og ég segi eins og þú, treysti umsjónarkennaranum best með þetta og óþarfi að mæla getuna svona. En er ekki líka verið að "njósna" um grunnskólana. Einhvern tíma heyrði ég það...
alva (IP-tala skráð) 4.11.2007 kl. 23:38
Enn og aftur, skil ekki tilganginn með þessum prófum. Þetta er í algerri andstöðu við allt tal um einstaklingsmiðað nám. Færni 9 ára barna segir lítið um hvernig þau pluma sig í framtíðinni nema markmiðið sé að brjóta niður þau börn sem af ýmsum ástæðum eru sein í námi á þessum aldri. Þetta einungis minnkar möguleika þeirra til að blómstra síðar meir.
Á sjálf eintak sem var brotið niður með prófum, samræmdum og skólaprófum, á þessum aldri. Það tók nokkur ár að byggja hana upp, hana skorti trú á að hún gæti lært því hún hafði fengið skýr skilaboð um hið gagnstæða. Nú hefur uppbygging tekist mjög vel og er hún nú að blómstra og skýtur mörgum aftur fyrir sig sem áður voru mörgum skrefum framar. Nei ég skil ekki þessi próf í fyrri hluta grunnskóla.
Takk fyrir að halda umræðunni vakandi, hef einnig hugsað mér að gera það.
Kristjana Bjarnadóttir, 5.11.2007 kl. 16:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.