2.9.2007 | 23:53
Ungverjaland - miðja Evrópu
Ég er staddur í Ungverjalandi. Nánar tiltekið Búdapest. Borgin er ákaflega falleg, enda er borgarstæðið einstaklega skemmtilegt. Dóná skiptir borginni í Búda og Pest eins og alltaf hefur verið. Ég fór á Þjóðminjasafn þeirra Ungverja, sem er til húsa í ægifagurri byggingu/höll á hæð sem gnæfir yfir Dóná Búda megin í borginni. Það fer ekkert á milli mála að Ungverjar eru stoltir af uppruna sínum, þó það hafi alltof oft verið hlutskipti þeirra að vera undirokaðir af öðrum. Oftar en ekki hafa þeir farið undan stjórn eins ríkis til þess eins að lenda undir járnhæl annars. Kannski hafa liðið fáein ár þar sem þeir fengu um frjálst höfuð að strjúka, en svo hefur næsta bylgja innrásar dunið yfir. Það liggur við að fara þurfi aftur fyrir Kristburð til að finna langt samfellt tímabil, þar sem Ungverjar voru sjálfs síns herrar. Þeir eiga sína frelsishetju, Lajos Batthyany sem ólíkt okkar frelsishetju, var tekin af lífi vegna þess að yfirmanni austurríska herliðsins í borginni stóð ógn af honum. Það er hægt að greina það á Þjóðminjasafninu, að Ungverjum gremst þetta ennþá. Ég taldi ekki hve margar myndir og styttur eru af Batthyany í þeim sal, þar sem frelsisbaráttunni er gerð skil. Það er eins og Ungverjar hafi misst af gullnu tækifæri við að öðlast sjálfstæði við dauða Batthyanys og að þessi missir hafi dregið þá inni í atburðarás sem var þeim ekkert sérlega geðfeld.
En nú hefur frelsið fengist, bara til þess eins að ganga í Evrópusambandið. Efnahagur landsins er ekki góður og gerir lítið annað en að versna. Sagt er að hálf milljón Ungverja hafi misst vinnuna í sumar. Fyrir 10 milljón manna þjóð er það áfall. Evrópusambandspeningarnir eru ekki að skila sér, segja innfæddir. Ríkisstjórnin er hræðileg og spillt. Sagt er að í henni séu börn og barnabörn fyrrum ráðamanna frá tímum kommúnismans. Þau hafa bara skipt um nöfn. (Ég sel þetta ekki dýrar en ég keypti það.) Maður verður var við eymdina á einn hátt. Það er útigangsfólk og heimilisleysingjar um allt. Ég hef hvergi séð eins mikið að fólki í slíkri aðstöðu nema kannski þegar ég var í Bandaríkjunum. Það er með ólíkindum að sjá fólk á öllum aldri búandi sér til fleti hvar sem hægt er að finna stað sem helst þurr. Undirgangar eru vinsælir og eru öll skúmaskot nýtt. Þetta er sorglegt að sjá og í mikilli andstöðu við mannfjöldann sem fyllir allar verslunarmiðstöðvar og verslunargötur.
Ungverjar eru mjög blandaðir, en hinn meðal Íslendingur fellur vel inn í fjöldann. Ég veit ekki hversu oft ég hef fundið hér tvífara fólks, sem ég þekki heima. Það eina sem greinir þá frá okkur mörlöndunum er tungumálið, sem er ekki auðvelt.
Verðlag hér er mjög lágt miðað við það sem við eyjaskeggjar eigum að venjast. Gjaldmiðillinn, forintas, er skráð á um 0,34 kr., en verð á vöru er samt það sama hér og heima, nema mynteiningin er önnur. Kannski ekki alltaf, en alltof oft. Það sama á náttúrulega við um launin. Mesta furða að íslenskir ferðafrömuðir hafi ekki uppgötvað Ungverjaland sem kjörinn stað til að fara í verslunarferðir. Vissulega lengra að fara hingað en til Skotlands og Írlands, en ég trúi að verðlag hér sé lægra. Svo er bara miklu menningarlegra að heimsækja borgina fögru við ána bláu (sem er að vísu grá). Búdapest getur státað af nokkrum stórum verslunarmiðstöðvum. Í hjarta borgarinnar er West End, sem þeir segja að sé sú stærsta í Evrópu. Þar úir og grúir af alls kyns litlum og meðalstórum verslunum. Við göngugötuna Váci utca er svo að finna stærri verslanir og í Árkád Bevásár verslunarmiðstöðinni við Örs Vesér Tere lestarstöðina hafa allar verslanir nægt rými. Þarna eru öll merkin sem við þekkjum á klakanum og svo öll hin sem ekki sjá sér fært að vera þar. Og verðið er ákaflega hagstætt.
Almenningssamgöngur eru mjög góðar, þannig að það tekur ekki nema nokkrar mínútur að ferðast endana á milli í borginni. Manni standa til boða jarðlestir, sporvagnar og nokkrar gerðir strætisvagna. Dugi það ekki, þá eru mjög ódýrir leigubílar út um allt. Nú vofir að vísu yfir verkfall starfsmanna í almenningssamgöngum, þannig að kannski er ekki heppilegt að fara stefna mörgum hingað á næstu vikum eða mánuðum.
Ef maður leitar að gistingu hér á internetinu, þá sér maður að hér er mikið framboð af ódýrri gistingu. Dvelji maður hér í nokkra daga, þá er auðvelt að fá leigða íbúð á þetta 10 til 30 evrur nóttina fyrir alla fjölskylduna. Vilji maður frekar hótel, þá er hægt að fá ódýra gistingu á jafnvel hinum glæsilegustu hótelum. Auðvitað er líka fullt af hótelum sem ekki eru góð og maður getur alltaf lent í svikahröppum. Eina vandamálið er að ekki er flogið beint milli Íslands og Ungverjalands nema í takmarkaðan tíma á hverju ári.
Fyrir íslenska athafnamenn, þá er ég sannfærður um að hér eru mörg góð kauptækifæri. Fasteignaverð virðist vera lágt, en það gæti stafað af því að viðhaldi bygginga hefur verið ábótavant. Nú þar sem verðlag er lágt, þá kostar ekki mikið að gera upp íbúðir, ef maður bara nær að ráða góðan verktaka sem stendur við það sem hann segir. Tilkoma IKEA hefur líka auðveldað endurnýjun húsbúnaðar. Kíkti þangað um daginn til að skoða og mér sýndist sem það kostaði innan við 40.000 íslenskar krónur að fylla herbergi með húsgögnum, þ.e. rúmi með góðri dýnu, fataskáp, kommóðu og borði með fjórum stólum, auk ýmissa smáhluta. Sé ekki fyrir mér að gera svona góð kaup í Kauptúni.
Meginflokkur: Ferðalög | Aukaflokkur: Menning og listir | Breytt 14.12.2007 kl. 13:54 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 0
- Sl. sólarhring: 84
- Sl. viku: 275
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 34
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Tenglar
Upplýsingaöryggi og persónuvernd
- Betri ákvörðun ráðgjafarþjónusta Marinós G. Njálssonar
- CISA, CISM, COBIT, Val IT
- Staðlaráð Íslands
- Heimasíða Persónuverndar
Hagsmunabarátta
- Hagsmunasamtök heimilanna
- Hugmyndir að úrræðum fyrir almenning
- Færa þarf höfuðstól lánanna niður
- Fólk þarf leið út úr fjárhagsvandanum
- Innlegg í naflaskoðun og endurreisn
- Er raunhæft að afnema verðtrygginguna eða setja henni skorður?
- Aðgerðaráætlun fyrir Ísland
- Hinn almenni borgari á að blæða
- Leið ríkisstjórnarinnar er röng
- Innantómar aðgerðir til stuðnings heimilunum
- Tillögur talsmanns neytenda
- Á hverju munu Íslendingar lifa?
- Verðbólga sem hefði geta orðið
- Aðgerða þörf strax - Tillaga að aðgerðahópum
- Mikilvægast að varðveita störfin
- Hvar setjum við varnarlínuna?
- 385 milljarða til bankanna og reikningurinn til heimilanna
- 2009 gengið í garð, ár endurreisnar, en hvernig endurreisn viljum við?
- Jöklabréf, erlend lán og vaxtaskiptasamningar
Færsluflokkar
- Áhættustjórnun
- Bloggar
- Dægurmál
- Efnahagsmál
- Endurreisn
- Ferðalög
- Ferðaþjónusta
- Heimspeki
- HRUNIÐ
- Icesave
- Íbúðalánasjóður
- Íþróttir
- Lánamál
- Leiðsögn
- Lífeyrissjóðir
- Lífspeki
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Neytendavernd
- Persónuvernd
- Skuldamál heimilanna
- Snjóhengjur
- Stjórnmál og samfélag
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Upplýsingaöryggi
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Ég dvaldi neðar við ánna fyrir viku síðan í borgini Rousse í Bulgaríu. Dóná er orðin ansi drullug þegar þangað er komið. Verðlagið í Rousse er þar líka fáránlega lágt. Maður troðfyllir innkaupakerru í einhverjum af stórmörkuðum borgarinnar og greiðir svo 3500kr.
Hlynur Jón Michelsen, 3.9.2007 kl. 00:19
Við lentum einmitt í þessu. Troðfull kerra. 9.300 forintas eða rétt rúmlega 3.100 kr. Ég tek nokkra verðlista og auglýsingabæklinga með til baka. Það verður forvitnilegt að gera samanburð á sjónvörpum, símum, heimilistækjum og þess háttar.
Marinó G. Njálsson, 3.9.2007 kl. 00:25
Þakka þér þessa útlistun á Búdapest og Ungverjum. Ég hef verið svo lánssamur að koma þar nokkrum sinnum. En heldurðu að það verði ekki gæfa þeirra að ganga i Evrópusambandið? það gæti ég alveg ímyndað mér. kv.
Baldur Kristjánsson, 3.9.2007 kl. 11:20
Þakka þér fyrir þennan fróðlega pistil.
Greta Björg Úlfsdóttir, 3.9.2007 kl. 18:22
Baldur, ég verð að segja þér eins og er að ég veit það ekki. Þeir bíða óþreyjufullir eftir að geta tekið upp Evruna og líta dálítið á hana sem töfralausn. Ég held þeir eigi eftir að fá áfall eins og Spánverjar, Ítalir og Portúgalar. Annars eru þeir byrjaðir að taka upp evruna með því að miða verð alls konar vöru og þjónustu við evrur. Þannig er húsaleiga almennt gefin upp í evrum og sama á við um gistingu. Verð á raftækjum er gjarnan gefið bæði upp í evrum og forintas. Ég held að efnahagsástandið eigi eftir að versna áður en það batnar aftur, en einmitt af þeim ástæðum mundi ég halda að þar væru mikil kauptækifæri fyrir fjárfesta.
Marinó G. Njálsson, 3.9.2007 kl. 21:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.