Leita í fréttum mbl.is

Stjórnin stendur tæpt - Vill Samfylkingin kosningar?

Ekki er hægt að túlka orð Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur á annan veg, en að verði Jóni Bjarnasyni bolað burt, þá hætti hún stuðningi sínum við ríkisstjórnina. 

Ég átti von á því í vor, þegar Lilja Mósesdóttir, Ásmundur Einar og Atli Gíslason sögðu skilið við þingflokk VG, að Guðfríður Lilja færði sig líka um set.  Hefur mér fundist hún hafa átt litla samleið með þessari ríkisstjórn nokkuð lengi og m.a. orðið undir í nokkrum stórum málum.  Vil ég þar bara nefna þegar lögum nr. 107/2009 um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldmiðilshrunsins var þröngvað í gegn um þingið með miklum hraða í október 2009.  Þá treysti hún sér greinilega ekki, sem formaður þeirrar nefndar, sem hafði með málið að gera, til að styðja það og var því fjarverandi við atkvæðagreiðsluna.  Ekki má heldur gleyma því, þegar menn settu hana ákaflega klaufalega af sem formann þingflokks VG eftir að hún kom úr fæðingarorlofi.

Viðtalið við Jón Bjarnason í kvöld fréttum RÚV í gær gaf betur í skyn en nokkuð annað hver staðan er á stjórnarheimilinu.  Hann svaraði spurningu fréttamanns um stöðu hans með því að segja að hann stæði traustur, þar sem hann stóð í lappirnar þegar viðtalið var tekið!  Ég get ekki séð að hann sitji út vikuna. En hvernig ætlar Steingrímur að tryggja sér nauðsynlegan stuðning hans og G. Lilju, þegar líklegast Árni Þór Sigurðsson verður gerður að ráðherra í stað hans?

Kosningar í vændum?

Ég get ekki annað en velt því fyrir mér hvort Samfylkingin sé orðin þreytt á stjórnarsetunni.  Þingmenn flokksins gera allt sem þeir geta til að níða skóinn af Ögmundi Jónassyni og Jóni Bjarnasyni og haga sér ansi oft, eins og VG sé í einhverri annarri ríkisstjórn en Samfylkingin.  Ómögulegt er að sjá tilganginn með þessu nema annað að tvennu komi til:  A.  Samfylkingin vill kosningar; B.  Samfylkingin er búin að ná samkomulagi við Framsókn og Sjálfstæðisflokk um ríkisstjórnarsamstarf til loka kjörtímabilsins.  Hvorugt þykir mér líklegt, en menn hljóta að átta sig á því, að Ögmundur, Jón og G. Lilja eru þríeyki þar sem gildir "einn fyrir alla, allir fyrir einn".

En eru líkur á því að B, D og S fari saman í stjórn?  Já, ég held það.  Þó Sjálfsstæðisflokkurinn mælist vel í könnunum, þá held ég að þegar nýju framboðin (sem eru óhjákvæmileg) kynna sig í aðdraganda kosninga, þá muni drjúgur hluti fylgis gömlu flokkanna færast.  Nái menn aftur á móti að lifa af út kjörtímabilið og að ég tali nú ekki um, ef Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn gætu tekið þátt í næsta hluta upprisu íslenska hagkerfisins (sem er óhjákvæmileg), þá munu flokkarnir ekki tapa eins miklu fylgi og jafnvel vinna á.  Ný öfl fá nefnilega mest fylgi, þegar óánægja er mikil, en þau gömlu þegar rísandi er í gangi.  Af þeirri ástæðu einni er lífsnauðsynlegt fyrir B og D að halda Jóhönnu við völd.

Ég tel besta kostinn vera að fá kosningar á næstu mánuðum, t.d. í apríl.  Einnig gætum við farið þá leið sem Grikkir og Ítalir hafa farið, að fá annað hvort stjórn allra flokka eða hreinlega utanþingsstjórn.


mbl.is Mikið áfall ef VG snýr baki við Jóni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sólbjörg

Athyglisvert og örugglega ekki fjarri lagi að geti gerst. Stóra spurningin er ef úr verður "samsteypustjórn" hvað er þá líklegast að gerist með EBS umsóknina? Verður umsóknin dregin til baka og sett á ís eða yrði bara haldið áfram inngöngumarseringu í ESB með Jóhönnu í fararbroddi eins og allt sé í stakasta lagi?

Samfylkingin vill losna við VG vegna andstöðu þeirra þriggja við ESB umsóknina, hvað með D og F í þeim flokkum eru samþykktir, allavega meirihluti gegn inngöngu í ESB?

Sólbjörg, 30.11.2011 kl. 00:11

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Finnst þetta bara góð hugmynd Marinó!! sem má skoða!!!!

Haraldur Haraldsson, 30.11.2011 kl. 00:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband