4.2.2011 | 14:31
Maður að meiri - fordæmi fyrir aðra í sömu sporum
Kristján G. Gunnarsson er maður að meiri að hafa sagt af sér. Hann hefur tekið skref sem ætti að vera fordæmi fyrir forsvarsmenn í verkalýðshreyfingu og atvinnulífi. Það er ekki hægt að segja "ég gerði mitt besta" eða "ég gat ekkert gert", þegar afleiðingarnar eru hrun grunnstoða nærsamfélagsins eða hagkerfisins í heild.
Viðtal Helja Seljan við Kristján sl. miðvikudag afhjúpaði því miður hvers konar sýndarmennska stjórnarseta í mörgum fyrirtækjum og samtökum er. Menn sitja þar í markindum til að fá greitt, en þegar kemur að því að taka forystu, þá gera þeir það ekki. Kristján viðurkenndi hvað eftir annað að hafa tekið við matreiddum upplýsingum, en ekki upplýsingum sem hann gekk eftir að fá. Hann viðurkenndi að hafa ekki verið nægilega vel á verði. Afsögn hans sýnir að augu hans hafa opnast fyrir þeim trúnaðarbresti sem slík hegðun er gagnvart stofnfjáreigendum og viðskiptavinum Sparisjóðs Keflavíkur, sjóðfélögum í Festu lífeyrissjóði og þeim félagsmönnum í Starfsgreinasambandinu hverra hagsmuna hann átti að gæta.
Það getur vel verið að betur vakandi Kristján G. Gunnarsson hefði ekki geta komið í veg fyrir það sem gerðist, en honum (og öðrum í hans sporum) bar skylda til að vara fólk við ruglinu sem viðgekkst innan fjármálafyrirtækjanna. Hvort sem hann gerði það viljandi eða af einfeldni þá tók hann þátt í hrunadansinum.
Hann hefur nú axlað ábyrgð gjörða sinna og er maður að meiri. Óska ég honum góðs gengis við það sem nú tekur við hjá honum.
Kristján segir af sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.12.): 1
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 411
- Frá upphafi: 1680825
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 34
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Tenglar
Upplýsingaöryggi og persónuvernd
- Betri ákvörðun ráðgjafarþjónusta Marinós G. Njálssonar
- CISA, CISM, COBIT, Val IT
- Staðlaráð Íslands
- Heimasíða Persónuverndar
Hagsmunabarátta
- Hagsmunasamtök heimilanna
- Hugmyndir að úrræðum fyrir almenning
- Færa þarf höfuðstól lánanna niður
- Fólk þarf leið út úr fjárhagsvandanum
- Innlegg í naflaskoðun og endurreisn
- Er raunhæft að afnema verðtrygginguna eða setja henni skorður?
- Aðgerðaráætlun fyrir Ísland
- Hinn almenni borgari á að blæða
- Leið ríkisstjórnarinnar er röng
- Innantómar aðgerðir til stuðnings heimilunum
- Tillögur talsmanns neytenda
- Á hverju munu Íslendingar lifa?
- Verðbólga sem hefði geta orðið
- Aðgerða þörf strax - Tillaga að aðgerðahópum
- Mikilvægast að varðveita störfin
- Hvar setjum við varnarlínuna?
- 385 milljarða til bankanna og reikningurinn til heimilanna
- 2009 gengið í garð, ár endurreisnar, en hvernig endurreisn viljum við?
- Jöklabréf, erlend lán og vaxtaskiptasamningar
Færsluflokkar
- Áhættustjórnun
- Bloggar
- Dægurmál
- Efnahagsmál
- Endurreisn
- Ferðalög
- Ferðaþjónusta
- Heimspeki
- HRUNIÐ
- Icesave
- Íbúðalánasjóður
- Íþróttir
- Lánamál
- Leiðsögn
- Lífeyrissjóðir
- Lífspeki
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Neytendavernd
- Persónuvernd
- Skuldamál heimilanna
- Snjóhengjur
- Stjórnmál og samfélag
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Upplýsingaöryggi
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Nei, Marinó, Kristján úr Keflavík er þeirrar gerðar að hann verður aldrei maður að meiri.
Jóhannes Ragnarsson, 4.2.2011 kl. 15:02
ekkert annað í boði fyrir þennan eflaust ágæta mann annað en að víkja
Jón Snæbjörnsson, 4.2.2011 kl. 15:13
Hann átti um tvennt að velja að fara eða verið rekinn með skömm. Þannig liggur í þessari afsögn hans.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.2.2011 kl. 16:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.