Leita í fréttum mbl.is

Ísland er meira en eldgos

Mig langar að koma með ábendingu til bæði Mílu og Vodafone.  Bæði fyrirtækin sýna í beinni útsendingu frá Þórólfsfelli og eru það magnaðar myndir.  En hvernig væri að bæta við nokkrum vefmyndavélum eða tengja við myndavélar annarra aðila, þar sem sýnt er frá öðrum stöðum á landinu þar sem engin merki goss eru sjáanleg.  Dettur mér í hug að sýna frá Höfn í átt að Öræfajökli, fuglalíf í fjörunni á Snæfellsnesi,  af toppi einhvers fjalls í nágrenni Reykjavíkur með útsýni yfir höfuðborgarsvæðið, Geysissvæðið, Þingvelli, Mývatn og fleiri slíka staði.  Gosútsendingarnar eru að draga að sér milljónir heimsókna erlendis frá.  Því ekki að gera þetta að stærri og meiri landkynningu. 

Kannski ættu ferðamálaráð og stjórnvöld að taka höndum saman með fjarskiptafyrirtækjunum.  Hvað sem öllu líður, er ekki gott að sýna bara þessa hlið á Íslandi.  Við höfum aldrei haft betra tækifæri til að kynna landið.  Grípum það áður en það verður um seinan.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arnór Baldvinsson

Sæll Marinó,

Ég er svo innilega sammála þér!  Ég skora á þig að koma þessari hugmynd á framfæri og fylgja henni eftir.  Það eru svo margar perlur á Íslandi sem fólk erlendis væri sólgið í að sjá! 

Við vorum með smá "eldfjalla partý" hérna hjá okkur um daginn, buðum vinafólki og fengum eitthvað um 15 manns.  Ég útbjó kort af Íslandi með helstu eldstöðvum og hélt smá fyrirlestur og svo horfðum við á klukkustundar þátt um gosið í Eyjafjallajökli á National Geographic.  Held þetta hafi tekist vel en þessi þáttur var bara um gosið og ég hefði gjarnan viljað sjá meira um landið.  Ég hef stundum velt því fyrir mér hvað þyrfti til að setja upp eina svona myndavél í Grænuhlíð;)

Kveðja,

Arnór Baldvinsson, 16.5.2010 kl. 17:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 1678215

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband