Leita í fréttum mbl.is

Tók myndir af bakhliðum húsa!

Nágranni minn bankaði upp á hjá mér á sunnudaginn og vildi vara mig við.  Hún hafi séð torkennilegan mann á vappi milli húsa í götunni og var viðkomandi að taka ljósmyndir af bakhliðum húsanna.  Ekki var hún ánægð með þetta framferði og fór því út.  Maðurinn forðaði sér þá, en konan gafst ekki upp.  Náði hún honum við bíl hans, sem lagt var í næstu götu.  Spurði hún hann út í ástæðu þess, að hann væri að mynda bakhliðina á húsinu hennar og annarra í nágrenninu.  Svaraði hann henni á bjagaðri íslensku, en gaf enga haldgóða skýringu. Hún var ekki í vafa um ástæðuna og vildi því vara mig við.

Full ástæða er fyrir fólk að vera á varðbergi.  Ganga vel frá öllum gluggum og hurðum, ef farið er frá húsum.  Sérstaklega á jarðhæð og kjallara og þar sem hægt er að komast að gluggum og hurðum með því að príla upp á svalir eða af stigapöllum.  Þessum mönnum dugar lítil rifa til að koma kúbeini á milli.

Mér finnst það merkilegt, að ekki sé hægt að hafa hendur í hári þessara þjófaflokka, sem vaða yfir allt á skítugum skónum.  Erlendu þjófaflokkarnir ganga víst mun snyrtilegra um en þeir íslensku og ganga jafnvel frá eftir sig(!) svo fólk uppgötvar oft ekki fyrr en nokkrum dögum síðar, að óboðinn gestur hafi laumast inn.  Þýfinu er undantekningarlaust komið úr landi með gámum og þá oftar en ekki falið sem hluti búslóðar.  Það hlýtur að vera hægt að stöðva útflutning á þýfi.  Ég legg til að þegar um "vafasaman" útflutning búslóða er að ræða, þá verði fólki gert að sanna eignarhald sitt.  Eins að gámar, sem sendir eru úr landi og koma frá öðrum en viðurkenndum útflytjendum, verði kannaðir áður en útflutningur er heimilaður.  Það er ekki eins og um margar hafnir sé að ræða.  Sama þarf að gera vegna ferða drekkhlaðinna bíla með Norrænu.  Kanna verður ástæður eru fyrir því, að menn aki drekkhlöðnum bílum þar um borð.

Komist þjófagengin að því, að erfitt sé að flytja þýfið úr landi, þá fara þau annað.  Það er með öllu óþolandi, að í ekki stærra samfélagi, þá komist skipulögð þjófagengi upp með að vaða inn á heimili fólks eða fyrirtæki án þess að vörnum sé við komið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eftirlit og rannsóknir hafa ekki átt upp á pallborðið á Íslandi sbr. aðdragandann að bankahruninu, þar sem því litla eftirliti sem var til staðar, var markvisst slátrað. Og eftir bankahrunið eru rannsóknir og eftirlit á bankaránum hvorki fugl né fiskur. Lögreglumenn eru lágt launaðir opinberir starfsmenn og komast yfir það að halda þokkalegri reglu á drykkjufólki niðrí bæ um helgar. Annað er í skötulíki. Eðlilega.

Rósa (IP-tala skráð) 30.3.2010 kl. 19:14

2 Smámynd: Hörður Halldórsson

Þessir kallar eru að verða meiri proff. en áður.Heyrði  fyrir 20 árum eða svo um að í Ameríku kæmu innbrotsþjófar um hábjartan dag í vinnusamfestingum með stóra sendibíla.Var býsna feginn að búa á Íslandi þar sem innbrotsþjófarnir væru ekki svo bíræfnir .Held að endurskoði þá afstöðu mína.

Hörður Halldórsson, 30.3.2010 kl. 20:16

3 Smámynd: Baldvin Björgvinsson

Var hún ekki bara frá bankanum? Það eru duglegustu þjófarnir hér á landi.

Baldvin Björgvinsson, 30.3.2010 kl. 20:36

4 Smámynd: Hrannar Baldursson

Í Mexíkó eru í það minnsta þriggja metra háir veggir kringum húsin, með glerbrotum steypuðum ofan á, til að halda óprúttnum frá. Það dugar ekki alltaf.

Hrannar Baldursson, 30.3.2010 kl. 20:47

5 identicon

Hvernig er það hafði hún ekki samband við lögregluna og létt hana vita af? Annars var reynt að brjótast inn hjá mér fyrir nokkru, ég stöðvaði manninn i miðjum kliðum og hann hljóp í burtu. Þegar ég hafði svo samband við lögregluna var áhugaleysið alsvakalegt, þeir vildu vart fá lýsingu á manninum né senda einhvern í hverfið að hafa auga með hvort verið var að fara inn í önnur hús hér í nágreninu.

Eftir að hafa starfað lítilega við örrygisstörf og annað í þeim dúr annað slagið síðustu 15 árin eða svo hefur mér fundist að löggæsla á Íslandi snúist 95% um að bregðast við en að stunda fyrirbyggjandi rannsóknir. Einsog þú Marinó kemur inná hér vantar að manni finnst allt eftirlit. 

 Hörður það eru nokkuð mörg ár síðan þetta gerðist en ég veitt af svona fluttnings-þjófnaði. Gekk meirri segja svo langt að nágrnai tók undir með þjófunum þegar þeir báru út stærðarinar eldhúsborð og stóll. Svo þegar fornarlömbin komu heim eftir stutt skot erlendis komu þau að öllu tómu, þegar rætt var við nágrana kom í ljós að þeir héldu að þau hefðu verið að flytja og ekkert þótt furðulegt þótt að 3 menn með stóran sendibíll hefði lagt fyrir utan í 2-3 klst og tæmt stofuna og eldhús. Svona er það nú... þettta var um 1995 eða svo.

Hannes (IP-tala skráð) 30.3.2010 kl. 20:52

6 Smámynd: Óskar Þorkelsson

.. ég mundi lenda í vandræðum með að sanna eignarhald mitt á minni búslóð.  engir reikningar til ;)

Óskar Þorkelsson, 31.3.2010 kl. 07:56

7 identicon

Því miður þá er engin leit í gámum, bílum eða öðru sem er flutt út úr landinu.  Tollurinn er algerlega sofandi, hann hefur nefnilega það hlutverk að tollskoða það sem kemur inn í landið.  Það var sagt að hver einasti pólverji með snefil af sjálfsbjargarviðleitni tæki með sér minnst eina batterísborvél í flug um jól og páska

Einar E (IP-tala skráð) 31.3.2010 kl. 09:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 125
  • Sl. viku: 686
  • Frá upphafi: 1677708

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband