8.1.2010 | 10:47
Lýðnum hótað svo hann gegni
Mér finnst hann nú frekar ómerkilegur þessi málflutningur, að ríkisstjórnin muni segja af sér, ef landsmenn voga sér að vera ósammála henni í einu máli. Ég veit ekki betur en að Steingrímur J. Sigfússon hafi ítrekað lýst því yfir í þingræðum í lok Icesave umræðunnar, að Icesave samningurinn væri nauðungarsamningur. Hvernig væri fyrir stjórnvöld að fara með skoðun þjóðarinnar fremur sem vopn í baráttunni fyrir nýjum samningi, en að vera með þetta væl að vera ekki memm nema hún fái að ráða.
Ef þroski íslenskra stjórnmálamanna er ekki meiri en þetta, þá er best að þeir segi strax af sér. Fólk sem getur ekki tekið það á kinnina án þess að fara að væla á ekkert erindi í stjórnmál. Menn eiga frekar að læra af reynslunni og hlusta á vilja þjóðarinnar. Það vill svo til að stjórnmálamenn eru að vinna fyrir þjóðina, ekki sjálfan sig. Ef menn láta sitt eigið egó þvælast fyrir, þá kominn tími til að fá sér aðra vinnu.
Nú ég óska Önnu Margréti, frænku minni, góðs gengis í Noregi. Þeim fer fjölgandi, sem ég þekki þar. Ef ríkisstjórn Geir H. Haarde hefði strax farið í að verja störfin í október 2008, þá væru örugglega fleiri með vinnu hér á landi. Nei, það var ákveðið að ekki væri hægt að gera neitt og sama tók við hjá næstu tveimur ríkisstjórnum. Nánast ekkert hefur verið gert til að verja störfin. Afleiðingin af því er að skatttekjur ríkissjóðs hafa minnkað og útgjöld aukist.
Gylfi: Stjórnin frá ef Icesave fellur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 2
- Sl. sólarhring: 82
- Sl. viku: 277
- Frá upphafi: 1680565
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 36
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Tenglar
Upplýsingaöryggi og persónuvernd
- Betri ákvörðun ráðgjafarþjónusta Marinós G. Njálssonar
- CISA, CISM, COBIT, Val IT
- Staðlaráð Íslands
- Heimasíða Persónuverndar
Hagsmunabarátta
- Hagsmunasamtök heimilanna
- Hugmyndir að úrræðum fyrir almenning
- Færa þarf höfuðstól lánanna niður
- Fólk þarf leið út úr fjárhagsvandanum
- Innlegg í naflaskoðun og endurreisn
- Er raunhæft að afnema verðtrygginguna eða setja henni skorður?
- Aðgerðaráætlun fyrir Ísland
- Hinn almenni borgari á að blæða
- Leið ríkisstjórnarinnar er röng
- Innantómar aðgerðir til stuðnings heimilunum
- Tillögur talsmanns neytenda
- Á hverju munu Íslendingar lifa?
- Verðbólga sem hefði geta orðið
- Aðgerða þörf strax - Tillaga að aðgerðahópum
- Mikilvægast að varðveita störfin
- Hvar setjum við varnarlínuna?
- 385 milljarða til bankanna og reikningurinn til heimilanna
- 2009 gengið í garð, ár endurreisnar, en hvernig endurreisn viljum við?
- Jöklabréf, erlend lán og vaxtaskiptasamningar
Færsluflokkar
- Áhættustjórnun
- Bloggar
- Dægurmál
- Efnahagsmál
- Endurreisn
- Ferðalög
- Ferðaþjónusta
- Heimspeki
- HRUNIÐ
- Icesave
- Íbúðalánasjóður
- Íþróttir
- Lánamál
- Leiðsögn
- Lífeyrissjóðir
- Lífspeki
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Neytendavernd
- Persónuvernd
- Skuldamál heimilanna
- Snjóhengjur
- Stjórnmál og samfélag
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Upplýsingaöryggi
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Sammála þér Marinó þetta snýst ekki um ríkisstjórnina ORG greyndi málið rétt þegar hann sagði að þetta snérist ekki um hann eða stjórnina.
Jón Aðalsteinn Jónsson, 8.1.2010 kl. 11:50
Gylfi verður að átta sig á því að hann er ekki pólitískt kjörinn. Hann var valinn sem faglegur ráðherra og á að vinna sem slíkur.
Þess háttar yfirlýsingar falla því ekki undir þá skilgreiningu sem ríkja um hvað átt er við um faglegan og óháðan ráðherra.
Björn Kristinsson (IP-tala skráð) 8.1.2010 kl. 11:53
Nú er hamrað á því að við ætlum að standa við skuldbindingar okkar. Þetta sándbæt hljómar nú beggja vegna borðsins án þess að nokkur skýring fylgi um hverjar þessar skuldbiningar eru.
Ég man ekki eftir að við höfum skuldbundið okkur að einu eða neinu leyti i þessu máli. Ekki enn allavega. Ekki er heldur verið að ræða "skyldur okkar gagnvart alþjóðasamfélaginu" sem er annað sándbætið. Hverjar eru þær skyldur? Að taka á okkur byrðar, sem engin önnur þjóð léti bjóða sér né er skyldug til að gera. Að skrifa upp á óumbeðið lán til tryggingasjóðs í eigu einkabanka t.d.
Það er kominn tími til að menn dragi upp skýra mynd af því sem um er að ræða og hætti þessum rakalausa hræðsluáróðri og hótunum við eigin þjóð.
Jón Steinar Ragnarsson, 8.1.2010 kl. 11:58
Gylfi segir þetta annars ekki án umboðs. Rétt að hafa það í huga. Hann hefur greinilega verið skipaður í hlutverk véfréttarinnar.
Inntakið hjá honum er eins og hjá kotbændum forðum: "Þetta fer illa, á hvurn veginn sem það fer."
Hevr tekur svona alvarlega? Þetta er svona svipað og að bankarningi haldi byssunni að eigin höfði og segist tla að leypa af ef hann fái ekki sínu fram.
Jón Steinar Ragnarsson, 8.1.2010 kl. 12:24
Algerlega sammála þér, Jón Steinar
Eyjólfur G Svavarsson, 8.1.2010 kl. 13:45
Ég verð að viðurkenna að þetta er alveg hræðileg hótun. Hann er að hóta því að hrunaflokkarnir, íhald og framsókn taki við stjórnartaumum. Alveg hræðileg tilhugsun.
Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 8.1.2010 kl. 14:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.