29.3.2009 | 23:16
Hverjir eru þekktir á Google?
Af því tilefni að fyrrverandi Seðlabankastjóri óskapaðist í gjörningi sínum á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í gær yfir því hve þekktir menn eru á Google, þá gerði ég smá könnun. Ég valdi nokkra "þjóðþekkta" einstaklinga og athugaði hversu vel kynntir þeir væru á Google. Könnun var þannig framkvæmd, að ég leitaði eftir því nafni sem viðkomandi gengur undir, þ.e. noti viðkomandi millinafn þá var það haft með. Leitarorð voru sett innan gæsalappa, t.d. "Davíð Oddsson", svo ekki kæmu upp allir Davíðar mannkynssögunnar. Talan sem Google birtir á fyrstu síðu með niðurstöðum er birt hér sem fyrsta tala. Því næst var flett, þar til að Google sýndi ekki fleiri færslur og er sá fjöldi birtur undir "Í reynd". Hafa skal í huga að Google birtir í svona leit í mesta lagi 2 færslur frá hverju léni, þannig að mbl.is telur bara tvisvar hjá hverjum og einum. Ég geri enga tilraun til að gera upp á milli einstaklinga með sama nafni. Þannig heita fleiri en einn Davíð Oddsson og Bjarni Benediktsson, nýkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins, á sér nafna sem er mun þekktari en hann. Vegna mismunandi ritvenju þá skoðaði ég Svein Harald bæði sem Öygard og Øygard. Þetta er sem sagt ákaflega óvísindalegt, en svo hefur einnig gilt um alls konar fullyrðingar manna, sem birst hafa á vefsíðum síðasta sólarhringinn eða svo.
Hér eru niðurstöðurnar í þessari óvísindalegu könnun:
Nafn | Fyrsta tala | Í reynd |
Davíð Oddsson | 222.000 | 632 |
Eiríkur Guðnason | 7.500 | 299 |
Ingimundur Friðriksson | 7.020 | 304 |
Svein Harald Øygard | 23.200 | 310 |
Bjarni Benediktsson | 44.200 | 443 |
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir | 48.000 | 459 |
Þorgerður K. Gunnarsdóttir | 3900 | 149 |
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson | 28.400 | 282 |
Steingrímur J. Sigfússon | 115.000 | 350 |
Jóhanna Sigurðardóttir | 134.000 | 399 |
Miðað við þetta hefur einna minnst verið fjallað um Svein Harald af þeim aðilum sem hér eru til skoðunar, en þegar haft er í huga að maðurinn hefur gegnt starfinu í nokkrar vikur, þá þarf það ekki að koma á óvart. Annað sem vekur athygli, að lítið hefur farið mönnunum Davíð til hægri og vinstri handa (svo notuð sé samlíking hans sjálfs) þó svo að þeir hafi verið býsna lengi í sínum störfum áður en þeir hættu.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 49
- Frá upphafi: 1680037
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 43
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Tenglar
Upplýsingaöryggi og persónuvernd
- Betri ákvörðun ráðgjafarþjónusta Marinós G. Njálssonar
- CISA, CISM, COBIT, Val IT
- Staðlaráð Íslands
- Heimasíða Persónuverndar
Hagsmunabarátta
- Hagsmunasamtök heimilanna
- Hugmyndir að úrræðum fyrir almenning
- Færa þarf höfuðstól lánanna niður
- Fólk þarf leið út úr fjárhagsvandanum
- Innlegg í naflaskoðun og endurreisn
- Er raunhæft að afnema verðtrygginguna eða setja henni skorður?
- Aðgerðaráætlun fyrir Ísland
- Hinn almenni borgari á að blæða
- Leið ríkisstjórnarinnar er röng
- Innantómar aðgerðir til stuðnings heimilunum
- Tillögur talsmanns neytenda
- Á hverju munu Íslendingar lifa?
- Verðbólga sem hefði geta orðið
- Aðgerða þörf strax - Tillaga að aðgerðahópum
- Mikilvægast að varðveita störfin
- Hvar setjum við varnarlínuna?
- 385 milljarða til bankanna og reikningurinn til heimilanna
- 2009 gengið í garð, ár endurreisnar, en hvernig endurreisn viljum við?
- Jöklabréf, erlend lán og vaxtaskiptasamningar
Færsluflokkar
- Áhættustjórnun
- Bloggar
- Dægurmál
- Efnahagsmál
- Endurreisn
- Ferðalög
- Ferðaþjónusta
- Heimspeki
- HRUNIÐ
- Icesave
- Íbúðalánasjóður
- Íþróttir
- Lánamál
- Leiðsögn
- Lífeyrissjóðir
- Lífspeki
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Neytendavernd
- Persónuvernd
- Skuldamál heimilanna
- Snjóhengjur
- Stjórnmál og samfélag
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Upplýsingaöryggi
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Getur ekki verið að Davíð kunni ekki að googla
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 30.3.2009 kl. 00:32
Húff miðað við orð Davíðs þá þarf Jóhanna að muna eftir því að googla umsækjendur áður en hún ræður í stöðuna, því greinilega er það með mikilvægari meðmælum sem Seðlabankastjóri þarf að hafa..
Ragnar (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 07:37
Mér þykir sárast að Villi, sem er góður drengur, skuli hafa þurft, með tárin í augunum, að klappa fyrir níði um sjálfan sig.
Sigurður Þórðarson, 30.3.2009 kl. 08:28
Iss ég er viss um að ef þú spyrð herra google hvort hann þekki Offara þá toppar það öruglega alla á þessum lista svo líklega ætti ég að sækja um seðlabankastjórastöðuna.
Offari, 30.3.2009 kl. 09:41
Ég pikkaði inn mitt nafn og fékk 151 þús. en þess má geta að það eru margir með sama nafni :)
Kjartan Pétur Sigurðsson, 30.3.2009 kl. 09:59
Ég fékk 215.000 hittinga fyrir DO og 37.080 fyrir Svein Harald Øygard/Öygard/Oygard, þar munar svolitlu fyrir þann síðarnefnda.
Sveinn í Felli (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 13:13
Sveinn, við verðum að gera okkur grein fyrir að það hefur varla komið út blað á Íslandi í 25 ár án þess að minnst sé á Davíð. En hvað fékkstu, ef þú flettir í gegn um allan listann hjá Google?
Marinó G. Njálsson, 30.3.2009 kl. 13:51
Skemmtilegt uppátæki hjá þér.
Fjöldi greina á "Google" skiptir ekki öllu máli.
DO hefði alveg eins getað sagt "pabbi minn er mikið sterkari en pabbi þinn". Jafn kjánalegt.
Ræða DO sagði mun meira um andlega heilsu hans sjálfs en þá sem hann ræddi um og kannski staðfestu orð GH það síðar á fundinum.
Páll A. Þorgeirsson (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 14:16
Mín "í reynd" tala er 262 og er víst alveg pottþétt sem slík þar sem ég á ekki neinn alnafna. Sé listinn að ofan leiðréttur vegna alnafna viðkomandi verður ljóst að ég er frægari en þeir allir, etv. að Dabba og Þorgerði frátöldum.
Baldur Fjölnisson, 30.3.2009 kl. 15:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.