5.3.2009 | 10:03
Einkennileg umferðarstjórnun
Ég keyrði framhjá staðnum eftir að skólaakstrinum var lokið. Umferðin inn í Reykjavík var frekar létt og svo kom ég þar að sem bíllinn stóð brunninn uppi á umferðareyju. Lögreglubíll með blikkandi ljós stóð á akreininni við hlið eyjunnar og svo teygði bílaröðin sig eins langt og augað eygði. Hefur líklegast náð hálfa leið til Keflavíkur.
Það sem vakti furðu mína, var stjórnun lögreglu á þessari bílamergð. Á því svæði, þar sem bruninn varð, eru þrjár akreinar. Tvær fyrir umferð til Reykjavíkur og síðan að- og frárein fyrir þá sem eru að koma af Fífuhvammsvegi og hina sem ætla upp að Hamraborgarsvæðinu. Það var merkilegt að sjá að á meðan bílstjórar á akreinunum tveimur til Reykjavíkur fóru til skiptis bíll fyrir bíl af akreinunum tveimur til Reykjavíkur framhjá slysstað, þá var þriðja akreinin auð eða því sem næst. Það hefði nú verið sniðugt og stytt mörgum biðina, ef myndaður hefi verið smá sveigur á umferðina og henni hliðrað til hægri um eina akrein á þessum kafla. Þetta hefði vissulega tafið þá sem koma af Fífuhvammsveginum eitthvað og kostað einn lögregluþjón í umferðarstjórnun, en mikið held ég að biðin fyrir fólkið sem var að koma úr Hafnarfirði hefði verið mun styttri.
Eldur í bíl á Hafnarfjarðarvegi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 38
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Tenglar
Upplýsingaöryggi og persónuvernd
- Betri ákvörðun ráðgjafarþjónusta Marinós G. Njálssonar
- CISA, CISM, COBIT, Val IT
- Staðlaráð Íslands
- Heimasíða Persónuverndar
Hagsmunabarátta
- Hagsmunasamtök heimilanna
- Hugmyndir að úrræðum fyrir almenning
- Færa þarf höfuðstól lánanna niður
- Fólk þarf leið út úr fjárhagsvandanum
- Innlegg í naflaskoðun og endurreisn
- Er raunhæft að afnema verðtrygginguna eða setja henni skorður?
- Aðgerðaráætlun fyrir Ísland
- Hinn almenni borgari á að blæða
- Leið ríkisstjórnarinnar er röng
- Innantómar aðgerðir til stuðnings heimilunum
- Tillögur talsmanns neytenda
- Á hverju munu Íslendingar lifa?
- Verðbólga sem hefði geta orðið
- Aðgerða þörf strax - Tillaga að aðgerðahópum
- Mikilvægast að varðveita störfin
- Hvar setjum við varnarlínuna?
- 385 milljarða til bankanna og reikningurinn til heimilanna
- 2009 gengið í garð, ár endurreisnar, en hvernig endurreisn viljum við?
- Jöklabréf, erlend lán og vaxtaskiptasamningar
Færsluflokkar
- Áhættustjórnun
- Bloggar
- Dægurmál
- Efnahagsmál
- Endurreisn
- Ferðalög
- Ferðaþjónusta
- Heimspeki
- HRUNIÐ
- Icesave
- Íbúðalánasjóður
- Íþróttir
- Lánamál
- Leiðsögn
- Lífeyrissjóðir
- Lífspeki
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Neytendavernd
- Persónuvernd
- Skuldamál heimilanna
- Snjóhengjur
- Stjórnmál og samfélag
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Upplýsingaöryggi
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Umferðarstjórnun við svona aðstæður snýst eingöngu um öryggi lögregluþjóna, ekki sauðsvartan almúgann. Þessi vinnubrögð eru kennd í lögregluskólanum, það er ekkert leyndarmál.
Meinhornið, 5.3.2009 kl. 10:23
Enda er öryggi lögreglumanna mun mikilvægara en það hvort að fólk verði 5 mínútum lengur á leiðinni í vinnuna. En sjálfsagt má gera betur í þessum efnum.
Bjarki (IP-tala skráð) 5.3.2009 kl. 10:37
Bjarki, ég held að í þessu tilfelli, þá hafi nú frekar verið um klukkutíma. Mér finnst þessi umræða um öryggi lögreglumanna annars ekkert eiga við hér, þar sem öryggið hefði aukist ef umferðinni hefði verið stjórnað. Eins og ég sá þetta, þegar ég var að aka frá Reykjavík frramhjá slysstað, þá hefði mátt á mjög auðveldan hátt hliðra umferðinni til um eina akrein og þá hefði stíflan ekki myndast. Þetta er spurning um hugkvæmni.
Marinó G. Njálsson, 5.3.2009 kl. 10:42
Nei, þetta er einmitt spurning um öryggi lögreglumanna á vettvangi!
Magnús V. Skúlason, 5.3.2009 kl. 10:45
Það er það sem ég segi, Magnús. Fyrirkomulagið sem var við haft dróg úr öryggi, en jók það ekki.
Marinó G. Njálsson, 5.3.2009 kl. 12:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.