27.9.2008 | 19:22
Ó, vakna þú mín Þyrnirós
Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Seðlabanka Íslands eru hlutverk hans sem hér segir:
Seðlabankinn fer með stjórn peningamála á Íslandi og hefur með höndum margþætta starfsemi í þeim tilgangi. Meginmarkmiðið með stjórn peningamála er stöðugleiki í verðlagsmálum. Seðlabankanum ber þó einnig að stuðla að framgangi meginmarkmiða efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar að svo miklu leyti sem hann telur það ekki ganga gegn meginmarkmiði hans um verðstöðugleika. Seðlabankinn á ennfremur að sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisvarasjóð og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi, þ.m.t. greiðslukerfi í landinu og við útlönd. Fleiri verkefni mætti upp telja, svo sem útgáfu seðla og myntar, framkvæmd gengismála og fleira, samanber það sem tilgreint er í lögum um bankann.
Mér sýnist sem Seðlabankinn ekki hafa staðið sig í neinu af ofangreindu. Getuleysi Seðlabankans til að halda hér stöðugu verðlagi og að ég tali nú ekki um að mynda hér eðlilegan markað með gjaldmiðil þjóðarinnar hefur kostað mjög marga háar upphæðir. 50% fall krónunnar og 14% verðbólga ber ekki neinu öðru vott en að Seðlabankinn hefur brugðist hlutverki sínu.
Ég get ekki annað en velt fyrir mér, er hvort ég geti leitað réttar mín, vegna hinna himinháu upphæða sem ég hef tapað (í formi hækkunar höfuðstóls lána) vegna aðgerðaleysi/getuleysi Seðlabankans. Hvernig stendur á því að Seðlabanki Íslands láti það líðast að krónan lækki um 50% án þess að reyna að spyrna við fæti. Heldur Seðlabankinn virkilega að hann geti beðið af sér storminn? Við sjáum hvaða árangur er af því. Allt bendir til að verðbólga í nóvember og desember verði um og yfir 18%. Þetta þýðir að verðtryggð lán munu hækka um þessi sömu 18% á þessu tímabili. Það sem verra er, að verðbólga á tímabilinu frá ágúst 2007 fram í janúar 2009 getur orðið allt að 22,5%. Sé maður svo óheppinn að vera með skuldirnar í erlendri mynt, þá erum við að tala um að gengisvísitalan hafi hækkað um 64% frá því júlí á síðasta ári. Svissneskir frankar hafa hækkað um 78% og japönsk jen um 82%. Hvað hefur Seðlabanki Íslands gert til að sporna við þessu? Satt best að segja get ég ekki séð að hann hafi gert neitt að viti. Raunar sýnist mér að Seðlabankinn hafi ýtt undir þessa þróun með óábyrgum yfirlýsingum, ótrúlegri framsetningu upplýsinga, ónákvæmum vinnubrögðum og viðskotsillum viðbrögðum við umræðu í þjóðfélaginu. Menn hafa lokað sig inni og í besta falli veitt drottningarviðtöl. Beiðni greiningadeilda bankanna um að fá að taka þátt í fundum um stefnu bankans hefur verið hafnað. Menn hafa fallið í þá gryfju að kenna öðrum um og neita að líta á eigin misgjörðir.
Ef Seðlabanki Íslands (og raunar ríkisstjórnin líka) vakna ekki seinna en strax af sínum Þyrnirósarsvefni. Forsætisráðherra kallaði seðlabankastjóra á fund sinn í dag, en neitar að um krísufund hafi verið að ræða. Þeir hittist oft. Mér er alveg sama hvort þeir hittist oft. Í dag er krísa í gjaldeyrismálum þjóðarinnar. Af þeirri ástæðu þarf KRÍSUFUND. Það þarf víðtækar aðgerðir til að bjarga því sem bjarga verður og það þarf að grípa til þeirra aðgerða STRAX. Það þolir ekki frekari bið. Við erum búin að bíða frá því í mars og ástandið gerir ekkert annað en að versna. Ástandið er orðið svo grafalvarlegt að sýna þarf lífsmark sem eykur traust "markaðarins" á íslenska hagkerfinu og íslensku krónunni.
Fjölmargar fjölskyldur í landinu eru komnar í alvarlega greiðslukreppu. Afborganir og höfuðstólar lána hafa hækkað um tugi prósenta. Viðbrögð seðlabankastjóra hafa hingað til verið að fólk geti sjálfu sér kennt um. Það hafi farið út í óábyrgar fjárfestingar, það hafi mátt vita að gengi krónunnar myndi lækka. Málið er að þessi rök halda ekki vatni. Í fyrsta lagi fór fólk út í fjárfestingar sínar í þeirri trú að Seðlabanki Íslands og ríkisstjórn hefði stjórn á stöðunni. Í öðru lagi gat það á engan hátt reiknað með því að Seðlabanki Íslands væri vanhæfur til að kljást við lausafjárkreppuna, fyrir utan að ekki var hægt að ætlast til að almennir borgarar gætu gert sér grein fyrir afleiðingum þeirrar kreppu. Í þriðja lagi datt engum í hug að Seðlabanki Íslands væri gjörsamlega ófær um að verja gengi íslensku krónunnar. Ég átti sjálfur von á að gengisvísitalan myndi líklegast hækka í 125-130, enda var það í samræmi við spá greiningadeilda og Seðlabankans, en að gengisvísitala hækkað fyrst í 150 á örfáum dögum í mars og síðan í 183 á örfáum dögum í september er verra en nokkrum lántakanda gat dottið í hug. Það er því ekki hægt að kenna lántakendum um óábyrgar lántökur. Þeir sem áttu að tryggja stöðugt gengi brugðust og það er tími til kominn að þessir aðilar, þ.e. Seðlabanki og ríkisstjórn, sýni að þeir séu starfi sínu vaxnir eða segi af sér ella.
Sameiginleg ákvörðun landanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 0
- Sl. sólarhring: 87
- Sl. viku: 275
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 34
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Tenglar
Upplýsingaöryggi og persónuvernd
- Betri ákvörðun ráðgjafarþjónusta Marinós G. Njálssonar
- CISA, CISM, COBIT, Val IT
- Staðlaráð Íslands
- Heimasíða Persónuverndar
Hagsmunabarátta
- Hagsmunasamtök heimilanna
- Hugmyndir að úrræðum fyrir almenning
- Færa þarf höfuðstól lánanna niður
- Fólk þarf leið út úr fjárhagsvandanum
- Innlegg í naflaskoðun og endurreisn
- Er raunhæft að afnema verðtrygginguna eða setja henni skorður?
- Aðgerðaráætlun fyrir Ísland
- Hinn almenni borgari á að blæða
- Leið ríkisstjórnarinnar er röng
- Innantómar aðgerðir til stuðnings heimilunum
- Tillögur talsmanns neytenda
- Á hverju munu Íslendingar lifa?
- Verðbólga sem hefði geta orðið
- Aðgerða þörf strax - Tillaga að aðgerðahópum
- Mikilvægast að varðveita störfin
- Hvar setjum við varnarlínuna?
- 385 milljarða til bankanna og reikningurinn til heimilanna
- 2009 gengið í garð, ár endurreisnar, en hvernig endurreisn viljum við?
- Jöklabréf, erlend lán og vaxtaskiptasamningar
Færsluflokkar
- Áhættustjórnun
- Bloggar
- Dægurmál
- Efnahagsmál
- Endurreisn
- Ferðalög
- Ferðaþjónusta
- Heimspeki
- HRUNIÐ
- Icesave
- Íbúðalánasjóður
- Íþróttir
- Lánamál
- Leiðsögn
- Lífeyrissjóðir
- Lífspeki
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Neytendavernd
- Persónuvernd
- Skuldamál heimilanna
- Snjóhengjur
- Stjórnmál og samfélag
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Upplýsingaöryggi
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Við fáum að kaupa ógeðisdrykkinn og drekka hann líka. Allt í boði siðblindra stjórnmálamanna og bankaræningja. Ástandið er samt nokkuð gott ennþá. En eftir eitt til tvö ár með sama framhaldi hugsa ég að ástandið verði verra en nokkur ímyndi sér.
Eina sem virkar er að festa gengið og setja bankana í gjörgæslu. Skipa tvær til þrjár skúringakonur og einn rafvirkja til að stjórna hverjum banka. Síðan þarf að banna allt brask og svindl. Það á bara ekki að vera hægt að reka virðulegar stofnanir eins og t.d. Landsbankann (banki tveggja landsmanna) sem eins konar fjárhættuspil.
Björn Heiðdal, 27.9.2008 kl. 20:16
Ég veit ekki, Björn, hvort vandamálið sé lengur vantraust "markaðarins" á bönkunum. Vandamálið fyrst og fremst að Seðlabankinn virðist ekki hafa hugmyndaflug eða úrræði til að takast á við vandann. Hann á engin nógu öflug vopn í vopnabúri sínu. Og það sama á við um ríkisstjórnina. Hún fær heimild til að taka lán, en tekur ekki lánið. Hún reynir ekkert til að vernda atvinnulífið í landinu. Jóhanna er sú eina í þessari ríkisstjórn sem skilur að grípa þarf til aðgerða strax og hún er sú eina sem lætur verkin tala. Allir aðrir ráðherrar sitja með hendur í skauti sér og telja sig ekki þurfa að bera ábyrgð á efnahagsástandinu. Menn ætla greinilega að bíða þar til fjárlagafrumvarpið verður lagt fram. Málið er að núverandi ástand þolir enga bið. Það verður að leggja umsvifalaust fram tillögur um úrbætur og það þarf að framkvæma þær án tafar.
Marinó G. Njálsson, 27.9.2008 kl. 21:19
Feykigóð grein frá þér eins og við er að búast. Við erum greinilega að pæla í sömu málum.
Hrannar Baldursson, 28.9.2008 kl. 10:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.