6.5.2008 | 16:11
Í útvarpsviðtal út af bloggi
Það var hringt í mig í morgun frá Rás 2 og ég beðinn um að koma í viðtal út af bloggi mínu um efnahagsmál. Að sjálfsögðu stóðst ég ekki freistinguna og verður viðtalið birt á næstu dögum. [Uppfært kl. 17:54]
Það er gagnrýni mín á hagstjórn Seðlabankans sem varð til þess að ég var valinn sem "maðurinn af götunni" í umræðu um efnahagsástandið. Það er áhugavert að blaðrið í manni er talið það merkilegt að maður geti talist góður fulltrúi almennings í svona umræðu. Kannski fæ ég atvinnutilboð frá einhverri greiningardeild næst
Með mér í viðtalinu var hinn glaðlyndi Freyr Eyjólfsson og svo Guðmundur Sverrir Þór af viðskiptablaði Morgunblaðsins. (Það var kannski einhliða að fá tvo frá sama miðli, þar sem ég skrifa jú á mbl.is bloggið.)
Eins og þeir sem lesið hafa blogg mitt hafa tekið eftir, þá er mér tíðrætt um Bank of international settlement (BIS) og Basel II (New Basel Capital Accord) reglurnar og hef kennt þeim um margt. Einnig hef ég bent á ábyrgð Seðlabanka Íslands (og þá Fjármálaeftirlitsins) í útfærslu Basel II á Íslandi. Hefur sumum virst sem ég hvítþvoi bankana og almenning af allri ábyrgð. Ég er alls ekki að segja að ábyrgðin sé ekki líka bankanna og almennings, en leikreglurnar eru settar af BIS og Seðlabankanum og það er annarra að vinna samkvæmt þeim.
Það má koma með samlíkingu við leikreglur í handknattleik. Alþjóða handknattleikssambandið (IHF) samþykkir breytingar á leikreglum og setur það í hendurnar á landssamböndum (hér HSÍ) að innleiða þær hvert í sínu landi. Dómaranefndum er falið að birta þær, veita fræðslu, þjálfa dómara og hafa eftirlit. Liðin eiga síðan að haga leik sínum í samræmi við reglurnar. IHF eða HSÍ eru hugsanlega ekki sátt við það hvernig dómaranefndir hafa menntað dómarana, þannig að þeir leyfa leikmönnum meira en hugmyndir IHF og HSÍ með breytingunum voru, þá er geta IHF og HSÍ ekki gagnrýnt dómarana eða leikmenn. Nú skiptum við á leikreglum og Basel II, IHF verður BIS, HSÍ að Seðlabanka, dómaranefnd verður Fjármálaeftirlit, dómarar að bönkum, lið/leikmenn verða fyrirtæki/almenningur. Samkvæmt þess verða BIS og seðlabankar í löndum heims að axla ábyrgð sína á þeirri bankakreppu sem er í gangi í heiminum í dag, þar sem þessir aðilar skilgreindu rammann og leikreglurnar.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 30
- Frá upphafi: 1681331
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 23
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Tenglar
Upplýsingaöryggi og persónuvernd
- Betri ákvörðun ráðgjafarþjónusta Marinós G. Njálssonar
- CISA, CISM, COBIT, Val IT
- Staðlaráð Íslands
- Heimasíða Persónuverndar
Hagsmunabarátta
- Hagsmunasamtök heimilanna
- Hugmyndir að úrræðum fyrir almenning
- Færa þarf höfuðstól lánanna niður
- Fólk þarf leið út úr fjárhagsvandanum
- Innlegg í naflaskoðun og endurreisn
- Er raunhæft að afnema verðtrygginguna eða setja henni skorður?
- Aðgerðaráætlun fyrir Ísland
- Hinn almenni borgari á að blæða
- Leið ríkisstjórnarinnar er röng
- Innantómar aðgerðir til stuðnings heimilunum
- Tillögur talsmanns neytenda
- Á hverju munu Íslendingar lifa?
- Verðbólga sem hefði geta orðið
- Aðgerða þörf strax - Tillaga að aðgerðahópum
- Mikilvægast að varðveita störfin
- Hvar setjum við varnarlínuna?
- 385 milljarða til bankanna og reikningurinn til heimilanna
- 2009 gengið í garð, ár endurreisnar, en hvernig endurreisn viljum við?
- Jöklabréf, erlend lán og vaxtaskiptasamningar
Færsluflokkar
- Áhættustjórnun
- Bloggar
- Dægurmál
- Efnahagsmál
- Endurreisn
- Ferðalög
- Ferðaþjónusta
- Heimspeki
- HRUNIÐ
- Icesave
- Íbúðalánasjóður
- Íþróttir
- Lánamál
- Leiðsögn
- Lífeyrissjóðir
- Lífspeki
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Neytendavernd
- Persónuvernd
- Skuldamál heimilanna
- Snjóhengjur
- Stjórnmál og samfélag
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Upplýsingaöryggi
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Þetta var víst birt á þriðjudaginn, en það fór alveg framhjá mér. Hlusta má á þetta hér.
Marinó G. Njálsson, 8.5.2008 kl. 10:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.