Leita í fréttum mbl.is

Mótbárur sendar fjármálastofnun - endurbirt fćrsla

Vegna nýfallins dóms Hćstaréttar nr. 464/2012 langar mig ađ endurbirta tćplega ársgamla fćrslu, en hún er međ mótbárum mínum viđ endurútreikning Landsbankans hf. á áđur gengistryggđum lánum, sem ég var međ hjá bankanum.

Mótbárur sendar fjármálastofnun

Fjármálafyrirtćkin eru orđin ansi ágeng í innheimtum sínum og knýja ţá sem ekki viđurkenna útreikninga sína til ađ gangast undir ţá.  Eina sem lántakar geta gert fyrir utan ađ fara í dómsmál, er ađ hafa uppi mótbárur, ţ.e. mótmćla ţví ađ krafa á hendur ţeim sé réttileg.  Hér fyrir neđan eru mótbárur sem ég sendi Landsbankanum í dag og er öđrum frjálst ađ nota ţćr ađlagađar ađ sínum ţörfum.  Tekiđ skal fram ađ textinn er lítillega breyttur frá ţeim sem ég sendi.

Mótbárur

Međ ţessum pósti er ég ađ halda uppi mótbárum viđ kröfu Landsbankans hf. og hafa mótbárurnar skjalfestar međ mínum tilvísunum til kröfuréttar.  Í bók Páls Hreinssonar Viđskiptabréf segir m.a. um mótbárur:

Mótbárur skuldara gagnvart framsalshafa má flokka í ţrennt.  Í fyrsta lagi mótbárur um ađ krafa á hendur skuldara sé falin niđur.  Í öđru lagi mótbárur er lúta ađ stofnun viđskiptabréfakröfunnar, ţ.e. ađ hún hafi veriđ ógild frá upphafi.  Í ţriđja lagi geta mótbárur varđađ efni kröfunnar.. 

Mínar mótbárur falla undir fyrsta liđinn og lúta fyrst og fremst ađ ţví ađ krafa hafi ađ hluta veriđ fallin niđur ţar sem sá hluti hafi veriđ ađ fullu efndur eđa eins og Páll Hreinsson segir:

Í ţennan flokk mótbára [um ađ viđskiptabréfakrafa sé niđur fallin] fellur ađ sjálfsögđu sú mótbára ađ krafa sé greidd sbr. tilskipun frá 9. febrúar 1798..

Ég tek ađ sjálfsögđu fram ađ ég lít ekki á ţađ ađ ég hafi veriđ í vanskilum.  Samkvćmt kröfurétti hef ég fullan rétt á ađ greiđa ekki ţađ sem ég tel ekki vera rétt krafa enda mótmćlti ég útreikningunum.  Vanefnd myndast ţegar réttileg krafa er ekki greidd međ réttilegum hćtti og án galla.

Ástćđan fyrir ţví ađ ég tel kröfu ykkar ekki rétta er svo sem vel ţekkt, en langar mig ađ rifja ţađ upp međ tilvísunum í kröfurétt.  Í bókinni Kaflar úr Kröfurétti Ólafs Lárussonar segir m.a.:

Kröfuhafinn á heimtingu á ţví, ađ skuldarinn efni ađ fullu ţćr skyldur sem krafan leggur honum á herđar.  Til fullra efnda heyrir ţađ ađ ţćr fari fram á réttum stađ og á réttum tíma.  Ef fullar efndir eiga sér stađ, er skyldu skuldarans ţar međ lokiđ og kröfuhafinn getur ţá einskis frekar af honum krafist.

Og síđar í bókinni segir:

Viđ framsaliđ öđlast nýi kröfuhafinn (framsalshafi) allan ţann rétt sem fyrri kröfuhafi (framseljandi) átti á hendur skuldara og ađ jafnađi öđlast hann ekki annan rétt gegn skuldara en framseljandi átti.

Og enn segir í ţeirri ágćtu bók:

Ţegar krafa er liđin undir lok er greiđsluskyldu skuldarans lokiđ.  Ef kröfuhafinn fćri í mál viđ skuldarann út af slíkri kröfu og skuldarinn hefđi uppi ţá vörn ađ krafan vćri úr gildi gengin myndi skuldarinn verđa sýknađur af kröfu sćkjandans.

Nú í bókinni Kröfuréttur I eftir Ţorgeir Örlygsson, Benedikt Bogason og Eyvind G. Gunnarsson segir:

Greiđsla skuldara til kröfuhafa leiđir ţví ađeins til brottfalls skyldu skuldara og ţar međ til loka kröfuréttinda, ađ greitt sé í samrćmi viđ ákvćđi samnings eđa lagareglna.  Til réttra efnda af hálfu skuldara heyrir m.a. ađ hann inni greiđslu sína af hendi á réttum stađ og réttum tíma.  (Neđanmáls: Til viđbótar ţví, ađ krafa sé greidd á réttum stađ og tíma, heyrir ţađ til réttra efnda á kröfu, ađ innt sé af hendi greiđsla sú sem greiđa átti, hún hafi ţá eiginleika til ađ bera sem um var samiđ, og ađ hún sé greidd til kröfuhafa eđa einhvers sem heimild hefur til ađ taka viđ greiđslunni fyrir hans hönd.) (Leturbreyting er mín)

Og loks vil ég vitna í:

Ţađ heyrir til réttra efnda kröfu í gagnkvćmu skuldarsambandi í fyrst lagi ađ hún sé greidd á réttum stađ og réttum tíma.  Í öđru lagi ađ kröfuhafi hljóti ţá réttarstöđu, sem af samningi leiđir, ţ.e. hann öđlist ţćr heimildir yfir greiđslunni, sem samningur hans og skuldara gerir ráđ fyrir.  Í ţriđja lagi ađ greiđslan sé gallalaus, ţ.e. ađ raunverulegum eiginleikum hennar sé ekki áfátt.

Ţađ hefđi svo sem veriđ nóg, ađ vera bara međ fyrstu tilvitnunina, en gaman er ađ vitna í fleiri til ađ sýna hversu sterkur réttur minn er samkvćmt kröfurétti.  Ég vil hafa ţađ á hreinu ađ ég tel ađ kröfur á mig vegna ţess tíma sem kröfurnar voru í höndum Landsbanka Íslands hf. hafi veriđ ađ fullu efndar.  Viđ framsal "öđlast nýi kröfuhafinn (framsalshafi) allan ţann rétt sem fyrri kröfuhafi (framseljandi) átti á hendur skuldara og ađ jafnađi öđlast hann ekki annan rétt gegn skuldara en framseljandi átti" eins og segir ađ ofan.  Landsbankinn hf. á ţví engar kröfur á mig sem Landsbanki Íslands hf. átti ekki viđ framsal kröfunnar.  Landsbankinn hf. (Nýi Landsbankinn hf./NBI hf.) lét ţinglýsa í skilmálabreytingu í október 2008 ađ ég fengi ţá skilmálabreytingu vegna ţess ađ ég var í skilum.  Er mér ómögulegt ađ skilja hvernig Landsbankinn hf. geti átt ríkari rétt á mig núna í nóvember 2011 en hann átti í október 2008.  Ég hef ţví alltaf mótmćlt rétti ykkar til ađ reikna lánin eins og ţiđ geriđ.  Ţess vegna neita ég ţví ađ um vanskil hafi veriđ ađ rćđa, ţar sem ég fékk aldrei í hendur rétta greiđslukröfu.

Ég mun ţví gera fyrirvara á bćđi skuldabréf og geri hér fyrirvara viđ útreikninga ykkar á meintum vanskilum, enda tel ég ekkert af ţessu standast íslenskan kröfurétt.

Dómstólar eiga bara einn kost

Svo mörg voru ţau orđ.  Ţađ er mín skođun og allra lögfrćđinga sem ég hef rćtt viđ, ađ dómstólar eigi bara einn kost í stöđunni, ţegar reynir á endurútreikninga fyrir dómi.  Ţ.e. ađ hafna endurútreikningi á ţegar greiddum gjalddögum.  Jón Finnbjörnsson viđ Hérađsdóm Reykjavíkur gerđi ţađ raunar í máli nr. X-77/2010 Arion banki gegn Agli ehf. ţar sem hann segir:

Ţá er ekki heimilt ađ reikna á ný afborgun af vöxtum og höfuđstól, ef hún hefur veriđ greidd ađ fullu á réttum gjalddaga eins og krafist var.

Ţví miđur hefur Hćstiréttur dregiđ lappirnar međ ađ taka á ţessu atriđi, ţó hann hafi fengiđ til ţess mörg tćkifćri.  Rétturinn hunsar međ ţví fjölmarga úrskurđi Evrópudómstólsins um ađ honum beri ađ hafa í huga betri rétt neytenda, ţrátt fyrir ađ hann hafi ekki veriđ reifađur fyrir dómi.

Nú tek ég ţađ fram, ađ ég er ekki löglćrđur og ţekki ţví ekki alla króka og kima lögfrćđinnnar.  Einnig fékk ég Viđskiptabréf Páls Hreinssonar bara í hendur á laugardag og keypti hina tvćr síđdegis í gćr.  Ég er ţví ekki  búinn ađ lesa ţćr spjaldanna á milli og gćti ţví hafa yfirsést eitthvađ sem vinnur gegn mér og öđrum lántökum í ţessu máli.  Ţćtti mér vćnt um ađ fá ábendingar um slíkt, ţví hafa skal ţađ sem sannara reynist.

 


Bloggfćrslur 26. október 2012

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband