Leita í fréttum mbl.is

Verkfallið er í góðum gír

Nú er fyrsti dagur greiðsluverkfalls að kvöldi kominn.  Ég veit ekki betur en að hann hafi gengið mjög vel, en einhverjar fregnir hef ég haft af undarlegu háttalagi bankanna.

  • Nokkur dæmi eru um að einstaklingar í greiðsluþjónustu hafi kvartað yfir því að greiðslur, sem átti að taka út 1. október, hafi verið skuldfærðar daginn áður.  Hafa menn furðað sig á þessu og velt því fyrir sér hvort bankinn sé ekki að brjóta reglur og samninga.  Séu viðskiptavinir í greiðsluþjónustu, þá eru gerðir samningar um fyrirkomulag og tímasetningu skuldfærslu.  Það þýðir að viðskiptavinurinn heimilar skuldfærsluna á fyrirfram ákveðnum dögum og að skuldfærslan eigi sér stað áður en sá dagur rennur upp hlýtur því að vera óleyfileg skuldfærsla.
  • Annað sem hefur borið á, er að bankar hafa sett takmarkanir á úttektir eða viðskiptavinir beðnir um að koma seinna.  Þetta sýnir annað hvort að bankarnir hafa ekki verið undirbúnir fyrir vel auglýstar aðgerðir eða að þátttakan í aðgerðunum hefur verið meiri en bankarnir gerðu ráð fyrir.  Nema þetta sé brella til að hafa áhrif á verkfallsfólk.
  • Þriðja sem ég hef heyrt af, er að bankastarfsmenn hafa reynt að telja fólk af því að taka þátt í aðgerðunum.  Fólk hefur verið spurt alls konar spurninga, hvort ekki væri rétt að taka minna út eða hvort það sé alveg visst um að það ætli að segja upp kortunum sínum eða greiðsluþjónustunni.
  • Loks eru afmörkuð tilvik um hreinlega dónaleg framkoma einstakra starfsmanna gagnvart kúnnanum og óvarkárni.  Dæmi eru um að þegar peningar eru taldir, þá heyrist það hátt og skýrt í bankanum, seðlabunkum er liggur við hent í kúnnann og sjálfsögð háttvísi og kurteisi látinn lönd og leið.  [Feitletruðu orðin eru viðbætur frá kl. 15:05 vegna þess að einhverjir misskildu að hér væri átt við alla bankamenn.]

Ég veit ekki hvort bankafólk sé að ná sér niðri á fólki vegna útúrsnúnings DV á fréttatilkynningu samtakanna á miðvikudag eða hvort það telji þessum aðgerðum beint gegn þeim persónulega.  Hver svo sem ástæðan er, þá dæmir svona framkoma sig sjálf. 

Ég held að bankafólk eigi að hafa í huga, að dýrmætustu eignir bankans eru viðskiptavinirnir, orðspor og viðskiptavild.  Það vorum ekki við viðskiptavinirnir sem rústuðum traustinu á fjármálafyrirtækjunum.  Það voru þau sjálf og haldi fólk að með því að skipta um nafn og kennitölu, þá ávinni það traustið aftur, þá fer það villu vegar.  Traustið kemur vonandi hægt og sígandi, þegar fjármálafyrirtækin af unnið til þess.  Satt best að segja virðist mér þau lítið gera til þess.  Það hefur þurft að draga afsakanir með töngum út úr stjórnendum fyrirtækjanna.  Auðmýkt og lítillæti virðist ekki þekkjast hjá þeim (þ.e. stjórnendunum).  Þó það sé komið nýtt fólk í brúnna, sem var hugsanlega ekki í starfi hjá fyrirtækjunum fyrir hrunið, þá er það gott fyrsta skref að viðurkenna klúðrið og hvernig brotið var á rétti viðskiptavinanna.  Næsta skref er að koma því til skila í allar deildir fyrirtækjanna að sýna eigi viðskiptavinum virðingu, sanngirni og kurteisi.  Nokkuð sem skortir mjög víða í flestum, ef ekki öllum fjármálafyrirtækjunum.

Höfum það hugfast að Hagsmunasamtök heimilanna hafa í 8 mánuði leitað eftir samstarfi við fjármálafyrirtæki og stjórnvöld um lausn á stöðu heimilanna.  Já, samstarfi, ekki kynningarfundum.  Í 8 mánuði höfum við verið hunsuð og samt erum við einu samtök neytenda sem höfum þetta sem okka megin stefnumál.  Hverju hefur þessi skortur á samstarfi skilað okkur?  Greiðsluverkfalli.  Hvernig væri að fara að vakna af þyrnirósarsvefninum og bjóða okkur til alvöru viðræðna?  Við erum ekki óvinurinn.  Við erum viðskiptavinir ykkar og þið fóruð illa með okkur þegar þið voruð undir gömlu kennitölunni.  Verið bara fengin að við skulum ennþá stunda viðskipti við ykkur.  Það er ekki víst að við gerum það til eilífðarnóns.  Og hvað ætlið þið þá að gera? Loka búllunni?

Ég vil bara segja, að oftast þegar komið er illa fram við mig í viðskiptum, þá gef ég viðkomandi ekki annað tækifæri nema viðkomandi lofi bót og betrun og gefi mér einhverja tryggingu fyrir því.  Ég er að vísu í þeirri stöðu að sá banki sem ég átti í mestum viðskiptum við, er ekki til lengur, þ.e. SPRON/Sparisjóðurinn á Seltjarnarnesi.  Ég var fluttur nauðungaflutningum yfir í Kaupþing á Hagatorgi og varð illt í maganum við þá tilhugsun.  En ástæðan fyrir því að ég ákvað að gera ekkert í málunum í bili er einföld.  Þjónustufulltrúinn minn utan af Nesi hóf störf í útibúinu.  Ef hún væri ekki þarna, þá væri ég löngu farinn eitthvað annað. Og þetta er oftast ástæðan fyrir því að við, viðskiptavinirnir, höldum ennþá tryggð við gömlu bankana okkar þó þeir séu komnir með nýja kennitölu.  Vegna mannlegu samskiptanna sem við höfum byggt upp í gegnum árin.  Þess vegna sárnar okkur, að stjórnendur bankanna skuli ekki skilja angist okkar og áhyggjur.  Skuli ekkert mark taka á því að fjárhagsvandinn, sem gamla kennitalan skapaði, er að éta okkur að innan, valda svefnleysi, magaverkjum, streituköstum, reiði, höfuðverkjum og öðrum andlegum og líkamlegum kvillum.  Við erum að biðja um að nýja kennitalan bæti okkur það tjón sem gamla kennitalan olli.  Ekki málamyndagjörninga eða lengingu í hengingarólinni.  Nei, við viljum sjá aðgerðir sem gera okkur kleift að sofa rólega og vera afslöppuð.  Sem gera okkur kleift að líta björtum augum fram á veginn og skilja skuldaklafann eftir við vegkantinn áður en við höldum áfram ferð okkar í gegnum lífið.  Sem lætur okkur vilja halda áfram að búa í þessu þjóðfélagi og geta sagt við börnin okkar að Ísland sé landið.  Þetta var nefnilega einu sinni frábært land, en það var áður en gamla kennitalan ykkar óð yfir allt á skítugum skónum og skyldi hér allt eftir í rjúkandi rúst.  Og við sátum eftir með reikninginn.  Er það ekki furðulegur andskoti?

Ef þið hafið áhuga, þá vitið þið hvar okkur er að finna.  En hafið hugfast:  Ef þetta greiðsluverkfall dugar ekki til að sannfæra ykkur um samtakamátt okkar, þá boðum við bara annað sem mun vara lengur.  Við vitum hvernig verklýðshreyfingin gerði þetta og hvaða árangri hún náði.  Nýjasta hótun stjórnvalda um hrollvekjandi skattahækkanir mun bara þjappa okkur saman.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Mér datt í hug að það væri peningaþurrð í bönkunum í kvöld, fólk gat varla notað debit kortin sín á barnum.  Það var mikið um synjanir á úttektum í kvöl, þótt nóg ætti að vera á reikningunum.  Kannski var þetta bara enn eitt hrunið á Reikningsstofun bankanna. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 2.10.2009 kl. 01:44

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Þessa frétt var ég að lesa á visir.is  ->  http://www.visir.is/article/20091001/FRETTIR01/513171811  

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 2.10.2009 kl. 02:08

3 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Já, ég vissi af henni, en kveikjan að skrifum mínum var tölvupóstur sem ég fékk frá manni sem fékk ekki að taka út peninga og var sagt að koma í fyrramálið.

Marinó G. Njálsson, 2.10.2009 kl. 02:11

4 Smámynd: Arnór Baldvinsson

Baráttukveðjur vestanhafs!

Kveðja

Arnór Baldvinsson, 2.10.2009 kl. 03:20

5 identicon

Fyrir nokkrum árum var þetta kallað vestfirðinga væl!!Bíddu nú eru allir vestfirðingar sem hrökluðust frá vestfjörðum eignalausir farnir að væla fyrir sunnan? varla!

Guðjon (IP-tala skráð) 2.10.2009 kl. 04:27

6 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Mikið er ég glaður, Guðjon, að það er til heiti á þessu sem þú getur notað á þetta.  En fyrir okkur hin, er "vestfirðinga væl" jákvætt eða neikvætt?

Arnór, er ekki þægilegt að geta horft á þetta úr fjarlægð?  Mikið væri ég til í að búa utan landsteinanna núna og vera ekki að finna fyrir þessu rugli á eigin skinni.

Marinó G. Njálsson, 2.10.2009 kl. 07:51

7 Smámynd: Þórður Björn Sigurðsson

Amen

Þórður Björn Sigurðsson, 2.10.2009 kl. 10:47

8 identicon

Þetta mjakast. 

Baráttukveðja

Sigurður Þórðarson (IP-tala skráð) 2.10.2009 kl. 10:48

9 identicon

Glæsilegt!

Friðrik Ásmundsson (IP-tala skráð) 2.10.2009 kl. 11:03

10 Smámynd: Snorri Hrafn Guðmundsson

"Nokkur dæmi eru um að einstaklingar í greiðsluþjónustu hafi kvartað yfir því að greiðslur, sem átti að taka út 1. október, hafi verið skuldfærðar daginn áður."

Er þetta ekki ólöglegt? Menn hljóta að vera í fullum rétti að greiða ekki þar sem slíkt er óábyrgt. Þetta er greinilega röksemdafærsla sem virkar.

Snorri Hrafn Guðmundsson, 2.10.2009 kl. 11:19

11 identicon

það þurfa allir að fara í verkfall. verkafólk, hjúkrunarfólk ég meina allar vinnandi hendur í verkfall. Öll skip/bátar að bryggju enginn fiskur enginn vinna enginn innkoma ekkert ekkert algjöra lámarksþjónustu á spítalana og hjúkrunarheimilin allir aðrir leggji niður störf + greiðsluverkfall

það fer allt á hvolf

Linda (IP-tala skráð) 2.10.2009 kl. 11:27

12 Smámynd: Magnús V. Skúlason

Ég ætla að biðja þig um að tala ekki eins og allt bankafólk sé með dónalegheit við viðskiptavini sína, flest allt það bankafólk sem ég þekki er með kurteisina fram í fingurgómana.

Magnús V. Skúlason, 2.10.2009 kl. 11:49

13 Smámynd: Þórður Björn Sigurðsson

Sammála Magnúsi.

Þórður Björn Sigurðsson, 2.10.2009 kl. 11:52

14 Smámynd: Þórður Björn Sigurðsson

Það er að segja varðandi þessa staðhæfingu:  ,,...flest allt það bankafólk sem ég þekki er með kurteisina fram í fingurgómana.

Þórður Björn Sigurðsson, 2.10.2009 kl. 11:55

15 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Magnús, það er hvergi sagt að "allt bankafólk sé með dónalega framkomu" heldur er sagt:

en einhverjar fregnir hef ég haft af undarlegu háttalagi bankanna.

Og svo segir sem EINN liður í upptalningu:

Loks er það hreinlega dónaleg framkoma starfsmanna gagnvart kúnnanum og óvarkárni.  Dæmi eru um að þegar peningar eru taldir, þá heyrist það hátt og skýrt í bankanum, seðlabunkum er liggur við hent í kúnnann og sjálfsögð háttvísi og kurteisi látinn lönd og leið.

"Einhverjar fregnir" þýðir að um einstök dæmi sé að ræða, ekki að þetta sé almennt.  Mér finnst þurfa mikinn vilja til að misskilja þetta þannig að "allt bankafók sé með dónalega framkomu".

Marinó G. Njálsson, 2.10.2009 kl. 12:13

16 Smámynd: Snorri Hrafn Guðmundsson

Hvað ætli þjóðin sé að klofna í marga hópa?  Dettur fáeinir í hug:

1. Útrásavíkingar

2. Skuldsett heimili sem vilja leiðréttingu á lánum.

3. Aðilar sem vilja EKKI að sett sé leiðrétting á lánum.

4. Starfsólk fjármálafyrirtækja.

5. Viðskiptavinir fjármálafyrirtækja.

6. ESB sinnar.

7. ESB andstæðingar.

8. IMF sinnar.

9. IMF andstæðingar.

Væri ekki vitlaust að kortleggja þetta ef einhver nennir því, sjá hvaða hópa vega þyngst. Slæmt að svona fámennþjóð klofni í endalausa hópa í staðin fyrir að pakka sér saman í sterka heild.

Snorri Hrafn Guðmundsson, 2.10.2009 kl. 13:08

17 Smámynd: Arnór Baldvinsson

Sæll Marinó,

"Þægilegt" er ekki orð sem ég myndi nota, en óneitanlega þakkar maður sínum sæla fyrir að vera ekki í þessari klemmu sem allt virðist vera komið í á Íslandi.  En ég veit ekki hvort það er "þægilegra" að horfa á slys eða vera í því!  Ég hef reynt að fylgjast með þessu eftir bestu getu en stundum hef ég hreinlega þurft að taka mér hvíld!  Ég get ekki sett mig í spor þeirra sem eru að reyna að halda sjó í þessu fárviðri. 

Þið hjá HH hafið verið að gera góða hluti og eina sem ég get gert er að senda ykkur baráttukveðjur:)

Kveðja,

Arnór Baldvinsson, 2.10.2009 kl. 17:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 1678172

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband