Leita í fréttum mbl.is

Áhugaverð hugmynd í Belgíu

Samkvæmt frétt á vb.is, þá eru uppi hugmyndir í Belgíu að láta hluthafa Fortis banka fá hlutdeild af söluhagnaði bankans til BNP Paribas.  Þannig eigi að bæta minni hluthöfum að hluta tap sitt.  Kannski má gera þetta sambærilega hluti hér.  Bara hugmynd.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Gunnar Bjarkan

Veit það ekki, eru ekki þeir bankar sem hluthafar áttu í hér á landi komnir á hausinn. Aðallega spursmál núna hvort einhver lánadrottnar fá sitt út úr þrotabúum bankanna. Þannig að það er vandséð hvað yrði eftir fyrir hluthafa eins sárt og það er nú.

Jón Gunnar Bjarkan, 12.10.2008 kl. 20:36

2 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Jón Gunnar, bankarnir verða á einhverjum tímapunkti seldir.  Það er búið  að lýsa því yfir að Glitnir (ekki Nýi Glitnir) sé tækur í Kauphöllina, sem þýðir að eiginfjárhlutfall hans er a.m.k. 8%.  Að eigið fé sé jákvætt þýðir náttúrulega að bankinn á fyrir öllum skuldum og gott betur, ekki satt?

Marinó G. Njálsson, 12.10.2008 kl. 20:47

3 Smámynd: Aron Ingi Ólason

það er nú samt þannig að þegar fyrirtæki eru sett svona á hausinn þá fara eignirnar skít og kanill miðað við raunverulegt verð. Nú að öðru leiti þá er það að ég held davíð að þakka að skildu eigiðfé hlutfall bankanna var fært úr 11% í 8% það þýðir einfaldlega að bankinn má lána út 92% meira og svo aftur 92% af því svo við setjum þetta i einfalt dæmi og segjum að eigiðféhlutfallið hafi verið 10% þá mátti bankinn lána út ef hann ætti einamilljón 10 milljónir aukalega af loforði skuldhafans einusaman að borga bankanum þá upphæð sem bankinn gefur svo út í formi tékka eða kresitkortaskuld auk vaxta og allra annara gjalda sem bankinn leggur ovan á það en til að skilja þetta almennilega þá verðuru að lesa um gullsmiðs ævintýrið á bloggsíðunni minni

Aron Ingi Ólason, 13.10.2008 kl. 17:30

4 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Nei, Aron, allar tillögur um breytingu á eiginfjárhlutfalli bankanna eru komnar frá svo kallaðri Basel nefnd Alþjóðagreiðslubankans (Bank for International Settlements) í Basel í Sviss.  Þetta er það apparat sem leggur línurnar fyrir samræmt fjármálaeftirlit um allan heim.  Seðlabanki Íslands á aðild að þessum félagsskap fyrir Íslands hönd.

Marinó G. Njálsson, 13.10.2008 kl. 23:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 1678243

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband