Leita í fréttum mbl.is

Hann stóð svo vel til höggsins

Ég hef lengi velt fyrir hvað er að íslensku þjóðfélagi.  Síðustu daga og vikur hefur mátt lesa alls konar fréttir um tiltæki landans, sem vart er hafandi eftir.  Tökum hér smá upptalningu (eftir minni):

  • Perum stolið úr jólaseríu við kirkjutröppurnar á Akureyri
  • Kveikt í jólageitinni við IKEA
  • Maður ræðst með offorsi geng Íslendingum af erlendum uppruna í verslunarmiðstöð
  • Femínistar verða fyrir endalausu áreiti vegna skoðana sinna
  • Drukkinn maður dregur á eftir sér jólatré
  • Einelti, einelti, einelti

Ég gæti haldið þessari  upptalningu endalaust áfram. 

Einelti er ljótur blettur á háttsemi landans.  Prentmiðlar, vefmiðlar og ljósvakamiðlar eru virkir þátttakendur í þessari hefð.  Já, ég kalla þetta hefð, þar sem það er frekar regla en undantekning að gefið hafi verið skotleyfi á einstakling einhvern tímann á ævi hans.  Guð hjálpi honum verði hann "opinber persóna", þá er allt leyfilegt.

Andstyggð

Hvað er það við Íslendinga sem kallar fram þessa andstyggð?  Þola menn ekki að öðrum vegni vel?  Er óöryggi einstaklingsins svo mikið, að eina leiðin til að upphefja sjálfan sig er í gegn um andstyggð?

Ég get alveg verið hundfúll út í "útrásarvíkingana" og auðmennina sem settu Ísland á hausinn, en það gleður mig samt ekkert að þeir séu gerðir gjaldþrota.  Ég hefði miklu frekar viljað að þeir hefðu staðið þetta af sér og hægt hefði verið að endurheimta það fé sem þeir höfðu af þjóðinni.  Mér fannst Reykvíkingar gera mistök við að kjósa Besta flokkinn til valda, en það þýðir ekki að ég ætli að níða skóinn af Jóni Gnarr við öll tækifæri.  Staðan er ekkert betri í öðrum sveitarfélögum, þar sem menn virðast halda að fjármunum útsvarsgreiðenda sé best varið í starfslokasamninga við fyrrverandi bæjarstjóra.

Hver sem staða einstaklinga er, þá er lágmark að fólk fái að njóta sannmælis.  Já, Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, skrifaði undir skjal sem dagsett var 8. febrúar 2008 hinn 11. eða 12. febrúar.  Þetta er ekki fölsun.  Þýðir bara að fyrsti maðurinn sem skrifaði undir skjalið gerði það líklega þann 8. febrúar.  Og þó að viðkomandi hafi gert það daginn eftir, þá var skjalið samt gefið út þann dag eða átti að hafa gildistöku þann dag.  Ekkert af þessu er skjalafals.  Hafi skjalið aftur verið búið til í október 2008 og látið líta út sem það hafi verið gert 8. febrúar 2008, þá er um skjalafals að ræða.

En fyrst að ég er byrjaður að fjalla um stjórnmál, þá eru þau eitt besta dæmið um andstyggð á Íslandi.  Stjórnmál virðast vera löngu hætt um að snúast um hvað er þegnum landsins (eða sveitarfélagsins) til góða.  Nei, þau snúast fyrst og fremst um að koma höggi á "hina".  Ég set hina innan gæsalappa vegna þess að oftast hitta menn sig heima.  Sjálfstæðismenn héldu uppi málþófi um fjárlög um daginn án þess að leggja fram eina einustu breytingartillögu.  Ástæðuna get ég bara giskað á, en hún væri byggð á andstyggð og því læt ég vera að nefna hana.

Eftir hrun hefur sprottið upp ný tegund andstyggðar sem tengist samskiptum fjármálafyrirtækja við viðskiptavini sína.  Annarri eins andstyggð hef ég bara ekki kynnst.  Þau fyrirtæki sem kannski helst hefðu átt að tileinka sér hógværð og lítillæti hafa í staðinn snúið upp á sig og því miður sýnt allt of mörgum viðskiptavinum sínum hreina andstyggð.  Þessu hafa viðskiptavinirnir margir hverjir svarað með ekki minni andstyggð.  Síðan hefur þetta þróast í þvílíka tortryggni, að langur tími mun líða áður um heilt grær.

Uppnefningar eru alveg sérstakur partur af þessi andstyggð og virðast lögmenn hafa mikið dálæti á þeirri aðferð.  Þar spila þeir á ystu brún þess sem lögin leyfa þeim eða hvað.  Líklegast er allt í lagi að kalla mann dólg, ef manni líkar ekki við hann eða hvað hann stendur fyrir, en alls ekki má segja að annar hafi verið undir rannsókn, þegar hann sætti skoðun.  (Hvernig eiga leikmenn að þekkja muninn á "rannsókn2 og "skoðun"?)  Minn skilningur á orðinu dólgur, er að viðkomandi selji aðra manneskju mansali og þætti mér það ærumeiðandi, ef ég væri blaðamaðurinn sem þessu orði var beint að.

Óvirðing

Óvirðingin ríður ekki við einteyming á Íslandi.  Ég tók dæmi hér að ofan um þjófinn eða þjófana sem leggjast svo lágt að skrúfa perur úr jólaljósum á Akureyri.  Einn einstaklingur varð svo illa fullur að hann ákvað að verða sér út um jólatré með öllu tilheyrandi og draga á eftir sér.  Smiðurinn minn lenti í því fyrir nokkrum árum að gleyma að læsa kerrunni sinni.  Einhver fór inn á lóðina, þar sem kerran var geymd og stal henni.  Nóg var að gleyma að læsa kerrunni eina nótt, þá var hún horfin.  Bili bíll upp á heiði, getur eigandi átt von á því að hún standi eftir dekkjalaus, þegar hann vitjar hennar.  Farið var inn í húsnæði í byggingu og öllum hreinlætistækjum stolið!

Því miður er þessi óvirðing fyrir eigum annarra orðin að landlægum ósið.

Ég man þá tíð, þegar ekki þurfti að læsa útidyrahurðinni heima.  Hvað þá bílhurðum.  Ég man þá tíð, þegar óhætt var að skilja við bílinn, þó hann bilaði eða kerruna ólæsta á planinu.  Ótrúlega hljóma ég gamall.  Úti á landi er þetta víða enn hægt.  Þeim stöðum fer fækkandi.  Óvirðingin fyrir eigum fólks hefur nefnilega náð að smita út frá sér.

Ein hlið á óvirðingunni eru öll þessi ofbeldisbrot sem eiga sér stað.  Gjörsamlega tilhæfulausar árásir á bara þann sem stendur vel til höggsins.  Orðatiltækið "að standa vel til höggsins" er úr Íslendingasögunum  og lýsir einu mesta óhæfuverki þeirra, þegar Þorgeir Hávarsson drap sauðamann í Fóstbræðrasögu vegna þess að hann hafi staðið svo vel til höggsins.  Því miður ríða þeir margir Þorgeirarnir Hávarssynirnir um héruð landsins reiða til höggs.  Þeir gera þetta oft af sömu óvirðingu fyrir náunganum og Þorgeir í Fóstbræðrasögu og af jafn litlu tilefni.  Fórnarlambið stóð svo vel til höggsins en hafði sér ekkert annað til sakar unnið.

Hvers vegna þessi óvirðing og andstyggð?

Líklega er ekki neitt einhlítt svar við því hvers vegna óvirðing og andstyggð virðist vera orðin svona útbreidd plága.  Minnimáttarkennd spilar þar örugglega stóran þátt.  Þó ekki sé rétt að alhæfa, þá fer lítið á milli mála, að Íslendingar eru upp til hópa illa haldnir af minnimáttarkennd.  Raunar hefur hún fylgt þjóðinni mjög lengi, eins og lesa má nánast í öllum Íslendingasögunum.  Alls staðar virðist hún stinga upp höfðinu.  Laxnes gerði henni góð skil í Brekkukotsannáli og raunar í fjölmörgum öðrum skáldverkum sínum.  Þórbergur Þórðarson lýsir henni vel í flestum sínum verkum.  Hjá yngri höfundum er hún líka vinsælt viðfangsefni.

Íslendingar sem hafa gert það gott, hafa síðan fengið að heyra það frá þeim sem eru ekki ánægðir með að rangir aðilar hafi náð langt.  Ólafur Jóhann Ólafsson þótti t.d. ekki mikill penni, þegar hann gaf út fyrstu skáldsögu sína, vegna þess að hann var ekki "klúbbnum".  Öðrum er hampað sem "heimsfrægum" og "bestum" þó hvorugt orðið lýsi afrekum þeirra.  Sem betur fer eignuðumst við Björk og hér á landi var allt í einu með sanni heimsfræg manneskja.  Hún bjargaði geðslagi heillar kynslóðar sem hafði sárlega vantað raunverulega heimsfrægan Íslending til að monta sig af í stað Garðars Hólms sem virtist að mati manna vera út um allt.  Íslendingurinn sem blekkti fólk til að halda að hann væri heimsfrægur söngvari.  Hve margir hafa þeir gengið um grundir Íslands félagar hans í blekkingunni og hve vel hefur landanum liðið yfir að getað hrósað sér af viðkomandi?  Lægst leggst minnimáttarkenndin í spurningunni síendurteknu, "How do you like Iceland?" sem ónefndur fréttamaður RÚV gerði ódauðlega um árið.

En aftur:  Hvers vegna þessi óvirðing og andstyggð?  Ég var búinn að nefna minnimáttarkenndina, en hún á sér systkin sem heita óöryggi og vanlíðan.  Ung stúlka lýsti þessu ágætlega í grein á netinu nýlega.  Skólafélagar hennar gerðu allt til að draga úr henni máttinn með andstyggilegum ummælum, þar sem (eins og hún segir frá) þeim leið illa.  Þeir voru óöruggir með sjálfa sig og því var lausnin að finna einhvern ennþá veikari.  Ég velti því oft fyrir mér, þegar ég les andstyggilegan texta á netinu, hvort ekki sé í lagi heima hjá viðkomandi.  Hvort ekki væri rétt að viðkomandi leitaði til læknis. Hef þó látið ógert að nefna það, sem slíkt fellur undir andstyggð.  Aðrir sýna ekki sömu háttvísi.

Auðvitað eru flest þessi atriði sem talin eru upp í upphafi greinarinnar ekkert annað en persónulegir harmleikir.  Auvirðileg framkoma, eins og að stela perum (af öllu) úr jólaseríu eða næla sér í jólatré, er svo sem ekkert nýtt. En einhvern veginn, þá finnst mér sem atvikunum hafi fjölgað meira en góðu hófi gegnir.  Einhverjir fjölmiðlar hafa gripið til þeirra ráða að birta til mótvægis allar neikvæðar fréttir sem þeir finna úr dönskum fjölmiðlum.  Málið er að þær eru ekki margar, flestar heldur sakleysislegar miðað við ruglið sem viðgengst á Íslandi og svo rata Íslendingar í allt of margar þeirra!

Aðgát skal höfð í nærveru sálar

Sem mikill aðdáandi Einars Benediktssonar, skálds, þá vil ég enda þennan pistil á erindi úr Einræðum Starkaðar, en það segir allt um hvað lítið þarf til að breyta gleði í sorg eða sorg í gleði.

Eitt bros – getur dimmu í dagsljós breytt,
sem dropi breytir veig heillar skálar.
Þel getur snúist við atorð eitt.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Svo oft leyndist strengur í brjósti sem brast
við biturt andsvar, gefið án saka.
Hve iðrar margt líf eitt augnakast,
sem aldrei verður tekið til baka. 

(Smellið hér til að lesa ljóðið í heild.)

Við mig sagði góður maður einu sinni.  "Vandaðu orð þín, vegna þess að orð verða aldrei til baka tekin."

Ég á ekki von á því að þessi grein breyti miklu, en við Íslendingar sem þjóð (af hvaða uppruna sem fólkið er) þurfum að velta því fyrir okkur, hvort það sé okkur samboðið að höggva stöðugt til þess, sem ekki hefur unnið sér annað til sakar, en að standa vel til höggsins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir þennan frábæra pistil Marínó, venjulega tekst mér ekki að lesa svona langan pistill í einu.  En þessi hélt athyglinni, sennilega vegna þess að þú ert að rýna í þjóðarsálina nakta eins og hún kemur fyrir. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.12.2012 kl. 20:43

2 identicon

Marinó, það er bara 1 ástæða fyrir þessu öllu saman,  það hefur farist fyrir að ala þetta þjóðfélag upp. Það þarf ekki annað en byrja á alþingi sem ætti að vera til fyrirmyndar, stór hluti þingfólks kann ekki almenn fundarsköp og minna mest á geltandi illa siðaða hunda og sýna með því bæði þingi og þjóð lítilsvirðingu.

Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 8.12.2012 kl. 20:43

3 identicon

Margt athugavert við máflutning Marinós. Pistillinn ekki aðeins of langur, en einnig á köflum“silly”.

Já, hvað hvetur menn til að stela og kveikja í jólaskreytingum? Eða valta yfir fólk sem lítur ekki út eins og innfæddir rednecks? Svarið er nefnilega ekki svo flókið, en í stuttu máli er svo að þegar veikar sálir verða vitni að því að menn komist upp með það að ræna og rupla sjóði landsmanna, tala eins og fasistar, og fá svo orðu fyrir frá forseta ræflinum, þá fara þeir að haga sér eins og molduxar. Munurinn er hinsvegar sá, að þeir verðir teknir á beinið og sektaðir, á meðan hinir vaxa í áliti hjá mörgum innbyggjurum.

Og hvernig má það vera einelti að skrifa um spillingarmál valdamesta stjórnmálamanns landsins? Manns sem gæti orðið forsætisráðherra landsins bara sko á morgun? Það ætti að vera skylda blaðamann að hamast á slíkum foglum, þar til málin hafi verið upplýst eða tekin fyrir hjá dómstólum. Að því loknu eiga blaðamenn að snúa sér að næsta verkefni, af nógu er að taka.

Menn eins og Marinó eru nefnilega oft bestu liðsmenn íhaldshjarðarinnar, sem virðist nú vera að nálgast.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 9.12.2012 kl. 09:32

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Skemmdu eplunum fjölgar, í samræmi við fjölgun þjóðrinnar, það er alltaf X stór hópur sem ekki fær viðunandi uppeldi og siðblinda fólkið sem heldur að það megi gera allt og gerir allt, fjölgar sér líka, þannig að eigi ekki von um betri tíð í framkomu fólks, því miður.

Ásdís Sigurðardóttir, 9.12.2012 kl. 12:10

5 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Áhugaverður málflutningur hjá þér, Haukur, en því miður misskilur þu pristil minn greinilega frá upphafi til enda.  Ekki tengi ég skrif um Bjarna við einelti, heldur eiga orðin "einelti, einelti, einelti" við endalausar greinar um einelti sem birst hafa í fjölmiðlum.  Í annan stað, þá nefni ég að margt af þessu sem talið er upp, séu mannlegir harmleikir.  Ég ekki hvergi að taka upp hanskann fyrir "liðsmenn íhaldhjarðarinnar" heldur að fjall um afmarkað mál, sem kemur stjórnmálaskoðun ekkert við.

Hver einstaklingur ber ábyrgð á sinni hegðun, sama hvað aðrir hafa gert.  Hafi ég orðið fyrir ofbeldi, þá afsakar það ekki að ég beiti annan ofbeldi.  Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn er boðskapur Gamla testamenntisins, en síðan breyttust tímarnir og næst var boðað "Það sem þér viljið að mennirnir gjöri yður, skulið þér og þeim gjöra."  Síðan eru tvö þúsund ár og þessi hugsun hefur þróast enn frekar og gengur í dag út á að virða hvar hinn einstaklingurinn setur mörkin.  Þannig getur hugsanlegur gerandi þolað grófa hluti, en einstaklingur sem athöfninni yrði beint geng ekki.  Þá ber að virða vilja þess síðari.

Tek skýrt fram að ég hef aldrei verið talsmaður Íhaldsins og mun líklegast aldrei vera það, en hver sem á í hlut verður að njóta sannmælis.  Við erum að leita sannleikans, en ekki á nornaveiðum.

Marinó G. Njálsson, 9.12.2012 kl. 12:18

6 Smámynd: Sigurður Ingólfsson

Frábær hugvekja eða pistill hjá þér Marinó. Vona að sem flestir lesi skrif þín.

Sigurður Ingólfsson, 9.12.2012 kl. 12:31

7 identicon

Marinó. “Hvað höfðingjarnir hafast að, hinir halda sér leyfist það”. Hallgrímur kallinn vissi alveg hvað hann söng. Þegar fólk verður vitni að því að menn komast upp með það að lifa eins og Krösus (Κροῖσος), þó með allt niðrum sig og milljarða afskrifaða, verður freystingin stór að taka sjansinn á einn eða annan hátt. “Hver einstaklingur ber ábyrgð á sinni hegðun“, skrifar þú. Jú, kannski snærisþjófar, en ekki hinir. Hvað varð um ábyrgð Davíðs Oddssonar, bankastjóranna, útrásarglæpónanna, sem hafa ekki einu sinnu þurft að skila öllum riddarakrossum og fálkaorðum sem forseta ræfillinn var búinn að næla á þá? Eða hálfvitunum sem sáu um fjárfestingar lífeyrissjóða fólksins og létu múta sér á einn eða annan hátt? Þú hlýtur að vera að djóka. Og "auga fyrir auga, tönn fyrit tönn" hefur sitt gildi Marinó. Það þýður t.d. ekkert að reyna að tala við sjallabjálfana, bjóða þeim samvinnu og biðja þá um að vera reasonable. Þeir taka ekki sönsum fyrr en að hafa verið flengdir og það duglega. Vertu ekki svona naive, drengur.

Ég endurtek, svona pistlar eins og þú skrifar er vatna á myllu kleptókratanna. Have a nice day!

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 9.12.2012 kl. 13:07

8 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Merkilegur skilningur þinn á pistlinum mínum, Haukur.  Hvernig tilvísun í eitt mál verður vatn á myllu kleptókratanna, eins og þú orðar það, þegar öll önnur dæmi eru af gjörólíkum uppruna, er mér gjörsamlega óskiljanlegt.  Hvert sem málefnið er eða tilefnið, þá verða allir að njóta sannmælis.  "Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn" er fjögurra eða sex þúsund ára hugsunarháttur, verður bara til þess að allir enda blindir og tannlausir.  Í mínum huga hefur það EKKERT gildi.  En þér er að sjálfsögðu frjálst að hafa þína skoðun.

Marinó G. Njálsson, 9.12.2012 kl. 13:40

9 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Tek undir orð Ásthildar.  Bæti þar við að það er sitthvað að lesa bók eða pistil. Það er og sitthvað að lesa pistil eða athugasemd. 

Allt er þetta sagt í góðu Marinó og þakka þér fyrir margt mjög ágætt.

Tek svo mjög undir orð Kristjáns B. Kristinssonar  hér í athugasemdum, að öðruleiti en að hún mamma mín sveikst aldrei undan merkjum. 

Í gamladaga þá fengum við bútung sem var búin að liggja í salti í tvö þrjú ár og hann var orði rauður inn við beinið, það var góður saltfiskur.  En þessi Haukur Kristinsson tekur sennilega ekki salt frekar en plast og verður því aldrei ætur.     

Hrólfur Þ Hraundal, 9.12.2012 kl. 14:28

10 identicon

Mjög athyglisverð færsla  þó hún sé kannski í lengsta lagi og ekki nógu hnitmiðuð fyrir lesendahóp þinn á  mbl.is blogginu.´

"Aðgát skal höfð í nærveru sálar " er ljóðlína sem hefur elt mig allt mitt líf og ég hef reynt að fylgja henni í mínum persónulegu tengslum við aðra einstaklinga.

Kannski er eitt af okkar  þjóðfélagslegu vandamálum það að við virðumst eiga erfitt með að aðskilja persónur og embættin sem þeir gegna.

Í samskiptum við einstaklinga myndi ég vísa til orða Stefáns G en í dómi mínum og afstöðu til  "embættisstarfa" hafanna  myndi ég sýna minni varkárni og vera mun dómharðarðari innan þeirra marka sem starfslýsing  þeirra verkssviða setur.

Agla (IP-tala skráð) 9.12.2012 kl. 16:43

11 Smámynd: Elle_

Kristján minnti mig á fyrstu skipti sem ég heyrði vælið og þvargið í alþingi eftir að hafa verið lengi í fjarlægu landi.  Hugsunin var: Guð minn góður, þetta eru eins og villimenn, eiga börn að þurfa að hlusta á þessi kerlingarvæl (hvort það var Jóhanna eða Valgerður eða önnur enn verri að garga á alla sem fyrir voru) komandi inn í hús þeirra?  Og þarna kemur kannski skýringin á ótrúlegum þjösnaskap fjölda Íslendinga eftir að hafa orðið að hlusta á þennan yfirgang.  Skýringin kannski á hvers vegna enginn stoppaði fyrir einum eða neinum og gangandi vegfarendur, hvað var nú það?  Veit ekki en það voru mín ósjálfráðu viðbrögð við þessu.

Elle_, 9.12.2012 kl. 17:08

12 Smámynd: Elle_

Eins gott að taka það fram að þarna var alls ekki átt við alla alþingismenn eða stjórnmálamenn.

Elle_, 9.12.2012 kl. 17:09

13 identicon

Legg til að fólk rifji þetta upp:

http://www.youtube.com/watch?v=yYqbEZtlhoA

Lára Hanna Einarsdóttir (IP-tala skráð) 10.12.2012 kl. 01:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband