Leita í fréttum mbl.is

Umræða um persónukjör á villigötum

Ég verð að taka undir með Þór Saari, að þessi umræða um persónukjör er komin út í algjöra vitleysu. Snýst þetta virkilega um kynjamál, en ekki lýðræði.  Það er minn lýðræðislegi réttur í dag að stroka út alla karla eða allar konur af þeim lista sem ég kýs.  Ekki eru nein lög sem banna það.  Af hverju halda femínistar að persónukjör verði konum óhagstætt?  Hefur hrunið ekki einmitt sýnt að karlar eru mun duglegri við að koma sér í vafasama stöðu.

Mér finnst að kosningar eigi að snúast um að velja hæfustu einstaklingana, þ.e. horfa til þess sem fólk hefur milli eyrnanna, en ekki fótanna.  Með fullri virðingu fyrir jafnréttissjónarmiðum, þá er lýðræðið æðra síðast þegar ég vissi.  Ef skikka á fólk til að velja jafnmarga af hvoru kyni, þá er ekki lengur um lýðræðislegt val að ræða.

Persónukjör á að snúast um að hægt sé að velja hvaða frambjóðanda sem er af hvaða lista sem er.  Hver kjósandi á að fá eitt atkvæði og síðan ræður hann hvort hann setur atkvæðið á einn lista í heild, dreifir því á fleiri lista eða velur einstakling(a) af einum eða fleiri listum.  Atkvæði (í heild eða brotum) gefið lista eða einstaklingi á lista telur fyrir viðkomandi lista.  Síðan ræðst röð einstaklinga innan listans af þeim atkvæðum sem einstaklingarnir fá.  Áfram er ákveðið á svipaðan hátt og nú hvað hver listi fær marga menn kjörna í hverju kjördæmi.  Frambjóðendur fá síðan kosningu eftir atkvæðaröð þeirra.  Atkvæði greitt lista eingöngu, en ekki einstaklingi getur annað hvort fallið á einstaklinga eftir röð sem listinn ákveður eða telur ekki þegar kemur að því að raða einstaklingum innan listans, sem er líklegast réttlátari leið.

Ég tek það fram, að ég er sterkur jafnréttissinni en það er ekki alltaf hægt að horfa á allt í gegn um kynjagleraugu.  Eina leiðin til þess er að hvert atkvæði væri tvískipt, þ.e. karlaatkvæði og kvennaatkvæði.  Þannig fengju karlar alltaf helming atkvæðanna, líka frá femínistunum í VG, og konur alltaf helming, líka frá karlrembum Sjálfstæðisflokksins.  Slíkt á samt ekkert skylt við lýðræði.  Höfum það á hreinu.

Annars er þetta frumvarp um persónukjör handónýtt eins og ég skil það.  Persónukjör á ekki að snúast um að flokkarnir geti flutt prófkjörin sín inn í kjörklefa alþingis- eða sveitastjórnarkosninga.  Það á að snúast um að ég sem kjósandi geti valið þá sem ég treysti best til verksins, hvar sem viðkomandi er í flokki.  Það er persónukjör, hitt er hefðbundin kosning með prófkjöri og er engin breyting frá því sem núverandi kosningalög leyfa, ef nógu margir kjósendur viðkomandi flokks eru tilbúnir að taka þátt í því.  Samkvæmt núgildandi kosningalögum get ég endurraðað á lista þess flokks sem ég kýs.  Eins og ég skil frumvarpið, þá er þetta enn ein aðferð flokkanna til að ráðskast með kjósendur og ríghalda í völdin.  Flokkarnir óttast að missa völdin til fólksins.  Með þessu frumvarpi er líka verið að gefa lýðræðisumbótum langt nef.  Vonandi hafa kosningarnar um síðustu helgi bent forystusauðum stjórnflokkanna á, að eina leiðin fyrir þau til að komast inn á þing eftir næstu þingkosningar er að kjósendur geti valið frambjóðendur þvert á lista.


mbl.is „Lýðræðistal hjóm eitt"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnar Eiríksson

Þetta er alveg hárrétt hjá þér, frumvarpið er rugl og yfirvarp stjórnmálaflokka til að halda völdum og plata kjósendur - eins og þeir gera í dag með útstrikununum.

Svo hefur misritast hjá þér þar sem þú segir "enn ein aðferð flokkanna til að ráðgast með kjósendur" - ég reikna með að þú eigir við "að ráðskast með kjósendur"!

Kveðja og þakkir fyrir skeleggar skoðanir!

Ragnar Eiríksson

Ragnar Eiríksson, 4.6.2010 kl. 20:18

2 identicon

Ég hefði viljað sjá auðann reit á kjörseðlinum þar sem hægt væri að tilnefna tiltekinn fjölda fólks úr öllum flokkum.

Segjum svo að til dæmis kjósendum byðist að tilnefna skulum við segja í helming af framboðssætunum. Ef um væri að ræða 20 frambjóðendur, þá mætti kjósandinnn tilnefna allt að 10 nöfnum.

Kjósendur mættu tilnefna þá einstaklinga úr öllum framboðum á listanum, eins einhverja utan listans sem sannanlega tilheyra viðkomandi kjördæmi.

Síðan við úrvinnslu, þá er ég viss um að út kæmi allt önnur niðurstaða en núverandi kjörseðlahefð er. Gæti orðið spennandi útkoma. 

Anna Kr. (IP-tala skráð) 5.6.2010 kl. 11:28

3 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Eina ásættanlega fyrirkomulagið er að frambjóðendur standi ekki á listum heldur bjóði sig fram sem einstaklingar.  Frambjóðendunum væri þó heimilt, en ekki skylt, að gera grein fyrir flokkstengslum sínum á kjörseðlinum.

Hver kjósandi má veita jafnmörgum atkvæði og þingmanntala kjördæmisins gerir ráð fyrir.

Frambjóðendur í hverju umdæmi raðast á þingmannalistann í samræmi við fjölda atkvæða sem þeir hljóta.

Svanur Gísli Þorkelsson, 5.6.2010 kl. 14:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 1678220

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband