Leita í fréttum mbl.is

Breytingastjórnun og stjórnun rekstrarsamfellu vantar

Ég hef, starfs míns vegna, verið sérlegur áhugamaður um góða stjórnhætti.  Þó fókusinn hafi verið á áhættustjórnun, öryggisstjórnun og stjórnun rekstrarsamfellu, þá er það nú nokkuð þannig að rekstur fyrirtækja snýst meira og minna um þetta.  Raunar hef ég gengið svo langt að segja að rekstur fyrirtækja snúist meira og minna um þrennt og allt annað sé afleiðing af þessu þrennu, þ.e. breytingastjórnun, áhættustjórnun og stjórnun rekstrarsamfelldu.  Daglegur rekstur er bara að fylgja eftir ákvörðunum teknum í tengslum við þessa lykil stjórnunarþætti.

Þegar tilkynnt var í haust að Viðskiptaráð Ísland, Samtök atvinnulífsins og Kauphöllin ætluðu að gefa út leiðbeiningar um stjórnhætti fyrirtækja, þá setti ég mig í samband við framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs og bað hann endilega að sjá til þess að krafa um stjórnun rekstrarsamfellu yrði felld inn í þessar leiðbeiningar.  Nú er skjalið komið út og þó vissulega sé tekið á nokkrum stöðum á áhættustýringu og áhættumati, þá örlar ekki á stjórnun rekstrarsamfellu hvað þá breytingarstjórnun.  Finnst mér það miður.  Sérstaklega finnst mér miður að stjórnun rekstrarsamfellu vanti, þar sem ég held að fáir geti mælt því mót, að það var einmitt sá hluti í rekstri fjármálafyrirtækja sem klikkaði hvað verst á síðustu árum.  Ekki bara á síðasta ári, heldur líka á árunum á undan.  Og síðan má ekki gleyma því, að nokkur fyrirtæki sem höfðu innleitt stjórnun rekstrarsamfellu stóðu af sér ofviðrið.  Má þar nefna Reiknistofu bankanna og VALITOR.  Ef þessi tvö fyrirtæki hefðu fallið, þá hefði vandinn í fyrra haust orðið umtalsvert meiri, þar sem greiðslukerfi landsmanna hefði dottið út.


mbl.is „Viðamiklar breytingar“ á stjórnarháttum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Offari

Nú verð ég bara að viðurkenna að ég veit ekkert hvað Rekstrarsamfella er.

Offari, 18.6.2009 kl. 16:33

2 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Starri, þér er fyrirgefið það.  Stjórnun rekstrarsamfellu eða stjórnun á samfeldum rekstri (e. business continuity management) er sá hluti stjórnunar sem tryggja á að rekstur fyrirtækis geti haldið áfram, þó fyrirtækið verði fyrir áfalli.  Í því fellst m.a. gerð viðbragðsáætlana fyrir einstaka þjónustuþætti og rekstrarkerfi og síðan áætlanir um endurreisn þessara þátta verði þeir af einhverjum ástæðum óstarfhæfir.  Þetta er m.a. það sem ég fæst við í minni ráðgjöf.

Marinó G. Njálsson, 18.6.2009 kl. 16:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 1678159

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband