Leita í fréttum mbl.is

Við vitum vel að norrænir menn voru ekki fyrstir

Ég hélt að það væri viðurkennt, að hér voru menn áður en norrænir menn námu hér land.  Ártalið 874 (eða 871) er viðmiðun fyrir landnám norrænna manna.  Líklegast verður því ekki breytt.  Aftur á móti er ekki vitað hvenær keltar/Írar/papar komu hingað.  Það er heldur ekki vitað hve víða þessir aðilar voru hér eða hve margir.  Ari fróði talar um einsetumenn, en hver segir að þetta hafi alltaf verið einsetumenn.

Fyrstu heimildir um Ísland samkvæmt Íslendinga sögum Jón Jóhannessonar birtust í riti eftir Pýþeas frá Massalíu (Marseille).  Hann fór "til Vestu- og Norður Evrópu, líklega seint á 4. öld f. Kr...Pýþeaskvað hafa getið lands þess, er hann nefndi Thule og lægi sex daga siglingu norður frá Bretlandi, nálægt hinu frosna hafi.  Enn fremur virðist hann hafa talið, að sól sæist þar allan sólarhringinn um sumarsólstöður."  Síðan segir Jón:  "En ekki verður betur séð annað en Thule það, sem Pýþeas nefndi, hafi verið byggt land, og kemur Ísland þá ekki til greina, því að ekki eru minnstu líkur til, að það hafi verið byggt svo snemma."

Hver veit nema Pýþeas hafi haft rétt fyrir sér og hér hafi verið byggð á þeim tíma.  Er það nokkuð fjarstæðukenndara en að steingervarleifar hjartardýrs hafi fundist í Vopnafirði eða að íslenska bankakerfið hafi allt fallið á þremur dögum.

Síðan má ekki gleyma á síðustu öld fundust "á Austfjörðum þrír rómverskir koparpeningar, svo nefndir antoninianar, frá árunum 270-305 e. Kr." svo vitað sé í Jón.  Hugsanlega bárust þeir með norrænum mönnum hingað, en ekki er hægt að útiloka að hingað hafi hrakist skip í hafvillu, svo vitnað sé í Kristján Eldjárn, fyrrverandi þjóðminjavörð og forseta lýðveldisins.

Nú írski munkurinn Dicuilus samdi um 825 ritið De mensura orbis terrae og nefnir þar hugsanlega eyjuna Thule.  Einnig er talið að í ritinu In libros regum quæstionum xxx liber eftir Beda prest, að menn sem búi á Thule sjái sólina allan sólarhringinn nokkra daga á sumrin.  Dicuilus nefnir að svo bjart sé á kvöldin að menn geti tínt lýs úr skyrtum.

En aftur að 871.  Fornleifafræðingar hafa svo sem talið að allt þetta með Ingólf Arnarson sé bara góð þjóðsaga, sem höfundar Landnámu og Íslendingabókar hafi bara fundið upp til að tryggja eignarrétt sinn á landi.  Menn hafi byrjað snemma að bera fyrir sig hefðarréttinum sem sönnun fyrir eignarrétti.

Það er þó best að taka öllum ártölum með varúð.  Öll tækni hefur sínar takmarkanir og það hefur öskulagaaðferðin líka.

 


mbl.is Landnám fyrir landnám?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Sjálfri finnst mér spennandi tilhugsun að geta ef til vill haldið upp á 1300 ára afmæli Íslandsbyggðar 2020, eftir að hafa tekið þátt í 1100 ára afmælinu líka.

Án gríns vonandi verður hægt að skera úr um þetta fljótlega, og að hægt verði að finna frumbyggjunum nafn og þjóðfang, svo við getum kennt þeim ef til vill um seinni alda ófarir. 

Thule væri líka gott nafn á landinu.

Jenný Stefanía Jensdóttir, 13.3.2009 kl. 03:12

2 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson

Ég skoðaði 2 tilvitnanir um Thule og Ultima Thule í Wikipedia, önnur um Thule frá 330 fyrir kristsburð:

"The Greek explorer Pytheas is the first to have written of Thule, doing so in his now lost work, On the Ocean, after his travels between 330 BC and 320 BC. He supposedly was sent out by the Greek city of Massalia to see where their trade-goods were coming from.[3] Descriptions of some of his discoveries have survived in the works of later, often skeptical, authors."

Og svo þessi frá e.t.v. frá um 15o fyrirkristsburð eða fyrr:

"A novel in Greek by Antonius Diogenes entitled The Wonders Beyond Thule appeared c. AD 150 or earlier. Gerald N. Sandy, in the introduction to his translation of Photius' ninth-century summary of the work,[5] surmises that Thule was "probably Iceland.""

Ég heldekki að aðeins Ari Fróði hafi vitað um þetta allt einsamall.  Það er gaman að skoða hinar ýmsu kenningar.

Kveðja, Björn bóndi   

Sigurbjörn Friðriksson, 13.3.2009 kl. 03:15

3 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson

___________________________________________________

Í seinni tilvitnuninni hjá mér átti að heita um 150 eftir krists burð.

Björn bóndi 

Sigurbjörn Friðriksson, 13.3.2009 kl. 03:19

4 Smámynd: Sæmundur Ágúst Óskarsson

Góður pistill hjá þér Marino. Ég er sammála þér að það hefur örugglegaverið einhver byggð hér fyrir "landnám" eins og við setjum skilning í það hugtak og kannski var Ingólfur gamli bara landflótta útrásarvíkingur. En ég held að það séu komnar fram það miklar sannanir fyrir byggð hér fyrir 870 að ekki verði fram hjá þeim litið

Sæmundur Ágúst Óskarsson, 13.3.2009 kl. 06:35

5 Smámynd: Óskar Þorkelsson

papar, keltar eða fólk frá bretlandseyjum var pottþétt hér á undan norrænum mönnum.. ég efast um að það hafi verið einsetumenn heldur hafi þetta skolast til í áranna rás þar til þetta var skráð niður á 12 og 13 öld.. 300-500 árum síðar. 

víkingar litu niður á breta á þessum tíma og því málið afgreitt sem papar..

Þess má einnig geta að um 30 % af landnemum voru kathólskir bretar.. og voru þeir ekkert endilega þrælar..  

Óskar Þorkelsson, 13.3.2009 kl. 09:24

6 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Mín tilgáta gengur ennþá lengra, Óskar, og er að hér hafi verið góð byggð friðsamra íbúa.  Þegar Norrænir menn komu, þá hafi þeir drepið karlpeninginn en tekið kvenfólkið sem þræla og hjásvæfur.  Það valdi m.a. því að formæður okkar hafi komið frá Bretlandseyjum í jafnmiklu mæli og erfðarannsóknir sýna.

Marinó G. Njálsson, 13.3.2009 kl. 09:36

7 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Skemmtilegur pistill Marinó.  Svo má bæta við að í nágrenni við fundarstað rómversku peningana sem þú gast um í pistlinum þínum eru Papey og Papaós án þess að það komi peningunum beint við.  Í Papey eru svo kennileiti eins og t.d. Írsku hólar.  

Þó svo að Kristján Eldjárn hafi við uppgröft sinn í Papey ekki fundið órækar sönnur þess að Papar hafi búið þar þá er líklegra að svo hafi verið, sé eitthvað að marka örnefni og munnmælasögur.

Enn og aftur góður pistill hjá þér.

Magnús Sigurðsson, 13.3.2009 kl. 11:33

8 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Við þessar pælingar má svo bæta vitneskju um gróðurfar.  Hvernig ætli standi á því að á víð og dreif um landið er að finna kryddjurtir sem jafnvel finnast bara á einum eða tveimur stöðum?  Hafi slíkar jurtir átt að berast með vindi, fuglum, rekaviði eða íseyjum, þá er líklegt að þær hefðu dreifst meira um landið, en svo er ekki.  Mín tilgáta er að þær hafi komið með fólki sem settist niður á þeim stöðum sem jurtirnar fundust.

Marinó G. Njálsson, 13.3.2009 kl. 11:44

9 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Ég held að þessi tilgáta þín Marinó sé mjög góð..  því að bátar írana (papana) á þessum tíma árin 500-800 voru varla sjóhæfir.. hvað þá að þeir kæmust yfir hafið þótt einstaka menn hafi reynt að sanna það í síðari tíð.. hinsvegar áttu höfðingjar og kaupmenn á bretlandseyjum á þessum tíma vel sjóhæf skip sem gátu hæglega siglt til íslands að sumarlagi. 

Óskar Þorkelsson, 13.3.2009 kl. 11:45

10 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Óskar, það sem meira er, mér skilst að það séu til sögu frá Bretlandseyjum um mikinn landflótta/fólksflutninga norðan frá (þ.e. frá svæðinu fyrir norðan Skotland) um svipað leiti og norrænir menn námu Ísland.

Marinó G. Njálsson, 13.3.2009 kl. 11:52

11 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Það sem líka skiptir máli þarna í sambandi við hin fornu rit um landnám o.þ.h. er, af hverju voru þeir að skrá svo nokkuð nákvæmlega hver nam land þarna og þarna og hversu sórt svæði etc.

Var það bara sagnfræði og fróleiksýsn ?  Efa það stórlega.

Líklega spilaði inní að valdamenn eða ættir á þeim tíma vildu hafa eithvað á bók sem þeir gátu réttlætt umráð þeirra eða yfirráð jarða með því að forfeður þeirra hefðu numið það land etc.  (annars er þetta mjög  flókið sko)

En þá er sem sagt megin punkturinn,  að varlega ber að taka hinum fornu ritum um landnám sem heilögum sannleika.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 13.3.2009 kl. 12:12

12 Smámynd: Offari

Njáll á Bergþórshvoli gæti allt ein hafa verið indjáni. Mér finnst einhvernveginn mun líklegra að hér hafi verið fyrir einhverjir eskimóar sem hafi flúið til Grænlands þegar hnattræna hlýnunin hófs.

Offari, 13.3.2009 kl. 12:35

13 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Takk fyrir fróðlegan pistil Marinó.

Kjartan Pétur Sigurðsson, 13.3.2009 kl. 17:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 125
  • Sl. viku: 686
  • Frá upphafi: 1677708

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband